Víkurfréttir - 27.09.2012, Síða 10
fimmtudagurinn 27. september 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
NÁMSKEIÐ UM
UPPELDI BARNA
MEÐ ADHD
Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar auglýsir námskeið
fyrir foreldra um uppeldi barna með ADHD.
Námskeiðið er hannað til að hjálpa foreldrum að
tileinka sér gagnreyndar uppeldisaðferðir til að takast
á við vandamál sem algeng eru hjá börnum með ADHD.
Æskilegt er að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrinum 5-12
ára sem greind hafa verið með athyglisbrest með eða
án ofvirkni (ADHD/ADD) og eru ekki með alvarlegar
eða fjölbreyttar fylgiraskanir.
Námskeiðið er 12 klst og skiptist í 6 hluta, í tvo tíma í
senn. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 16. október
kl.19:30-21:30 og kennt verður vikulega í fyrstu fimm
skiptin en tvær vikur eru á milli næstsíðasta og
síðasta tíma sem verður 27. nóvember. Kennt verður í
Holtaskóla. Þátttökugjald er 3000 kr fyrir einstaklinga
og 5000 kr fyrir pör.
Skráning fer fram í síma 421-6700 og
skráningu lýkur 8. október
Leiðbeinendur: Agnes Björg Tryggvadóttir
og Sigurður Þ. Þorsteinsson, sálfræðingar
BREYTING Á
AÐALSKIPULAGI
AUGLÝSING
Um óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024
vegna breytingar á verslunar- og þjónustusvæði VÞ5 sunnan Fitja
vegna netþjónabúa og gagnavera.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn
Reykjanesbæjar þann 18. september 2012 samþykkt óverulega
breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.
Breytingin felst í því að orðalagi er breytt í kafla 3. 5. 2 í greinagerð með
Aðalskipulagi undir liðnum VÞ5 Sunnan Fitja. Netþjónabúum og
gagnaverum er bætt inn í texta.
Málsmeðferð var í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010
Reykjanesbæ 19. september 2012.
Skipulagsfulltrúi
FRÁBÆRT
ATVINNUTÆKIFÆRI
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna er
Fiskbúðin Vík í Keflavík til sölu.
Nánari upplýsingar í síma 898 4694
Mikill kvennafans verður í Reykjanesbæ um helgina þegar 36. landsþing Kvenfélagasam-
bands Íslands verður haldið í Kirkjulundi, safnaðar-
heimili Keflavíkurkirkju dagana 28. til 30. septem-
ber. Gert er ráð fyrir að um 200 konur sæki þingið
alls staðar að af landinu. Gestgjafar landsþingsins
er Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjósarsýslu,
KSGK. Undir þeim merkjum starfa 10 kvenfélög og
hafa undirbúningsnefnd og kvenfélagskonur haft
í nógu að snúast. Víkurfréttir hittu að máli þrjár
kvenfélagskonur, þær Salome Kristinsdóttur, Fríðu
Bjarnadóttur og Ínu D. Jónsdóttur, sem hafa verið
að undirbúa þingið.
Yfirgripsmikil dagskrá
Yfirskrift landsþingsins í Keflavík er „Félagsauður og
heilsa - hönd í hönd“. Undirbúningur fyrir þingið
hefur staðið í um ár, enda að mörgu að hyggja. Dag-
skráin er yfirgripsmikil en þar verða m.a. flutt nokkur
framsöguerindi. Una María Óskarsdóttir, varafor-
seti Kvenfélagasambands Íslands mun flytja erindið
„Félagsauður, kvenfélagastarf og heilsa“. Jóhann Ingi
Gunnarsson, sálfræðingur, flytur erindið „Þú getur
þetta. Hver sagði að þetta yrði auðvelt?“. Þá flytur Guð-
rún Jónsdóttir frá Stígamótum erindið „Frelsi kvenna
til athafna og að fylgja draumum sínum til að breyta og
bæta samfélagið“.
Kosið um nýjan formann
Þær Salome, Ína og Fríða sögðu að mikil vinna liggi á
bak við þingstörfin en í stað hefðbundins hópastarfs nú
verði unnið með svokallaða „Open space-aðferð“ sem
er tækni til að nota í breiðum og drífandi hóp þar sem
tekist er á við margvísleg og hvetjandi viðfangsefni. Á
þinginu verður kosið til forseta KÍ. Formaður KSGK,
Sigríður Finnbjörnsdóttir, og varaforseti KÍ, Una María
Óskarsdóttir, gefa báðar kost á sér en fráfarandi forseti
er Sigurlaug Viborg. Landsþing er haldið 3 hvert ár.
Hjá Kvenfélagi Keflavíkur eru haldin skemmtikvöld
og þá er alltaf haldið jólabingó og páskabingó. Þá eru
haldnir fræðslufundir og einnig tískusýningar. Ein af
fjáröflunum Kvenfélags Keflavíkur er árleg aðventuhá-
tíð fyrir eldra fólk í bænum. Gestir aðventuhátíðar-
innar borga ekki neitt en kvenfélagskonur sækja styrki
víða til að halda hátíðina.
Félagsfundi frestað um viku
Starfið hjá Kvenfélagi Keflavíkur fer fram í húsi Rauða
krossins við Iðavelli en þar heldur félagið sína fimm
fundi á ári. Byrjað er í október og fundað einu sinni í
mánuði fram í desember þegar jólafundurinn er hald-
inn. Í janúar er fundarfrí en byrjað aftur í febrúar og
fundað þá og í mars. Í apríl er svo árlegur hattafundur
félagsins. Þá heldur félagið 17. júní kaffi og fer einnig í
eina góða ferð á ári til að efla félagsandann.
Vegna landsþingsins um komandi helgi er október-
fundi Kvenfélags Keflavíkur frestað um eina viku og
verður haldinn 8. október. Félagskonur eru hvattar til
að mæta og taka með sér gesti.
Móttaka í Víkingaheimum
Svo við snúum okkur aftur að landsþinginu um kom-
andi helgi, þá vilja þær stöllur koma á framfæri sérstöku
þakklæti til Árna Sigfússonar bæjarstjóra og Valgerðar
Guðmundsdóttur menningarfulltrúa Reykjanesbæjar
fyrir þeirra aðstoð. Árni verður með móttöku í Vík-
ingaheimum á laugardaginn. Þá vilja þær einnig koma
á framfæri þökkum til allra sem gáfu gjafir sem verða í
happdrætti á skemmtikvöldi þingsins.
Nú er einn enn heiðursborgarinn fall-
inn frá, Karl Sigurbergsson skipstjóri
með meiru. Hann var svo hraustur alla
tíð og hugsaði líka vel um heilsu sína.
Að sjá hann beinan í baki ganga fyrir
gönguhópnum var yndislegt og vita
það að hann var á nítugasta ári.
Ég ætlaði að vera með þeim fyrir
nokkrum árum síðan en gafst upp eftir
nokkur skipti, hann var svo stórstígur.
Ég gat því miður ekki verið við jarðar-
förina, var að gera annað, svo ég fór
heim til Lóu minnar til að votta henni samúð okkar
Ölla.
Veikindi hans stóðu stutt. Hann hefði ekki viljað
langt dauðastríð ef ég hef þekkt hann rétt. Lóa mín
sagði mér að hann hefði viljað vera heima og hringdi
í hana og sagðist vera útskrifaður af sjúkrahús-
inu. Stuttu seinna heyrir hún umgang
niðri í gangi og fer fram að gá. Þá situr
maðurinn hennar í stiganum orðinn
þreyttur og segir við sína góðu konu:
Ég er kominn heim Lóa mín, heldurðu
að þú lánir mér öxl til að styðja mig við.
Ef þetta lýsir ekki sambandi þessara
elskulegu hjóna. Svona voru þau, virð-
ing, vinátta og ást fylgdi þeim ávallt.
Lóa var skólasystir Örlygs mannsins
míns. Hann var alltaf svolítið skotinn
í henni sem er mjög skiljanlegt, hún er
svo falleg. Að endingu vil ég þakka þér
fyrir spilamennskuna í gegnum árin. Það var aldrei
lognmolla í kringum þig vinur. Ég óska þér Lóa mín
og fjölskyldunni allri Guðs blessunar. Guð styrki
ykkur í sorginni.
Þess óska þínir vinir,
Erna og Örlygur Þorvaldsson.
FÉLAGSMÁL
J Kvenfélagskonurnar Salome, Fríða og Ína.
200 kvenfélagskonur
funda í Reykjanesbæ
Karl Sigurbergsson - minningarorð
n 36. landsþing Kvenfélagasambands Íslands haldið í Kirkjulundi: