Víkurfréttir - 20.12.2012, Page 12
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
Jólablað II
Svo virðist sem fólk sæki til Reykjanes-bæjar í auknum mæli og geri jólainn-
kaupin. Hótel Keflavík hefur undanfarin
11 ár boðið upp á ókeypis gistingu á hótel-
inu gegn framvísun kvittunar upp á a.m.k.
16.800 kr. í einhverri af verslunum bæjar-
ins. Það er að skila sér í auknum heim-
sóknum en Víkurfréttir heyrðu í ánægðum
viðskiptavinum sem nutu jólastemningar-
innar í bænum ásamt því að klára að versla.
Einnig könnuðum við hvernig jólaverslun
hefði gengið þetta árið en nú eru aðeins
fjórir dagar til jóla.
Hjónin Rúna Bjarnadóttir og Gísli Norð-
dahl hafa undanfarin ár sótt Reykjanesbæ
heim til þess að versla fyrir jólin en þau eru
búsett í Kópavogi. Hjónin gista þá alltaf á
Hótel Keflavík og nýta sér tilboð á gistingu.
Það tilboð hófst fyrir 11 árum og þau hafa
því nýtt sér það allt frá upphafi að einu ári
undanskildu. Hjónakornin tóku alltaf dætur
sínar tvær með þegar þær voru ungar og
þrátt fyrir að þær séu nú orðnar fullorðnar
þá koma þær enn með, enda þekkja þær lítið
annað en þessa jólahefð sem skapast hefur
hjá fjölskyldunni. Rúna sagði í samtali við
Víkurfréttir að hér sé þægilegt að versla og
komast burt frá ösinni á höfuðborgarsvæð-
inu. Segir hún að fjölskyldan sæki í sömu
verslanir og veitingastaði en þau fara t.d.
alltaf á Langbest að borða. Hefur þessi hefð
orðið til þess að þau sæki hingað í meira
mæli og ekki einungis um jólin. Sérstaklega
vildi Rúna koma því áleiðis hve veglegur og
góður morgunverðurinn á Hótel Keflavík
væri og líkti hún hlaðborðinu við sverustu
fermingarveislu. Hún segir að hún reyni nú
að benda fólki á höfuðborgarsvæðinu á að
hér megi gjarnan gera góð jólainnkaup og
mælir hún hiklaust með því við alla.
Ragna Ívarsdóttir hótelstjóri á Hótel Glym
í Hvalfirði nýtti sér tilboð Hótel Keflavíkur
og ákvað að klára jólaverslunina í leiðinni.
Hún var hæstánægð með allar verslanir sem
hún heimsótti í Reykjanesbæ og sagði að
þjónustan hafi verið frábær og persónuleg
í senn. „Það var frábært að versla í róleg-
heitunum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af
því að finna bílastæði og standa í stressinu
sem oft vill verða á höfuðborgarsvæðinu í
kringum jólin,“ sagði Ragna í samtali við
Víkurfréttir. Hún segir að framtakið sé til
fyrirmyndar og gjarnan mætti láta vita betur
af þessu því margir myndu eflaust nýta sér
þessa þjónustu.
Jólaþorpið í Kjarna við Ice-landair Hotel í Keflavík hefur
sannarlega vakið mikla lukku
og hafa bæði Suðurnesjamenn
og fólk hvaðanæva að heimsótt
þennan skemmtilega stað þar sem
jólaandinn ræður ríkjum.
Í desember hafa ýmsar uppákomur
verið í Kjarna og ber þar að nefna
að Sirrý útvarpskona sendi þátt
sinn út frá þorpinu og í kjölfarið
lögðu fjölmargir leið sína til
Reykjanesbæjar. Bergþóra Sigur-
jónsdóttir hótelstjóri Icelandair
Hotel í Keflavík sagði að sífellt fleira
handverksfólk og hönnuðir skjóti
upp kollinum á svæðinu og þeir eru
margir hverjir að selja varning sinn
á göngugötunni í Kjarna. Þar má
eflaust finna jólagjöfina í ár. Leik-
skólabörnin hafa verið dugleg að
heimsækja þorpið og er þá gjarnan
boðið upp á kakó. Framundan eru
ýmsir atburðir sem vert er að skoða
en m.a. ætlar Einsi Júll að koma við
og syngja en opið er frá 17:00-21:00
alla virka daga og lengur á Þorláks-
messu. Telur Bergþóra jafnframt
að jólaþorpið sé komið til að vera
og muni eflaust vaxa á komandi
árum.
Rúna í Gallerí KeflavíK við Hafnargötu segir að það sé að skila sér fólk inn til hennar sem
komi af höfuðborgarsvæðinu og geri sér glaðan dag
á Suðurnesjum. Hún segist hafa orðið vör við það að
hingað hafi komið fólk sem var hér í óvissuferð og
tekið jólainnkaupin í leiðinni og gist síðan á Hótel
Keflavík. Það framtak er því að skila sér að hennar
mati. Hún telur að hér fái fólk betri þjónustu og
verðið sé oft á tíðum betra. Hún er annars sátt við
jólaverslunina í ár og telur að margir séu á síðustu
stundu með innkaupin eins og oft vill verða.
„Það er gott hljóð í okkur. Þunginn í matvöru fór að-
eins seinna af stað en það hefur líka áhrif hvernig jólin
liggja, þ.e. hvaða dag í vikunni aðfangadag ber upp á.
Það hefur verið aukning hjá okkur í haust þannig að
við erum mjög sátt með gang mála,“ sagði Ómar Valdi-
marsson, forstjóri SamKaupa hf. um jólaverslunina á
Suðurnesjum en fyrirtækið rekur einnig marga tugi
verslana um allt land.
Björn Pálsson hjá raftækjaversluninni OmniS segir að
töluvert sé um það að brottfluttir Suðurnesjamenn og
þá sérstaklega þeir sem búa í Noregi séu að versla hjá
Omnis. „Það er ekki verra að vera á norskum launum
og versla á Íslandi“ segir Björn léttur í bragði en hann
segir að jólaverslunin sé svipuð og í fyrra. Oft vilji
það verða þannig að fólk sé fram á síðustu stundu að
ákveða hvað og hvar skuli verslað.
Hann segir spjaldtölvur vera sérstaklega vinsælar líkt
og í fyrra en þær kosta frá tæplega 20 þúsund krónum.
Verslunin er með mikið úrval af raftækjum og öllu
mögulegu sem því tengist sem oftar en ekki eru vin-
sælar jólagjafir.
„Það er fremur rólegt núna en þetta er að glæðast,“
segir Sigurður Björgvinsson kaupmaður í K-SpOrt
við Hafnargötu. Hann segist vera var við fólk sem
komi sem gestir hingað og versli og eins eru þeir sem
nýlega eru fluttir í sveitarfélagið duglegir að versla við
hann og hrósa búðinni í hástert. „Það yljar manni um
hjartarætur að fólk sé jákvætt í okkar garð.“ Sigurður
vildi einnig koma því sérstaklega á framfæri að ekki
stæði til að loka K-sport en hann segir að sögur þess
efnis eigi við engin rök að styðjast.
Frábær og
persónuleg
þjónusta
n JólaverSlun í reyKJaneSbæ
- segja gestir sem heimsækja jólabæinn reykjanesbæ fyrir hátíðirnar
JólaþOrpið í KJarna
veKur luKKu
svipuð jólaverslun
Úr jólaglugga bústoðar við tjarnargötu.
skreytingar í glugga hárfaktorý við hafnargötu.
jólaskreytingar í verslun Cabo við hafnargötu.