Fagnaðarboði - 01.02.1989, Side 4

Fagnaðarboði - 01.02.1989, Side 4
4 FAGNAÐARBOÐI Þeir sem ekki þekkja þetta líf af eigin raun er ómögu- legt að gera sér það í hugarlund. Allt frá tímum þræla- haldsins virðist inngreypt í fólkið, að eini lífsmöguleiki þess sé að hlunnfara aðra og þykir því flestum sjálfsagt að stela frá nágrannanum sé þess nokkur kostur. Aðeins í hatrinu til hinna ríku stendur fólkið saman. Á ein- hvern hátt er lífið samt bærilegt svo lengi sem maður hefur heilsu, en sá sem veikist er troðinn niður og það hræðilegasta af öllu sem getur komið fyrir, er að verða holdsveikur. „Eg svalt oft heilu hungri, en vildi þó ekki stela”, sagði Rogelio. „Eg trúði því, að einhvern daginn mundi mér bjóðast starf, jafnvel þótt ég hefði enga menntun. Og það merkilega átti sér stað að þannig varð raun- veruleikinn. Þegar ég varð svo lánssamur að fá leigt hús með trégólfi, fannst mér sem ég ætti heilt konungs- ríki. Síðan kvæntist ég og við hjónin eignuðumst sex börn. Auk þess að geta framfleytt fjölskyldu minni var ég aflögufær með að senda svolitla þárupphæð til for- eldra minni í hverjum mánuði”. En svo kom reiðarslagið, holdsveikin sótti hann heim. Svo lengi sem nokkur kostur var ætlaði hann að halda því leyndu og reyndi eftir megni að hylja sárin með púðri. Hann vissi sem var að þegar þetta yrði uppvíst mundi honum verða sagt upp starfinu og hvernig gæti hann þá séð þölskyldu sinni farborða? Að lokum missti hann vinnuna, leitaði sér lækninga, en án árangurs. Nú var öll vön úti. En það sannaðist á honum eins og oft á erfiðum stund- um lífsins, að þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst. Sama dag og hann fékk þann úrskurð að ekki væri hægt að hjálpa honum, þá heyrði hann í ferðaútvarps- tæki sínu kvenrödd, sem talaði með erlendum hreim og boðaði Fagnaðarerindi Jesú Krists. Hún fullyrti að allir menn ættu von, sama hversu slæmt útlitið væri. „Orðin hittu mig beint í hjartastað og ég sannfærðist um að þau væru töluð til mín”, sagði hann. „Eg varð að ná fundi þessarar konu. Þegar ég hringdi dyrabjöll- unni heima hjá henni, kom hún sjálf til dyra. Mér eru ógleymanlegar móttökurnar sem ég mætti. Þrátt fyrir afmyndað andlit mitt af völdum holdsveikinnar þá beygði hún sig fram, kyssti mig á kinnina og þrýsti auk þess upptærða hönd mína, en þá hafði ég misst þrjá fingur. Við áttum saman bænarstund frammi fyrir Guði og ég gaf mig Honum á vald. Hann endurfæddi mig til lifandi vonar. Stuttu síðar fór ég svo á samkomu í Rio Piedras þar sem þjónar Drottins boðuðu Orðið og báðu fyrir sjúkum til lækninga. Kraftur Andans fór um allan líkama minn og ég læknaðist fullkomlega”, sagði Rog- elio. Þessi bróðir í Kristi fékk náð til ríkulegrar þjónustu á akri Drottins. Hann var í för með Sallý annað skiptið er hún kom til Islands. Auk þess var sonur hennar, Móses með í þeirri för, en hann er nú um tvítugt og er eina barnið sem Sallý hefur fengið gefins, þá aðeins- •viku gamlan. Hann hefur verið henni til mikillar gleði. Það sem hér hefur verið tekið saman um starfsferil Sallýjar Olsen er aðeins lítið brot af þeim kærleiksundrum Drottins Jesú Krists sem hún hefur orðið vottur að í sinni þjónustu og vitnað um í bréfum sínum. Nú gæti einhver spurt: Er það aðeins úti í hinum stóra heimi sem Drottinn okkar og Frelsari gerir sig kunnan í máttarverkum sínum? Nei, því fer víðsfjarri. Hann er ávallt hinn sami í kærleiksmætti sínum og býður enn eins og forðum: Far//) þi>/ og Ær/sf///') a/far þ/o)/r, shf/ðþá f/Z Naf//s Föð//r///s og So//ar///s og h’/zs He/Zaoa A///Za, og Æe/////r) þez'/zz að /za/r/a a/f'það, sezz/ eg /zef' /zoð/'ój)//r. Og fá, eg er zz/e)jð//r a//a áaga a/f f/Z e/zda rera/áar/mar. (Alaff. 2<f:2oJ Eg er í hópi þeirra sem get borið vitni um stórkost- legt máttarverk Drottins. Hann hafði sannfært mig um syndafyrirgefningu mína og endurfæðingu fyrir úthellt Sáttmálablóð Jesú Krists, mér til eilífs lífs. Svo veiktist ég og hafði ekki skilning á öðru en að leita manna ráða til hjálpar. Þegar engar líkur þóttu til bata eftir lengri tíma tilraunir var mér sagt að ég mundi ekki eiga langt eftir ólifað. Þá komu til mín systkini í Drottni sem báðu fyrir mér og ég varð heilbrigð, strax vinnufær og hefi verið það síðan. Þegar þetta átti sér stað var ég um þrítugt og nú eru liðin nær 60 ár frá þessu lækningarmáttarverki Drottins Jesú Krists á mér. Mörgum dásamlegum bænheyrslum hefi ég verið vottur að á þessu langa árabili. Eitt dæmi af mörgum er af 18 ára pilti sem hafði fæðst með annað augað al- gjörlega blint og nú var sjónin farin að daprast á hinu auganu. Kvöld nokkurt, í myrkri og regni, kom hann á heimili okkar og bar upp það erindi, að biðja um fyrirbæn. Og þá er þjónn Drottins hafði beðið fyrir piltinum, hélt hann hendinni fyrir augað sem hann hafði sjón á og hrópaði: „ÉG SÉ”! Niðurstaða rannsóknar læknisins sem hafði haft hann til eftirlits frá fæðingu var sú, að hann hefði 95% sjón á því auga sem hafði verið blint frá fæðingu. Þetta er aðeins eitt af fjölmörgum náðarlækningum, sem ég hefi

x

Fagnaðarboði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.