Víkurfréttir - 27.09.2012, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 27. september 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR Í
HEILSU- OG
FORVARNARVIKU
1. - 7. OKTÓBER 2012
Bókmenntaganga laugardaginn 6. október kl. 11:00-
12:30. Bókasafn Reykjanesbæjar býður bæjarbúum í
bókmenntagöngu sem hefst og lýkur á safninu. Lesið
verður úr völdum bókmenntaverkum við þá staði sem
verkin tengjast. Boðið verður upp á heilnæma
hressingu í lok göngu. Götukort verður inni á safninu
alla vikuna sem sýnir tengslin myndrænt.
HEILSU- OG FOR-
VARNARVIKA Í
REYKJANESBÆ
Dagana 1.-7. október verður blásið til heilsu- og
forvarnarviku í Reykjanesbæ í fimmta skipti.
Dagskrána er hægt að nálgast á vef Reykjanesbæjar
eða á síðu bæjarins á Facebook. Fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir eru að taka þátt og verða ýmis tilboð á
heilsutengdum vörum í boði auk fjölbreyttrar dagskrár.
ELDHUGINN HELGI S.
Sýningin um Keflvíkinginn Helga S. Jónsson stendur
enn yfir í Bíósal Duushúsa.
Sýningin er samstarfsverkefni Byggðasafnsins,
Listasafnsins og vina og vandamanna Helga.
Opið virka daga kl. 12:00 - 17:00, helgar 13:00 - 17:00.
Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur, heyrn@heyrn.is
Tímapantanir - 534 9600
Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyrnarfræðingur
veitir faglega ráðgjöf
Nánari upplýsingar
www.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Kæru Suðurnesjamenn
Verið velkomin
Verðum á Nesvöllum í Reykjanesbæ
föstudaginn 12. október
FRÉTTIR
J Frá framkvæmdum við Keflavíkurkirkju.
RÉTTARSTEMMNING
Þórkötlustaðaréttir fóru fram á sunnudag í rigningarveðri. En Grindvíkingar og gestir létu það ekki á sig fá og mættu vel í rétt-
irnar að vanda þar sem grindvískir bændur ráku féð í réttirnar og
drógu í dilka. Það var heldur betur handagangur í öskjunni en reyndar
var á köflum fleira fólk en fé.
Boðið var upp á haustmarkað handverksfólks og hressingu fyrir gesti og
gangandi. Einhverjir nýttu sér nýja göngustíginn austur í Þórkötlustaða-
hverfi en blautviðrið setti óneitanlega strik í reikninginn.
Birtir yfir Keflavíkurkirkju
Framkvæmdir við Keflavíkurkirkju standa nú yfir. Allar innréttingar hafa verið teknar út úr
kirkjuskipinu, s.s. panelklæðningar af veggjum,
bekkir og gólfefni. Þá hafa steindir gluggar verið
teknir úr kirkjunni en sú aðgerð er umdeild og
skiptar skoðanir um hana á meðal sóknarbarna.
Eftir að steindu gluggarnir voru teknir úr kirkjunni
hefur birt mjög yfir kirkjuskipinu þegar dagsljósið fær
að flæða inn um gluggana. Þegar framkvæmdum lýkur
verður kirkjan komin eins nálægt upprunalegu útliti
og mögulegt er miðað við nútíma kröfur.
Öllum framkvæmdum á að vera lokið við kirkjuna
fyrir 100 ára vígsluafmæli hennar sem verður í febrúar
árið 2015.
Hádegisbrunch að hætti mat-reiðslumeistara Bláa Lónsins
verður í boði laugardaginn 29. sept-
ember kl 12.00 í Bláa Lóninu.
Öll innkoma vegna viðburðarins
rennur til Íþróttasambands fatlaðra.
Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna,
1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt
fyrir 6 ára og yngri. Boðskort í Bláa
Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem
bóka fyrir kl. 16.00 föstudaginn 28.
september.
Ólympíufararnir verða á staðnum
og söngkonan vinsæla, Bríet Sunna,
mun flytja nokkur lög.
Bláa Lónið og Íþróttasamband Fatl-
aðra gerðu með sér samstarfssamning
fyrir Ólympíumót Fatlaðra í London í
sumar. Samningurinn er til fjögurra
ára og gildir fram yfir Ólympíumót
Fatlaðra í Ríó 2016.
Hádegisbrunch til
styrktar Íþrótta-
sambandi fatlaðra
n Bláa lónið:
ÍAV var með lægsta tilboðið í annan áfanga hjúkrunarheimilis
í Reykjanesbæ en sjö tilboð bárust
og voru tilboð opnuð sl. mánudag.
Tilboð ÍAV hljóðar upp á 348 millj.
króna sem er 73,58% af kostnaðar-
áætlun en í þessum áfanga verður
unnið við uppsteypu og frágang
utanhúss.
Næst lægsta tilboðið var frá Hjalta
Guðmundssyni sem var upp á 75%
af kostnaðaráætlun sem hljóðar upp
á 459 millj. kr.
Tilboðin sem bárust voru eftirfar-
andi:
ÍAV 338.044.694 73,58%
Hjalti Guðmundss. 345.380.502 75,18%
JÁ Verk 380.900.000 82,9%
Húsagerðin 382.260.700 83,2%
Atafl 385.396.103 83,9%
Eykt 399.375.224 86,9%
Ístak 399.563.210 87.0%
Unnið veður í yfirferð tilboða næstu
daga.
Sjö tilboð bárust
í 2. áfanga hjúkr-
unarheimilis