Fagnaðarboði - 01.02.1989, Side 1
En leitið fyrst ríkis
Hans og réttlætis, og
þá mun allt þetta
veitast yður að auki
Náðarkall og þjónusta
Sallýjar Olsen
Við höfum heyrt um þau undur sem fylgdu í fótspor
Jesú og sagt er frá í Biblíunni, hvernig Hann uppfyllti
allar þarfir þeirra sem til Hans komu, mettaði mannfjöld-
ann og læknaði hverskonar sjúkdóma. En getum við
nú á dögum, í tækniþjóðfélagi nútímans, vænst máttar-
verka Hans á sama hátt?
Glögg merki þess sjást í starfí Sallýjar Olsen sem
hefur þjónað Guði í áratugi og Hann borið starfi henn-
ar vitni með kærleiksundrum sínum. Þannig sannar
Drottinn sig að vera ávallt hinn sami, / gær og í dag
og um allar aldirnar, til þeirra sem sinna boði Jesú
Krists og veita verkum Hans viðtöku.
Sallý er fædd í Bergen árið 1913 og missti hún föður
sinn fimm ára gömul. Eins og kunnugt er, var erfiður
tími í Noregi á árunum kringum 1920, svo ekkjunni
reyndist ekki kleift að hafa litlu dæturnar sínar hjá sér.
Sex eða sjö ára gömul var Sallý send burt til vanda-
lausra og dvaldist þar til tólf ára aldurs. Hún þekkir því
af eigin raun hvernig er að vera umkomulaust, fátækt
barn, en um þennan tíma í lífi sínu vill hún sem minnst
hugsa, vegna sárra minninga.
Sautján ára að aldri fór Sallý til New York og vann
þar í fyrstu við ýmiss konar heimilisstörf. A því tíma-
bili fann hún gjörla að Drottinn ætlaði henni sérstakt
verk að vinna. Þegar hún öðlaðist lifandi trú, hófst hin
mikla fórnarþjónusta, við að hjálpa öðrum. Starfsvett-
vangur hennar varð þá í fátækrahverfum borgarinnar,
en beindist æ meir að innflytjendum frá Puerto Rico
og Cuba. Um tíma starfaði hún meðal hættulegustu
aflarotamanna Chicago og Mexico og þeirra íbúa þess-
ara borga sem lifðu við hvað mesta örbirgð.
Dag einn var Sallý á bæn frammi fyrir Drottni sínum
og heyrði þá rödd sem sagði:
E)ýar Aafs/ns i>/ða eftír Orð/ mm.
Þetta var endurtekið aftur og aftur, svo hún fór að
biðja Guð að senda einhvern þangað. Og svarið kom:
ÞÚ skalt fara.
Eyjan sem Sallý var ætluð hét Puerto Rico og þangað
fór hún til starfa, án þess að kunna spænsku eða þekkja
nokkurn mann sem gæti liðsinnt henni.
Menn spyrja fullir undrunar hvernig svona nokkuð
eigi sér stað og svarið verður ótvírætt, að enn í dag
kallar Drottinn til sinna verka. Sallý fékk náð til að
hlýða kallinu og hefur vitjað fanga með boðun Fagnað-
arerindisins og verið sunnudagaskólakennari, auk þess
að stofna og reka heimili fyrir munaðarlaus börn. Þetta
verk ber þess vitni að hér var ekki um mannlega ráð-
stöfun að ræða, heldur kærleiksráð Guðs, í sigri Drott-
ins Jesú Krists. Árangur starfsins sýnir það svo ekki
verður um villst.
Hinir harðsvíruðustu glæpamenn hafa komist á réttan
kjöl undir fyrirbænum og kærleiksríkri leiðsögn Sallýjar,