Víkurfréttir - 12.01.2012, Side 8
8 FIMMTUdagUrInn 12. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Félagið mitt
Um þrjátíu til fjörutíu fé-lagar af 1,2 milljón manna
hreyfingu hittast reglulega á
Flughótelinu í Keflavík. Þau
eru hluti af 106 ára gömlum
félagsskap sem heitir Rótarý,
og heldur í dag úti starfsemi
í yfir 200 löndum víðsvegar
um heiminn. Í snjónum og
kuldanum milli jóla og nýárs
kippa sjö félagar klúbbsins sér
ekki upp við að hittast til að
segja mér frá Rótarý og það er
greinilegt að félagsskapurinn
skiptir þau miklu máli.
Paul P. Harris stofnaði Rótarý
í Chicago í Bandaríkjunum
snemma á síðustu öld. Hann vildi
skapa félagsskap fólks í hinum
ýmsu starfsgreinum sem hefði
þann vinalega anda sem hann
hafði upplifað í smábænum
þar sem hann ólst upp. Rótarý
hefur alltaf verið hugsað þannig
að það myndi tengslanet milli
ólíkra starfsstétta. Nafnið kemur
af því að fundum var róterað á
milli skrifstofa félagsmanna.
Hvað er það sem dregur
fólk að Rótarý?
Hjördís Árnadóttir var fyrsta
konan í Rótarýklúbbi Kefla-
víkur: „Það sem gerir Rótarý
svo skemmtilegt, fyrir utan
tengslanetið, er að ef þú ert
orðinn Rótarý félagi einhvers
staðar, þá geturðu gengið inn
í hvaða klúbb í heiminum
sem er og farið á fund“.
Kristinn Jóhannesson var for-
seti Rótarýklúbbs Keflavíkur á
síðasta starfsári og hann segir
það einmitt mjög skemmtilegt
að fara á fundi erlendis.
Jónína Ágústsdóttir segir það
opna dyrnar að samfélaginu að
ganga í Rótarý. Hún flutti sjálf til
Reykjanesbæjar fyrir nokkrum
árum og Kristinn hefur sömu
sögu að segja: „Tilgangurinn
með að fara í Rótarý var að
komast inn í samfélagið, af því
ég var aðfluttur. Ég varð að gera
eitthvað til að vera ekki „bara
aðfluttur“ og það svínvirkaði að
ganga í Rótarý klúbbinn“. Það
er greinilegt á Rótarý fólki að
það myndast sterk tengsl meðal
félaga. „Manni þykir vænt um
hópinn sinn,“ segir Hjördís.
Jón Axelsson og Agnar Guð-
mundsson eru sammála um að
það sem hafi dregið þá að Rótarý,
og sem er eitt aðaleinkenni
starfsins, séu fyrirlestrarnir. Á
hvern fund fá þau fyrirlesara
sem fundnir eru í tengslaneti
félaga. Jón: „Maður fær það sem
er að gerast beint í æð. Maður
fær ekki almennt tækifæri til
að hitta margt af þessu fólki.“.
Fjölbreytileikinn er fólki líka hug-
leikinn. Fólk kemur úr ólíkum
áttum og er á ólíkum aldri.
Yngsti félaginn í klúbbnum,
Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir,
kann að meta að aldursbilið er
breitt - félagar í klúbbnum eru
frá rúmlega þrítugu og Jóhann
Pétursson, elsti félaginn er 91
árs og stofnfélagi í klúbbnum.
Fjölbreytileikinn sýnir sig bæði
í félögunum og fyrirlesurunum.
Ragnheiður heldur áfram „Fyrir-
lestrarnir eru oft um hluti sem
maður myndi aldrei kynna sér
sjálfur. Maður er oft í einsleitum
hóp dagsdaglega en maður
verður sterkari einstaklingur
þegar maður kynnist fjölbreyttari
heimi. Maður kynnist hafnar-
málastjórum, hagstofustjórum,
mótorhjólafólki, ráðherrum og
vísindamönnum... þetta er svona
skóli lífsins sem maður les ekki
í einhverri bók“. Margir fyrir-
lestrarnir myndu sóma sér vel
í virtustu háskólum, segir Jón
Axels. Hann segir þetta líka gott
tækifæri fyrir mann sjálfan að
þjálfa sig í að standa upp og tala
fyrir fólk. Kristinn tekur undir
það og segist hafa verið mjög
feiminn þegar hann byrjaði í
klúbbnum en að félagsstarfið hafi
eflt hann mikið í því að standa
upp og segja sína skoðun.
Þau segja félagsskapinn óform-
legan, það sé létt yfir þessu
og ekkert voðalega hátíðlegt.
Auk funda sé t.d. farið í
ýmsar skemmtilegar ferðir,
þar sem makar og fjölskyldan
eru boðin með, gróður-
setningar, grill, jeppaferðir
og fleiri skemmtilegheit.
Blaðamaður spyr þau hvort
maður sé svo dreginn í stjórn
um leið og maður mætir. Nei,
það er ekki verið að draga mann
í stjórn um leið og maður rekur
inn tærnar. Starfsaldur ræður til
um stjórnarstörf og enginn þarf
að taka neitt að sér sem hann er
ekki tilbúinn til. Það er heldur
ekkert sölustarf. Rótarý styrkir
ýmis góð málefni, en það er gert
með hóflegum félagsgjöldum.
Rótarý starfar samkvæmt þjón-
ustuhugsjón, eða „Service Be-
fore Self “. Rótarý styrkir ýmis
verkefni og tekur m.a. þátt í
alþjóðlegu verkefni með Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni og fleirum
til að útrýma lömunarveiki.
Rótarý veitir einnig styrki til
afburða tónlistarfólks og náms-
styrki. Alþjóðahreyfingin hefur
m.a. styrkt 10 íslenskar konur til
meistaranáms í friðarfræðum.
Félagarnir eru sammála um
að það gefi þeim heilmikið að
gefa af sér með þessum hætti.
Rótarýklúbbur Keflavíkur er
einnig stofnandi og verndari
Krabbameinsfélags Suðurnesja
og Björgin, geðræktarmið-
stöð Suðurnesja, hefur einnig
notið stuðnings klúbbsins.
Rótarý stendur einnig fyrir
ýmsum skiptiprógrömmum og
heimsóknum fólks á milli heims-
hluta. Tilgangurinn með þeim
hluta starfsins er að minnka
fordóma í heiminum með al-
þjóðlegum samskiptum.
Fyrir hverja er Rótarý?
Rótarý er fyrir alla sem hafa
áhuga, segja þau. Þau segjast vera
að átta sig á að fólk viti kannski
ekki nóg um starfið og þess vegna
langar þau að vekja athygli á
því og gefa fólki tækifæri til að
kynna sér það. Félagar geta boðið
með sér á fundi, þannig að ef
fólk þekkir einhvern í klúbbnum
er um að gera að fá að koma
með við tækifæri. Klúbburinn
er einnig með Facebook síðu
(facebook.com/RotaryKeflavikur
sem er um að gera að smella
„like“ á en einnig getur fólk haft
samband við Jón Björn Sigtryggs-
son, forseta klúbbsins, ef það
hefur áhuga á að kynna sér starf-
semina. Síminn hjá honum er 897
8355 og einnig má senda honum
tölvupóst: jonbjorn@jonbjorn.is.
Á síðasta jólafundi Kvenfélags Njarðvíkur var ákveðið að
veita einni milljón króna í styrk
til reksturs Virkjunar. Að sögn
Gunnars Halldórs Gunnarssonar
forstöðumanns þá kom þessi frétt
nú um jólin eins og himnasending
því það hefur reynst enn erfiðara
að fjármagna rekstur Virkjunar
undanfarið vegna samdráttar
hjá flestum þeim aðilum sem sjá
Virkjun fyrir rekstrarfé.
Gunnar Halldór segir það vera
sameiginlegt verkefni allra á Suður-
nesjum að aðstoða og styðja at-
vinnuleitendur enda séu félagslegar
afleiðingar atvinnuleysis marg-
þættar eins og kunnugt er. Starfið
í haust var mjög blómlegt og fjöldi
manns sóttu margvísleg námskeið
og hópastarf í Virkjun.
Heimsóknir í Virkjun voru sam-
tals 15.000 á síðasta ári og hefur
þeim farið fjölgandi á hverju ári,
sem er til marks um þörfina á slíkri
starfsemi hér á Suðurnesjum. Því
sé svona styrkur og viðurkenn-
ing mjög mikilvæg fyrir starfsemi
Virkjunar því það sé hvatning til að
halda áfram á sömu braut. Það er
jú öllum nauðsynlegt að fá klapp á
bakið öðru hvoru.
Virkjun hefur frá stofnun verið
mjög mikilvægur hlekkur í stuðn-
ingi við þá fjölmörgu sem eru án
atvinnu á Suðurnesjum. Hins vegar
skal tekið fram að allir eru vel-
komnir í Virkjun, atvinnuleitendur,
atvinnulausir, bótaþegar, heldra fólk
og allir þeir sem vantar verkefni og
virkni á daginn. Tekist hefur víðtæk
samstaða um Virkjun og er óhætt
að segja að starfið hafi að mestu
leyti gengið upp á þessu ári miðað
við þær forsendur sem lagt var af
stað með. Virkjun hefur víða vakið
mikla athygli vegna þess hversu
einstök starfsemin er. Virkjun eflir
fólk með því að halda uppi öflugu
hópa- og námskeiðahaldi þar sem
hópur sjálfboðaliða leiðbeinir og
fræða. Virkjun er opin frá klukkan
08:00 til 16:00 og margvísleg dag-
skrá í boði alla virka daga vikunnar
fyrir fjölbreyttan notendahóp.
Virkjun mannauðs þakkar Kven-
félagi Njarðvíkur þetta rausnarlega
framlag sem er mikilvægt lóð á
vogaskálarnar við að halda starf-
seminni gangandi enn um stund.
Hluti af góðum hóp
Rótarýklúbbur
Keflavíkur
Veitti Virkjun mannauðs á
Reykjanesi eina milljón í styrk
›› Kvenfélag Njarðvíkur:
– til reksturs Virkjunar
Við óskum ykkur
gleðilegs nýs árs
Þökkum frábærar viðtökur, hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.
Minnum á opnuartímann
Virkir dagar 10:00 - 17:00
Fimmtudagar 10:00 - 20:00 (eftir pöntunum)
Hildur, Mekkin og Fanney María
DRAUMAHÁR
s. 421 1555 - Keilisbraut 771
(Sama húsnæði og Langbest)
F.v. Jón Björn Sigtryggsson, Hjördís
Árnadóttir, Kristinn Jóhannesson,
Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, Agnar
Guðmundsson og Jónína Ágústsdóttir.
Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir og Jónína Ágústsdóttir.
Jón Axelsson.
Ingólfur Bárðarson
-Kveðja frá Njarðvíkingi
Félagar Ingólfs Bárðarsonar í S j á l f s t æ ð i s f é l a g i n u
Njarðvíkingi minnast hans með
miklum söknuði og eftirsjá. Frá
stofnun félagsins 7. mars
1954 var Ingólfur traustur og
duglegur að starfa fyrir félagið
allt til hinsta dags og var ávallt
trúr stefnu og grunngildum
Sjálfstæðisflokksins um frelsi einstaklingsins til athafna og gjörða.
Ingólfur gegndi fjölda starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ber þar helst
að nefna setu hans í bæjarstjórn Njarðvíkur í 12 ár og þar af sem forseti
bæjarstjórnar í 4 ár, í stjórn og sem stjórnarformaður Hitaveitu Suðurnesja
ásamt mörgum trúnaðarstöfum í nefndum og ráðum bæjarins. Ingólfur
var stuðningsmaður sameiningar bæjarfélaganna Njarðvíkur, Keflavíkur
og Hafna og lagði því sitt að mörkum að stofnun Reykjanesbæjar.
Það er mikill missir fyrir Sjálfstæðisfélagið Njarðvíking að góður drengur
sem Ingólfur var sé fallinn frá og skilur hann eftir sig stórt skarð, enda
starfaði hann sem formaður lengst allra, eða frá 1994 – 2004. Þekking
og reynsla Ingólfs var okkur félögum hans í Njarðvíkingi dýrmæt og
kærkomin og gerði okkur að betri mönnum.
Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur sendir Halldóru og fjölskyldunni allri
dýpstu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum okkar góða félaga Ingólf
Bárðarson með þakklæti.
Fyrir hönd Sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings,
Karvel Gränz formaður.
Frá útför Ingólfs Bárðarsonar frá
Ytri Njarðvíkurkirkju sl. föstudag.