Víkurfréttir - 20.12.2012, Blaðsíða 16
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR16
Jólablað II
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og
farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
GRÓFIN 14B - 230 REYKJANESBÆR
SÍMI: 421 4566 - tv @ i4tec.com
Bílaþjónusta Simi: 421 2598
Heyrðu elskan, ég var að spá í hvort við
gætum farið saman í Kringluna á fimmtu-
dagskvöldið. Opið til kl. 22.00 sem þýðir
að við ættum að geta klárað að kaup allar
jólagjafirnar.
Hann leit upp úr íþróttasíðunum og horfði
svona beint í augu mér (eins og ég hefði
gert eitthvað): ég var búinn að segja þér að
við strákarnir í vinnunni erum að fara með
vinnufélaga okkar á tónleika með Bjarna
Ara þetta kvöld. Afmælisgjöf til
hans frá okkur. Hann dýrkar Elvis
og Bjarna og tónleikarnir eru Elvis
gospel. Erum meira að segja búnir
að fá leyfi til að fara með hann
baksviðs eftir á og þar fær hann
áritaðan disk. Gunni er nýhættur
með kærustunni svo hann hefur
gott af því að lyfta sér aðeins upp.
Já ok, ég hélt að þið hefðuð gefið
honum gjöf um daginn, áritaðan
Manchester United bol sem þú
pantaðir sérstaklega og fótbolta-
kvöld á sportbarnum þar sem
fram fór greinilega lengsti fót-
boltaleikur sögunnar!
Hann leit á mig eins og hann tryði ekki
því sem hann var að heyra: þá átti Siggi
afmæli og það var EKKI Manchester Uni-
ted!!! Hvað ætlarðu að vera lengi að læra
þetta – það er Manchester City, CITY og
að rugla þessum liðum saman er eins og
að rugla saman Duran Duran og Wham.
Finnst stundum eins og þú sért ekki að
hlusta á mig þegar ég er að tala um það
sem skiptir MIG máli!! Og já við vorum
lengi enda ekki hægt að lýsa fyrir þér þeim
tilfinningum sem fylgja þessu. Veistu hvað
þetta er búið að vera erfitt fyrir okkur
CITY áhangendur síðustu ár – svo gengur
loksins vel hjá okkur núna og er þá til of
mikils mælst að fá SMÁ stuðning hérna
heima fyrir!!
Ég áttaði mig á því á þessu augnabliki að
ég mundi aldrei skilja þetta en sagði það
ekki við hann, en hann var ekki hættur.
Þetta snýst svolítið um að kynnast fólki
og þú sem ert alltaf í þínum mannlífspæl-
ingum ættir nú að leggja meira á þig við
svona hluti, ha! Það er mjög óþægilegt
þegar við erum að hitta vinnufélagana
fyrir utan vinnu og þú ruglar öllum saman.
Mjög pínlegt í vorpartýinu þegar þú
ræddir endalaust um konuna hans Wayne
Rooney við golfarann og kærustuna hans
McIlroy við fótboltanördinn. Ég mundi
aldrei klikka á svona. Sjáðu til, ég legg mig
fram um að komast að áhugamálum fólks.
Fótbolti, golf, tónlist.....þetta skiptir máli
og gerir vinnuna skemmtilegri. Í vinavik-
unni kaupir maður gjafir sem henta við-
komandi , óvissuferðirnar eru úthugsaðar
og fólkið áttar sig á að maður er búinn að
hafa svolítið fyrir hlutunum. Já elskan mín,
það er engin tilviljun að þinn heittelskaði
er búinn að fara fyrir starfsmannafélaginu
í 3 ár í röð. Með því að leggja þig svona
fram ertu að senda fólkinu skýr skilaboð –
„þú“ skiptir máli. Karlinn er með‘etta!
Ég brosti til hans; flott hjá þér, æ bara smá
stress hjá mér, korter í jól og eftir að kaupa
allar gjafirnar. En ég fer bara ein í Kringl-
una og redda þessu sem er eftir. Ekki eins
og ég sé óvön því (passaði alveg upp á að
halda pirringnum í lágmarki).
Hann stóð upp tók um mig og sagði; þú
rúllar þessu upp eins og alltaf. Kauptu svo
eitthvað fallegt handa sjálfri þér í jólagjöf -
frá mér til þín!!
Ég leit á hann; bíddu á ég að kaupa jóla-
gjöfina mína sjálf.......aftur!! En varstu ekki
einmitt að segja.........
Hann horfði á mig með svip sem hann
setur upp þegar hann vill segja „ég er bæði
særður og hissa“: bíddu hvað er að því, þú
veist alveg hvernig þetta er, ég veit aldrei
hvað ég á að gefa þér og svo hélt ég að það
væri hugurinn á bak við gjöfina sem skipti
öllu máli. Stundum átta ég mig bara alls
ekki á þér kona!!
Þangað til næst – gangi þér vel!
Anna Lóa
Fylgstu með mér – http://www.
facebook.com/Hamingjuhornid
Kauptu þína jólagjöf sjálf!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
Að rugla þessum
liðum saman er
eins og að rugla sama
Duran Duran og Wham.
Aukið umferðareftirlit
lögreglunnar
Lögreglan á Suðurnesjum heldur nú úti sérstöku um-
ferðareftirliti, sem beinist meðal
annars gegn ölvunar-, lyfja- og
fíkniefnaakstri. Einnig er fylgst
með því að búnaður bifreiða
sé í lagi, svo sem ljósabúnaður,
sem nauðsynlegt er að hyggja
sérstaklega að í skammdeginu.
Lögreglan vill hvetja ökumenn
og aðra vegfarendur til að
sýna varkárni og tillitssemi í
hvívetna. Akstur undir áhrifum
áfengis og/eða fíkniefna getur
haft skelfilegar afleiðingar eins
og dæmin hafa sannað.
Flugeldasala
KeFlavíKur
verður í gamla
íþróttavallar-
húsinu við
Hringbraut.
NáNar auglýst í Næsta blaði