Fagnaðarboði - 01.02.1989, Blaðsíða 8

Fagnaðarboði - 01.02.1989, Blaðsíða 8
FAGNAÐARBOÐI 8 sinni er ég hafði notað tækifærin sem mér gáfust til að vitna fyrir samstarfsmönnum mínum. Guði sé lof, að þannig eru kristnir menn knúnir fram til þjónustu. Arið 1953 stofnaði Demos Shakarian samtök sem kölluðust Full Gospel Buisiness Men’s Fellowship Int- ernational. Eg var mjög hrifinn af hugmyndinni og tók heilshugar þátt í samstarfinu. Árið 1955 hlotnaðist mér sá heiður að stofna elleftu deild samtakanna, í Atlanta, Georgíu. Brátt varð ég svo framkvæmdastjóri fyrir Suðurríki Bandaríkjanna og stuttu síðar, varaforseti FGBMFI. Fyrir mér var þetta stórkostlegt tækifæri í þjónustu Drottins. Segja má að ég hafi verið dæmigerður fyrir hinn „ameríska óskadraum”, að koma sér vel áfram í lifinu. En mitt í allri velgengninni, glataður maður í syndunum - þekkti ekki hina sönnu auðlegð trúaðs manns í Jesú Kristi. I samtökum FGBMFI voru þúsundir manna sem áttu sér svipaða sögu og ég. Lánið lék við þá hið ytra, en tómleikinn í lífi þeirra var þeim hrelling. Þessi sama saga endurtekur sig aftur og aftur. En úr því Drottinn gat breytt mér, Tommy Ashcraft, þá megnar Hann í mætti sínum að breyta hverjum sem er. Á FGBMFI ráðstefnu árið 1982 var ég að heilsa upp á nokkra vini þegar einhver klappaði á öxl mér. Eg sneri mér við og horfði beint í augu Demosar Shakar- ian sem sagði: „Eg útnefni þig varaforseta samtak- anna” og hélt síðan á braut. Eg teygði mig í áttina til hans, bað hann að bíða andartak og sagði: „Við skulum biðja saman fyrir þessu og leita vilja Drottins”. En Demos hélt áfram og sagði: „Nei Tommy, Guð bauð mér að gera þetta. Hann hefur gefið mér vald til að framkvæma það og ég er að því”. Frá þessari stundu átti ég annríkara en nokkru sinni fyrr. Eg hef umsjón með aðalskrifstofu samtakanna og þjálfun leiðbeinenda fyrir þau um allan heim. Hin mikla útbreiðsla starfsins veldur því að ég þarf oft að fljúga milli landa. Nú höfum við deildir í 87 löndum og höldum heimsþing okkar meðal ýmissa þjóða, auk þinga í aðalstórborgum Bandaríkjanna. Þegar Demos getur ekki verið viðstaddur, eykur það Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6, Hafnarfirði. Afgreiðsla Fagnaðarboða er að Hverfis- götu 6B Hafnarfirði, sími 50077. - Ársgjald blaðsins 100 kr., en eintakið 33 kr. 3 blöð koma út á ári. enn á ábyrgð mína. Oft hefur hann beðið mig að vera fulltrúi sinn á hátíðlegum samkomum og við alls konar tækifæri. O hve ég þakka Guði fyrir öll árin, sem ég hef fengið að starfa með þessum blessaða þjóni Drott- ins. Umhyggja, skilningur og umfram allt kærleikur hans, hefur verið mér lærdómsríkt fordæmi. Stöðug- lyndi hans hefur verið þjónustunni styrkur og gleðigjafi í starfi. Er ég horfi út um gluggann, ber ein fjölfarnasta hrað- braut Orange County fyrir augu. Fánarnir minna mig á þær milljónir verslunarmanna út um allan heim, sem enn hafa ekki tekið á móti jesú Kristi sem Frelsara sín- um, eru jafn fjarri Honum og ég eitt sinn var. er eg /fíj'fídejd/ / ///oður/íf/, //fpaM eg þ/g, og áðfír e/i þfí Æo///sf a/ /z/o'ðfírÆ/J/d/, /je/gað/ eg þ/g; eg /ef/ áÆrarðað J//g Zz/ að i/era spá///a//fí þ/oáafí//a / fjere////á /:jJ Þetta voru Orð Guðs til Jeremía. Hið sama á við um mig - Drottinn hefur boðið mér að flytja Fagnaðarerind- ið til þjóðanna. Hann frelsaði mig, tilreiddi til þjónustu og úthlutaði mér starfi að sínum vilja. Vinur, hvernig er ástatt með þig ? Þekkir þú Jesúm Krist ? Ef svo er ekki, þá þarft þú þess með. Þr/ að Ma/zfís-Sofífír/fífí er Æo/////z/z fz/ að /ez/a að Az/zfí /j/záa og/re/sa það. (Lz/Æ. /ý:/oJ Þú skalt biðja Guð, að fyrirgefa þér syndirnar í Jesú Nafni og taka við Honum sem Frelsara þínum. Þz/z' að e/þfíjáZar /z/eð /zzfífí/zz þz/zazzz Drof/z/z Jeszit.’/zz og /.rz/zr z/zeð /farta þ/'/zz/, að Gað /jafz fíppz/aÆ/ð Ha/z/z/rá dauðfífí/, fízzzn/fí /o/j/fífí z/e/ða; þz/z' að fí/eð /Jaz/a/zfí er /ráað /z/re7//œ/zs, e/z z/zeð fízfífí/zz'fífí/zzjá/að /z//Já/prœðzs. fRo7/zr.io.y-zoJ (Lauslega pytt og endursagt úr tímaritinu Voice) Almennar samkomur Boðun Fagnaðarerindisins Hörgshlíð 12, Reykjavík Sunnudaga kl. 8 e.h Miðvikudaga kl. 8 e.h. 2. tbl. 1989 42. arg.

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.