Víkurfréttir - 27.09.2012, Síða 16
vf.is
Fimmtudagurinn 27. september 2012 • 38. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
KLÁR FYRIR VETURINN
Í KULDAFLÍKUM FRÁ DIDRIKSONS
OLÍS-VERSLUNIN NJARÐVÍK
Fitjabakka 2–4 | Sími 420 1000 | njardvik@olis.is
17.990 kr.
DIDRIKSONS JUSTIN ÚLpA
Stærðir 130–170
8.990 kr.
DIDRIKSONS HERMIT ÚLpA
Stærðir 80–130
3.990 kr.
DIDRIKSONS MONTE FLÍSpEYSA
Stærðir 80–130
18.990 kr.
DIDRIKSONS BAFFIN KULDAgALLI
Stærðir 80–130
4.990 kr.
DIDRIKSONS SHEY FLÍSBUXUR
Stærðir 80–130
10.990 kr.
DIDRIKSONS MELVIN KIDS
SNJóBUXUR
Stærðir 80–130
2.900 kr.
DIDRIKSONS BIggLES LÚFFUR
Stærðir 0–4
14.990 kr.
DIDRIKSONS BOARDMAN REgNSETT
Stærðir 80–130
14.990 kr.
DIDRIKSONS JARVIS ÚLpA
Stærðir 80–130. Einnig til blá og bleik.
7.990 kr.
DIDRIKSONS SLASKEMAN REgNSETT
Stærðir 80–130
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
22
65
2
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
STJÖRNUBLIK Í AUGUM
Þetta var svaka hvellur. Einn af þeim allra stærstu. Gúmmímotturnar, sem grafan hafði lagt yfir
hálfuppgrafna götuna, lyftust í
sprengingunni. Þær voru gerðar
úr útflöttum risahjólbörðum og
festar saman með keðjum. Við
guttarnir horfðum hugfangnir
á og biðum færis. Vírarnir úr
dínamítinu lágu eins og hráviði
um allt og nú þurftum við að hafa
hraðar hendur þegar kallarnir
fóru í kaffi. Aðalgatan var sem
opið sár allt frá Hafnargötu upp að Hringbraut. Eins
og djúpur dalur í miðju bæjarins. Tjörubornir viðar-
drumbar lágu yfir ræsisdýpið á nokkrum stöðum og
við lékum jafnvægislistir á þeim eins og sirkusfólkið
hjá Billy Smart. Enginn hafði dottið ennþá en einn
hafði fótbrotnað þegar grjót hrundi úr veggnum í
miðri víratínslu.
Sprengjuvírarnir voru allavega á litinn. Gulir, rauðir, grænir, bláir og jafnvel röndóttir. Þeir
marglitu voru jafnan bestir. Sá guli og græni samt
langbestur. Sverari en hinir. Eins og gullþráður í
hendi okkar gríslinganna sem klipptum hann niður
í hæfilega stubba og beygðum í löguleg lykkjuskot.
Teygjubyssurnar sjálfar voru gerðar úr herðatrjám
og lagaðar til af kúnstarinnar reglum. Einlitu vírarnir
notaðir til þess að vefja utan um skeftið og skreyta
það í öllum litbrigðum. Rauðu teygjurnar frá Matta
í Bókabúðinni seldust eins og heitar lummur. Níð-
sterkar. Því fleiri, því betri og því lengra drifu skotin.
Ljósastaurarnir í hverfinu voru ekki ósvipaðir drumbunum sem lágu yfir dalskorninginn. Ekki
alveg eins þykkir og nánast tjörulausir. Ljósakrónan
eins og pottahlemmur og peran algerlega óvarin.
Ómótstæðilegt skotmark. Örugglega hundrað kerta.
Kannski áttatíu. Okkur fannst þær skyggja á stjörn-
urnar á himninum, sem skinu skært á dimmum
vetrarkvöldum. Ég átti mínar uppáhalds stjörnur.
Þrjár stjörnur í næstum línulegri röð, skáhallt. Öðrum
fannst stjörnuþyrpingin sem myndaði stafinn P flott-
ust. Lögðumst á bakið í snævi þöktum skrúðgarð-
inum, bjuggum til engla og horfðum hugfangnir á
himingeiminn og óravíddir hans í rökkrinu.
Hann ýtti við mér í miðjum draumi. Veiðihúsið í Miðfirðinum hafði góð áhrif á mig og umvafði
mig hlýju. Ljósmengunin í lágmarki og næturhimin-
inn stjörnubjartur. Hroturnar í mér höfðu vakið her-
bergisfélagann af værum blundi. Eitthvað alveg nýtt
að sögn. Ég ræskti mig og leit út um gluggann. Við
mér blasti fögur sjón, nánast eins og úr skrúðgarð-
inum. Stjörnurnar svo nálægt að mér fannst ég geta
snert þær. Teygt mig í þyrpingarnar sem ég hafði
aldrei augum litið áður. Sýnin var myndræn og skýr.
Greyptist í hugann.
Keflavík heldur
sviðaveislu
Körfuknattleiksdeild Kefla-víkur mun reiða fram al-
vöru sviðaveislu föstudaginn 19.
október nk. í félagsheimili Kefla-
víkur að Sunnubraut 34. Fram-
reidd verða bæði heit og köld svið
ásamt dýrindis meðlæti. Látum
ekki þjóðlegan herramannsmat
íslenskra forfeðra vorra framhjá
okkur fara! Verð: 3500 kr. á
mann.
Nánari upplýsingar og miðapant-
anir gefa Ólafur Ásmundsson í síma
664-0375 ogBirgir Már Bragason í
síma 618-5155
Kveikt í saltpétri
Lögreglunni á Suðurnesjum barst nýverið tilkynning þess
efnis að eitthvað undarlegt væri
á seyði við inngang á húsi sem
staðið hefur autt í Keflavík. Þegar
að var gáð reyndist eldur hafa
verið tendraður þar í saltpétri.
Sem betur fer var hann svo fjarri
húsinu, að hann náði ekki að læsa
sig í það.
Þá barst tilkynning þess efnis að
einhver hefði tjaldað og væri búinn
að kveikja eld í aðstöðu skógræktar
neðan við Vatnsholt í Keflavík.
Reyndist þar vera á ferðinni erlent
par sem var að bíða eftir flugi og
hafði tekið til við að hita sér mat á
prímus.
Féll úr fiskikari
Það óhapp varð í Grindavík, að maður féll úr fiskikari og
tvíhandleggsbrotnaði. Verið var
að vinna að uppsetningu á flúor-
ljósum í geymsluhúsnæði þegar
óhappið varð. Við verkið var not-
aður lyftari og hafði fiskikari verið
komið fyrir á bómu hans til að
auðvelda uppsetningu ljósanna.
Maðurinn, sem um ræðir, fór ofan
í fiskikarið og var hífður upp í um
fjögurra metra hæð. Heyrðist þá
öðrum, sem stjórnaði lyftaranum,
að einhver væri að banka, fór út úr
tækinu, en rak sig um leið í stýri-
pinna fyrir bómuna. Við það fóru
spaðar lyftarans niður, sturtuðu
fiskikarinu af og féll maðurinn í
gólfið með karinu. Hann var fluttur
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
þaðan á Landspítala.
Gullhringur fannst
við Húsasmiðjuna
Gullhringur með steinum fannst á bílastæði við Húsa-
smiðjuna á Fitjum í Njarðvík í síð-
ustu viku. Sá sem fann hringinn
hafði spurnir af því að eldri kona
hafi leitað hringsins á bílastæðinu
en ekki fundið.
Eigandinn getur nálgast hringinn
á skrifstofu Víkurfrétta með því að
lýsa útliti hringsins. Víkurfréttir eru
til húsa að Krossmóa 4a, 4. hæð í
Reykjanesbæ.
FRÉTTAVAKT VíKuRFRÉTTA eR 898 2222
VAKTSÍMI ALLAN SÓLARHRINGINN