Fagnaðarboði - 01.03.1970, Side 7
FAGNAÐARBOÐI
7
Jesús kallar
... og Hann kallaði þá. Og þeir yfirgáfu jafnskjótt
bátinn og föður sinn, og fylgdu Honum.
(Matt. 4, 21—22.)
Þannig er sagt frá því, þegar Jesús kallaði þá bræð-
ur Jakob og Jóhannes Zebedeussyni og bauð þeim að
fylgja sér, sem þeir gerðu strax án tafar. Þeir fylgdu
Jesú ávallt upp frá því og voru í hópi binna trúu og
sönnu lærisveina Hans.
En hvernig er þessu farið í dag? Hefur Iíristur Jesús
kallað þig? Hefur þú heyrt kall Hans?
Jesús Kristur þráir, að við mannanna börn heyrum
Hans raust og hlýðum henni. Yíst er, að kall Guðs Son-
arins er í fullkomnum kærleika til okkar mannanna,
og með Jesú höfum við lífið, hið sanna og eilífa, —
og hvergi annars staðar. Hjálp Hans og náð er okkur
húin í fylgdinni með Honum, Drottni okkar og Frels-
ara. í Orði sínu varar Hann okkur sterklega við hinum
margvíslegu hættum, sem hvarvetna leynast um lieim
allan. Víða má heyra Hans kallandi raust, er Hann
býður —- Komið til mín — .
Heimsins vegir eru breiðir og virðast greiðfærir. En
þeir enda allir í vegleysu. Einn er vegurinn, sem ligg-
ur til lífsins. Og ein er sú raust, sem okkur ber að
hlýða.
I Guðs Orði er að finna, hvernig við mannanna börn
eigum að framganga í orðum og gerðum, til þess að
ná heim og verða Guðs heimamenn um alla eilífð.
Guð gefi okkur öllum náð, til þess að svo megi verða,
já, gefi okkur öllum náð til þess að hlýða Orðum Jesú.
Allt er fullkomið í Hans lausnarverki, Guðs Sonarins,
er sagði á krossinum: — Það er fullkomnað — .
Allir ættu því að athuga í tíma að fela sig náð Guðs,
því ævidagar okkar hér á jörð eru ef til vill styttri, en
við höldum, — við jarðneslcir, skammsýnir menn.
En gott er jafnt fyrir unga sem aldna að athuga,
hvað stendur í sálminum „Allt eins og hlómstrið eina“,
eftir séra Hallgrím Pétursson, 3ja versi:
Dauðinn má svo með sanni
samlíkjast, þykir mér,
slyngum þeim sláttumanni,
er slær allt, hvað fyrir er;
grösin og jurtir grænar,
glóandi blómstrið fritt,
reyr, stör sem rósir vænar
reiknar hann jafn-fánýtt.
Frímann Ingvarsson.
Nokkur þakkarorð
Jesús sagði: Biðjið, og yður mun gefast. Já, þökk
sé Drottni mínum og Frelsara, Jesú Kristi, fyrir þá
miklu náð og miskunn, sem Hann hefur auðsýnt mér.
Ég vil lofa Drottin minn og Frelsara og bera vitni um
náð Guðs mér til handa. En mig skortir orð til þess að
gera það eins og ég vildi. Ávallt, þegar ég hef flúið
til Drottins, hefur Hann svarað og gert verkið af sinni
ríku náð.
Ég, sem þessar línur rita, hef um mörg undanfarin
ár haft með höndum ábyrgðarstarf og þá oft verið í
vanda staddur. Mér er ljóst, að það er ekki mér að
þakka, að allt hefur gengið vel. Fyrir bænir Guðrúnar
Jónsdóttur, Hafnarfirði, hef ég fengið mikla hjálp og
hlotið mikinn trúarstyrk við að vera á samkomum
þess trúarsamfélags.
Mér er hæði ljúft og skylt að vitna um þetta hér.
Ég vil þakka mínum blessaða Frelsara, Jesú Kristi,
fyrir alla þá náð og elsku, sem Hann hefur auðsýnt
mér.
Guði sé lof og eilífar þakkir fyrir Jesúm Krist, gjöf-
ina stærstu allra gjafa.
Þ.H.
Vitnisburður
Kæri Fagnaðarboði. — Mig langar til þess að mega
hér koma á framfæri þakklæti mínu til allra þeirra,
sem bent hafa mér á kraft Drottins til líknar og lækn-
ingar og styrkt trú mína á Hann máttugan og kær-
leiksrikan.
Fyrir átján árum var ég með tíu mánaða gamlan
dreng, sem var það langt leiddur af magakrampa, að
fyrir manna augum var ekki annað sjáanlegt, en hans
síðasta stund væri þá og þegar komin.
En Drottinn var nálægur og heyrði bænir frá biðj-
andi hjörtum, sem hrópuðu á Hans náð og miskunn.
Yið náðum simasambandi við Guðrúnu Jónsdóttur,
Hafnarfirði og báðum hana um fyrirbæn. Og hænar-
svarið kom. Lofaður veri Drottinn. Og á ótrúlega
stuttum tíma fékk drengurinn heilsuna aftur.
Fleiri vitnisburðir eru mér ofarlega í huga um náð-
arverk Drottins, sem ég og fjölskylda mín hafa orðið
aðnjótandi.
Lofað og blessað veri Nafn Drottins vors Jesú Ivrists.
Rannveig Bjarnadóttir.