Fagnaðarboði - 01.04.1958, Qupperneq 8
8
FAGNAÐARBOÐI
Srl þú
á veginum með Vroitni?
1 gegnum alla Ritninguna, bæði Gamla og Nýja
Testamentið, liggur sem rauður þráður sú aðvörun til
allra þjóða á öllum öldum, að hver einstaklingur snúi
af vegi syndarinnar, þ. e. geri iðrun og þiggi syndanna
fyrirgefning.
En hið sorglega er, að allt of margir láta þessa við-
vörun Guðs Orðs sem vind um eyrun þjóta og segja
eitthvað á þessa leið:
Ég trúi á Guð og hef aila tíð gert það. — Ég veit, að
Jesús Kristur hefir dáið fyrir syndir allra, og ég þarf
ekkert annað að gera ,en breyta vel. — Auk þess er
Guð svo góður, að Hann lætur engan mann glatast segja
ótal margir og að minnsta kosti halda sig trúa því.
En Heilög Ritning segir okkur allt annað. Allra þeirra,
sem ekki iðrast og snúa sér til lifanda Guðs, bíður dóm-
urinn og hin eilífa tortíming. öll erum við fædd í synd
og vorum því öll á vegi syndarinnar. Hver einstaklingur
verður því að taka afstöðu fyrir sig, hvort hann vill
fylgja Kristi Jesú og lifa, eða hafna Hans frelsisverki
og tortímast.
Jesús segir: „Komið til mín allir þér ... Hann segir
ekki „verið áfram hjá mér“, eins og við hefðum verið
Hans heimamenn frá fæðingu.
Nei, allir þurfa að koma til Hans, sem lífið gefur. Já,
hver og einn verður að koma til Hans auðmjúkur sem
barn, er veit, að það hefir brotið af sér og verðskuldar
refsingu. Þá fyrst flýtur náðin Drottins ómæld yfir.
Hið sama gildir fyrir börn trúaðra foreldra. Þau verða
hvert og eitt að taka afstöðu sína.
Verið því vakandi. Heyrið raustu Drottins. Hann er
að kalla aila daga og nætur. Drottinn bíður eftir að
komast að með sitt dýrðlega frelsisverk, þvi engan tek-
ur Hann nauðugan. Allir verða að koma auðmjúkir og
beygja sig undir Hans máttuga vilja.
Þú heldur ef til vill, að það sé gleði- og tilbreyting-
arlaust líf, að lifa sem frelsað Guðs barn. Síður en svo.
1 stað þess, sem þú sleppir færð þú djúpan innri fögnuð
í Kristi Jesú, sem fullnægir sál, anda og líkama og jafn-
framt öðlast þú fullvissuna um sæluna í komandi lífi.
Kristján Kristmundsson.
Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6,
Hafnarfirði, sími 50075. — Afgreiðsla á sama stað. —
flokkur þakkarorð.
Jesús sagði: Biðjiö og yður mun gefast.
Já, þökk sé Drottni vorum og Frelsara Jesú Kristi
fyrir þá miklu náð og miskunn, sem Hann hefir sýnt
okkur. ; |
Drengurinn okkar veiktist í vor og var lagður í sjúkra-
hús. Okkur var sagt, að hann væri með ólæknandi sjúk-
dóm, sem lítið eða ekkert væri hægt að gera við. Honum
versnaði alltaf og var við dauðans dyr í marga daga.
Þá fórum við að leita á náðir Frelsarans og báðum
Guðrúnu Jónsdóttur að biðja Hann um hjálp. Og hjálp-
in kom. Drengnum okkar fór nú dagbatnandi. Hann er
alveg heilbrigður núna. Þökk sé Guði.
Við trúum því að Drottinn haldi sinni almáttugu
verndarhendi yfir honum, svo hann kenni ekki sjúk-
dómsins framar. Þökk sé Guði fyrir Hans miklu náð
og blessun okkur mönnunum til handa.
Foréldrar.
Vitnisburður.
Fagnaðarboði hefir öðru hvoru birt vitnisburði um
dásamlegar lækningar, og finnst mér það vera skylda
mín að biðja blaðið um að birta eftirfarandi:
Þann 3. okt. 1956 veiktist ég skyndilega og var það
æðastífla í höfði, eftir því sem læknar sögðu, með þeim
afleiðingum, að vinstri handleggur minn varð algerlega
máttlaus. Bað ég þá samdægurs son minn að hringja til
Guðrúnar Jónsdóttur, Hafnarfirði, og segja henni frá,
hvað fyrir mig hafði komið og jafnframt biðja hana um
fyrirbæn. Þá lá vinstri handleggur minn algerlega mátt-
laus ofan á sænginni. Eftir nokkra stund fékk ég allt í
einu fullan mátt í handlegginn. Þó er handleggurinn með
nokkuð annarri tilfinningu nú en áður. Þannig kom
bænarsvarið strax.
Alllöngu síðar fékk ég skyndilega svipaðan sjúkdóm
í fæturna og leitaði þá til Guðrúnar um fyrirbæn og
mér batnaði þá að fullu. Þannig heyrir Guð bænir
bama sinna.
Fyrir þetta vil ég þakka Skapara mínum og Frelsara.
Hans er ríkið, mátturinn og dýrðin.
Lárus Guðmundsson.
Áskrifendur! Gerið svo vél og tilkynnið er þér hafið
bústaðaskifti.
4. tbl.
1958
11. árg.