Víkurfréttir - 27.09.2012, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. september 2012 15
Kynningarfundur
á Nesvöllum fimmtudaginn 27. september kl. 16:00.
Árið 2012 er Ár aldraðra í Evrópu
Mánudaginn 1. október er Dagur aldraðra.
Þá heimsækja eldri borgarar grunnskólana á Suðurnesjum.
Tilgangurinn er gagnkvæmur til að efla skilning á högum
ungra sem aldna.
Sýnum samhug og fjölmennum á þennan kynningarfund.
Tökum þátt í þessu ævintýri
NÁMSKEIÐ
Spennandi námskeið:
Vélstjórnarnám – smáskip með vélarafli <750 kw
Dagnámskeið: tvö pláss laus.
Tími: 1. - 12. okt. kl. 9:00-15:40 virka daga.
Kvöldnámskeið:
Tími: kl. 17:30 - 21:40 virka daga og 6. , 7. og 13. okt. kl. 9:45 til 15:40.
Skipstjórn smáskipa < 12m (pungapróf ).
Tími: Hefst 1. okt. og kennt í 5 vikur eftir hádegi virka daga.
Upplýsingar og skráning í síma 4125968 eða
tölvupósti nannabara@fiskt.is
Niðurföll og rennur
í baðherbergi EVIDRAIN
Mikið úrval
– margar stærðir
COMPACT VERA 30cm
9.590,-
AQUA 35cm
13.990,-
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
PROLINE NOVA 60 cm
29.900,-
Fyrir leik Keflavíkur og Breiðabliks minntust Keflvíkingar framherjans og landsliðsmannsins
Ragnars Margeirssonar en hann lést fyrir tíu árum
síðan og hefði orðið fimmtugur í sumar.
Leikmenn Keflavíkur komu inn á knattspyrnuvöllinn
í bol með mynd af Ragnari. Þá var flutt stutt tala um
feril Ragnars en hann lék lengst af með Keflavík en
einnig með KR og Fram á Íslandi. Ragnar átti einnig
atvinnumannsferil í Belgíu og víðar. Hann skoraði 83
mörk fyrir Keflavík í 224 leikjum og varð bikarmeistari
með Fram. Þá lék hann 46 A-landsleiki og skoraði í
þeim 5 mörk og 21 unglingalandsleik þar sem hann
skoraði 7 mörk.
SPORTIÐ
RagnaRs MaRgeiRssonaR Minnst
1962 - 2002
Víkurfréttir leita að myndum frá Keflavík á ár-unum 1960 til 1970 til að nota í myndskreytingu
á verkefni sem unnið er að. Nú er leitað til lesenda
með það hvort þeir eigi ekki í fórum sínum myndir
sem passað geta við eftirfarandi lýsingar. Þetta eru
myndir sem liggja í gömlum myndamöppum. Þeir
sem eiga myndir og vilja leyfa okkur afnot af þeim
eru hvattir til að hafa samband við Hilmar Braga hjá
Víkurfréttum í síma 421 0002 eða með tölvupósti á
vf@vf.is fyrir lok þessa mánaðar. Víkurfréttir munu
bjóða upp á aðstoð við að skanna myndirnar inn.
Myndir sem vantar frá
árunum 1960-70 eru:
-Skátaskemmtun í Félagsbíó.
-Malargötur í Keflavík / pissubíllinn.
-Sparisjóðurinn á Suðurgötu, sá gamli rauði.
-Kröfuganga 1. maí á Hafnargötu Keflavík.
-Leikfélag Keflavíkur, gömul leiksviðsmynd frá
þessum árum, sviðsleikrit frá fyrstu árum félagsins.
-Götumynd úr hverfinu Háholti og þar uppfrá.
-Gömul mynd af kofum eða smíðahverfi eins
og Keflavíkurbær bauð börnum upp á.
-Hestastóð eða kindahjörð í lausa-
göngu í bænum okkar Keflavík.
-Allskonar hljómsveitir eða Hljómar
að spila í Krossinum.
-JO „Kanabílnúmer“ á götu í Keflavík.
-„Kanaruslahaugarnir“ og/eða jólaleg
mynd tengd Kananum í Keflavík.
-Gömlu stóru stál-ruslatunnurnar sem voru í Keflavík.
-Ljósmynd úr gömlu kartöflugörð-
unum í Keflavík úti í Gróf.
-Sláturgerð í heimahúsi.
-Mynd úr berjamó.
-Gömul skólamynd af Myllubakka-
skóla / Barnaskóla Keflavíkur.
-UNGÓ, gamla félagsheimilið Hafnargötu.
-Sundhöll Keflavíkur, gamla laugin
frá árunum 1960-70.
-Jólatrésskemmtun frá þessum árum.
-Tónlistarskóli Keflavíkur á árunum 1960-70.
KeflavíKurmyndir
frá 1960 til 1970 ósKast
ÁTT ÞÚ ÞESSAR MYNDIR?
Meiðsli framherjans Guð-mundar Steinarssonar
eru ekki eins alvarleg og ætlað
var í fyrstu en hann meiddist á
hné í leiknum gegn Breiðablik
í síðustu umferð Pepsi-deildar
karla í knattspyrnu. „Þetta var
slæmt högg og það kom mikil
bólga við hnéð. Ég var heppinn
að vera ekki með löppina á jörð-
inni þegar höggið kom, þá hefði
líklega farið verr,“ segir Guð-
mundur en menn óttuðust hið
versta á tímabili. Keflvíkingar
eiga einn leik eftir í Pepsi-deild
karla en sá leikur er gegn KR á
laugardag. Guðmundur stefnir á
það að spila þann leik. „Ég ætla á
æfingu á föstudag og reikna með
því að geta spilað á laugardaginn.
Maður finnur hnéð nánast verða
betra með hverri klukkustund.“
Töluvert hefur verið rætt um að
tímabilið sem er að renna sitt skeið
verði það síðasta í boltanum hjá
Guðmundi, en hann vill lítið gefa
út um það að svo stöddu. „Ég
ætla ekki að segja af eða á strax.
Ef ég tek eitt ár enn þá verður það
hérna heima í Keflavík, þar mun
ég klára ferilinn,“ en Guðmundur
hefur bæði leikið flesta leiki allra
Keflvíkinga og skorað flest mörk
allra. Hann segir einnig að ýmis
spennandi verkefni séu á borðinu
en Guðmundur er að ljúka námi
næsta vor. Guðmundur hefur
verið að taka námskeið í þjálfun
samhliða fótboltanum og hann
ætlar sér að vera áfram í heimi
íþróttanna. „Það er klárt mál að
maður verður í kringum boltann. Í
hvaða formi sem það verður,“ enda
segist Guðmundur vera það mikill
íþróttaunnandi að það verði erfitt
fyrir hann að slíta sig frá þeim
geira.
Meiðsli Guðmundar ekki alvarleg
A Fer líklega í þjálfun eftir að ferlinum lýkur
Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var haldið í Reykjanesbæ um liðna helgi. Um 200 konur úr slysa-
varnadeildum og sveitum kvenna á Íslandi mættu til þingsins sem stóð frá föstudagskvöldi og fram á sunnudag.
Það var kvennasveitin Dagbjörg í Reykjanesbæ sem skipulagði þingið en dagskrá þess var fjölbreytt. Á þinginu
lærðu konurnar að koma sér betur á framfæri við fjölmiðla og láta vita af sínu fjölbreytta starfi sem oft fer fram
á bakvið tjöldin. Þá var haldinn kvöldverður í Offisera-klúbbnum þar sem þemað var stríðsárin.