Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.12.2012, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 20.12.2012, Blaðsíða 24
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR24 Jólablað IIJólablað II n Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari: landslag íslenskra jökla Heillandi og Hrikalegt Að ganga á skriðjökul með myndavélina mína er með því skemmtilegasta sem ég geri. Það er eins og maður sé kominn í aðra veröld þar sem maður finnur kraftinn í þessari stórbrotnu náttúru og fyll- ist óttablandinni lotningu frammi fyrir djúpum sprungum og ógnvænlegum jökulsvelgjum í þessu kynngimagnaða, hrikalega og myndræna lands- lagi. Þessi ósnortna náttúra er full af hughrifum og náttúruupplifunum sem draga mann á jökul aftur og aftur. Með því að ganga á jökul er maður kominn í annan og heillandi heim með myndavélina og sannarlega með allt aðra sýn og sjónarhorn heldur en þær ljósmyndir sýna sem teknar eru frá þjóðveg- inum eða við jökulsporðinn. Þær eru orðnar þó nokkrar ljósmyndirnar sem ég hef tekið uppi á jöklunum og jafnvel innan í þeim því gaman er að kíkja inn í hella og jökulsvelgi og skoða innviði þeirra. Gæti vel hugsað mér að gera einhvern- tímann bók eða veglega ljósmyndasýningu með þessu viðfangsefni en hvort af því verður kemur bara í ljós. Slíkt verkefni gæti verið einskonar óður til jöklanna sem verða horfnir eftir 150-200 ár ef spár vísinda- manna ganga eftir. Hún er skrýtin sú tilhugsun að komandi kynslóðir eigi ekki eftir að sjá jökla nema á ljósmyndum ef svo fer sem horfir. Ég er gjarnan spurður að því hvort jöklaferðir af þessum toga séu ekki hættulegar. Að þvælast einn upp á jökul án þekkingar á aðstæðum, þjálfunar og rétts búnaðar er vitaskuld stórhættulegt. Dapurleg örlög sænsks ferðamanns á Sólheimajökli í nóvember 2011 er dæmi um það. Jöklagöngu ættu óvanir aldrei að fara í nema í fylgd sérþjálfaðra leiðsögumanna með reynslu og réttan útbúnað. Hér á landi eru sérhæfð ferðaþjón- ustufyrirtæki, t.d. Íslenskir fjallaleiðsögumenn, sem bjóða upp á skipulagðar jöklagöngur og leggja til þann búnað sem þarf. Hins vegar eru það mest erlendir ferðamenn sem sækja í þetta, ekki Íslendingar. Ég veit ekki almennilega hvað veldur því. Þar sem jöklarnir eru svo stór hluti af náttúru Íslands hefði maður haldið að Íslendingar fyndu hjá sér forvitni og þörf til komast í meira návígi við þá. Á göngu yfir Skeiðarárjökul í sumar mætti manni ótrúlegt landslag þar sem askan úr Gríms- vatnagosinu hafði lagst yfir jökul- inn endilangan á breiðu belti. Í þessu var mikil strýtumyndun og inn á milli hárra strýta leyndust kviksyndi, sprungur og hyldjúpir jökulsvelgir. Það var því ekki auðvelt fyrir gönguhópinn að finna leið í gegnum þetta og oft urðum við að snúa við og finna aðra leið. Að lokum komumst við í gegn og eftir sat minning um ógleyman- lega upplifun í kynngimögnuðu landslagi sem leit út fyrir að til- heyra annarri plánetu. Dulúð á Skeiðarárjökli. Klifrað upp úr sprungu á Sólheimajökli. Gengið eftir mjórri ísspöng með sprungur til beggja handa. Broddarnir gera sitt gagn. Íshellar jöklanna eru heillandi og fagrir. Ísinn er kristaltær og sést langt inn í hann. TexTi oG mynDir ellerT GréTArSSon - fleiri myndir á elg.is Gönguhópur á ferð á Svínafellsjökli. Gægst ofan í jökulsvelg á Sólheimajökli.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.