Fagnaðarboði - 01.02.1986, Síða 1
Elska Guðs varir
Guðssonurinn kom - Hann bauð og bjó okkur fylgd
með sér. Sjálfur gékk Hann á undan með því að gera
allan vilja Föðurins. Hann gaf mönnunum Orð sín og
verk sem eru fullkomin. Og Guð Faðirinn hefur okkur
fyrirhugað að líkjast mynd Sonar síns,
því að ritað er. Verið heilagir, því eg er heilagur.
(1. Péf. 1:16)
Víst er að annað fagnaðarerindi en Fagnaðarerindi
Jesú Krists verður kynslóðunum ekki gefið eða birt
og verkum Hans verður ekki breytt. Erindið er Jesús
Kristur Guðs Sonurinn sem meðalgangari milli Guðs
og manna. Það erindi er fullkomið og í sínu óumbreyt-
anlega lífsins gildi.
Guð er Eilífðarfaðir þeim, sem hyggja á það sem
Hans er og frá Honum gefið í föðurkærleika þ.e. lífið
í Drottni Jesú Kristi. Við eigum að deyja sjálfum
okkur, þiggja allt af Honum sem gefur sínum börnum
örlátlega og framkvæmir það með þeim er Honum
þóknast, svo við njótum þeirrar náðar að vera í sigrin-
um sem tilheyrir Kristi einum. Hans er valdið og
mátturinn til þess að hjálpa öllum er leita lífsins. Sá
sem sagði verði ljós, kom til þess að gefa allt í ljósi
og sigri lífsins.
/ því var líj, og lífið var Ijós mannanna.
unar erum við uppfrædd um dóminn til fyrirdæming-
ar, dóm glötunarinnar. Þess vegna þurfum við að heyra
það sem Hann vill við okkur tala og festa það í
minni. En með fórn sinni keypti Guðssonurinn mönn-
unum fyrirgefningu og stendur sú undankoma frá
dóminum okkur til boða, frelsun frá valdi dauða og
glötunar. — Dýrð sé Guði -
Orð Krists og verk fluttu okkur Guðsríkið og dýrð
þess, sem Hann vann allt í fullkominni hlýðni við vilja
Föðurins. Hann gaf þau til eftirbreytni öllum sem
heyrandi vilja heyra og eru fyrir það heimamenn Guðs-
ríkisins, verkamenn í víngarði Drottins. Þeir vita að
Hann hefur fengið þeim sín verk til þess að þau séu
líf og máttur til mannanna.
Trúin er verkandi kraftur í fullkomnu verki öllum
til handa er Sannleikann elska - eins og Páll postuli
segir:
Því að ekki megnum við neitt gegn Sannleikanum, held-
ur fyrir Sarinleikann. (2.Kor.iy:8)
Andi Guðs starfar með og í þeim er Sannleikann
elska. Snúum okkur til Sannleikans. Jesús Kristur
sagði:
Ef þér standið stöðugir í Orði mínu, þá eruð þér sannar-
lega lœrisveinar mínir, og munið þekkja Sannleikann,
ogSannleikurinn mun gerajðurfrjálsa. (Jóh. 8:31-32).
Enginn í synd hefir eilíft líf. Kristur þekkti myrkrið Við biðjum í Krists stað: Látið sættast við Guð.
og vald þess og á enga hlutdeild í því. Okkur til viðvör- Kærleiksfórnina færði Guðssonurinn á krossinum til