Víkurfréttir - 12.01.2012, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 12. janúar 2012
Sækja skal um störf á www.securitas.is til 20. janúar 2012 nk.
Allir umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði,
prófskírteinum og gildu ökuskírteini í umsóknarferlinu, verði þess
óskað.
Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega og vera
tilbúnir til þess að læra nýja og spennandi hluti.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Hafliðason, þjónustustjóri
öryggisgæslu í gagnaverinu; styrmir@securitas.is
ATVINNA
Helstu verkefni:
• Staðbundin öryggisgæsla í
gagnaveri Verne að Ásbrú.
• Vaktavinna.
• Eftirlit með umferð manna
og bíla inn og út af
svæðinu, eftirlitsferðir, vöktun
eftirlitsmyndavéla, útgáfa
aðgangsheimilda o.fl.
Hæfniskröfur:
• Iðn- eða framhaldsskóla-
menntun, sem nýtist í starfi
• 25 ára aldurstakmark
• Rík þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum
• Mjög góð íslensku og
enskukunnátta
• Góð almenn tölvukunnátta
Securitas Reykjanesi
Hafnargötu 60, 230 Reykjanesbæ, s. 580 7000
ÖRYGGISVÖRÐUR
21. janúar 2012, Íþróttahúsinu í Njarðvík
Maggi Þóris á Réttinum sér um matinn
Veislustjóri:
Hinn eini sanni Örvar Kristjánsson
Skemmtiatriði, fjöldasöngur, annáll, happdrætti og Valdimar tekur lagið.
Hljómsveitin Hobbitarnir halda uppi stuði á balli
Húsið opnar 19:00 borðhald hefst kl 20:00
Miðaverð aðeins 6.500 kr.
Miðapantanir
í síma 864-2895 og 669-0088
eða umfn@umfn.is
Þorrablót UMFN
Sk
or
um
á
a
lla
Nj
ar
ðv
íki
ng
a
að
fj
öl
m
en
na
!
Jónas E. Ólafsson, Guðrún Ármannsdóttir,
Sigurður M. Ólafsson, Sesselja Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Alda Jónasdóttir,
Vesturgötu 17, Keflavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, sunnudaginn 8. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 17. janúar kl. 13:00.
Fyrr í vikunni var dregið í 8-liða úrslitum Powerade-
bikarsins í körfubolta. Það verður
áhugaverður nágrannaslagur
hjá stelpunum þar sem Njarðvík
og Keflavík mætast, en þessi lið
háðu skemmtilega rimmu um
Íslandsmeistaratitilinn á síðasta
ári og verma tvö efstu sæti
deildarinnar um þessar mundir.
Grindvíkingar eru svo enn með
hjá konunum og þær mæta
Stjörnunni. Karlalið Grindvíkinga
féll úr leik eftir ósigur gegn KR
síðastliðinn mánudag.
Hjá körlunum leika Keflvíkingar og
Njarðvíkingar á útivelli. Keflvíkingar
fara í Grafarvoginn og mæta Fjölni
á meðan Njarðvíkingar heimsækja
Sauðkræklinga fyrir norðan. Leikið
verður dagana 21. – 23. janúar.
Alexander Magnússon, hægri bakvörður Grindvíkinga
í Pepsi-deildinni í knattspyrnu,
heldur til Noregs í dag þar sem
hann verður til skoðunar hjá
norska úr valsdei ldarl iðinu
Sogndal.
Sogndal vildi fá Alexander að
láni síðastliðið sumar en því var
hafnað en nú hefur félagið óskað
eftir því að fá hann út til reynslu.
„Ég held að það sé draumur flestra
sem eru í fótboltanum að komast
út og taka þar með næsta skref,“
segir Alexander sem telur sig vera
kláran í að taka þann slag. Hann
segist ekki vita mikið um klúbbinn
Sogndal sem slíkan, annað en það
að þetta sé lítill fjölskylduklúbbur
sem leikur í úrvalsdeild. „Þarna í
úrvalsdeildinni í Noregi eru önnur
viðmið en hérna heima og gaman
verður að prófa að spreyta sig
þarna úti.“
Áhugi frá fleiri klúbbum
Alexander mun leika með Sogndal
á æfingarmóti í Bergen nú um
helgina þar sem hann gæti vakið
athygli félaga á sér en tvö önnur
félög í Noregi hafa spurst fyrir um
Alexander. „Ég veit ekki hvaða félög
það eru en umboðsmaður tjáði mér
af einhverjum áhuga, sem er bara
jákvætt,“ sagði Alexander í samtali
við Víkurfréttir.
Undirbúningstímabilið er þegar
hafið hérlendis og hann segir
það spennandi að æfa undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar sem
tók við þjálfun Grindvíkinga
fyrir skömmu. „Guðjón hefur
verið að prófa mig á miðjunni
í æfingarleikjum og það hefur
gengið mjög vel,“ en Alexander lék
þar á sínum yngri árum þó svo að
hann hafi slegið í gegn sem einn af
betri bakvörðum Íslandsmótsins
í sumar. Hann segist opinn fyrir
því að leika hinar ýmsu stöður og
telur fínt að sem mest fjölbreytni
sé í boði. Alexander sem er 22 ára
gamall var einn af máttarstólpum
Grindvíkinga á síðasta tímabili
og ljóst að Grindvíkingar verða
fyrir mikilli blóðtöku ef svo fer að
Alexander ílengist í Noregi.
Alexander til Noregs
Áhugaverður
nágrannaslagur
hjá stelpunum
Frægt víti sem Alexander tók fyrir
Grindavík gegn Þór á sl. sumri.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson
Auglýsingasíminn er 421 0001