Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.12.2012, Qupperneq 44

Víkurfréttir - 20.12.2012, Qupperneq 44
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR44 Jólablað II 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR www.vf.is sMÁAUGLÝsiNGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS ÓSKAST Óska eftir 2ja til 4ra herbergja íbúð til leigu. Upplýsingar í síma 662 4343. ÝMISLEGT Bryggjubásar – Skemmtilegur markaður í Reykjanesbæ Erum með opið föstud. frá kl. 16 til 20 og vikuna frá 17. des. laug- ardaga og sunnudaga frá kl. 13 til 18. Skemmtileg markaðsstemmn- ing. Básaleiga s. 666-3938. TIL SÖLU Toyota Corolla árgerð 1990 í góðu lagi ekinn 112 þúsund km. Verð kr. 50 þúsund. Upp lýsingar í síma 857 1475. AFMÆLI 70 ÁRA Helgi Þór Magnússon verður 70 ára föstudaginn 21. desember. Þeir sem vilja gleðjast með honum eru velkomnir í kaffiveitingar á afmæl- isdaginn í Víðihlíð milli kl. 14 og 17. Gjafir eru afþakkaðar en söfn- unarbaukur til styrktar Víðihlíðar verður á staðnum. TIL LEIGU Til leigu gott 132 ferm. iðn- aðarhúsnæði að Strandgötu 22A, Sandgerði. Eignin er laus til afhendingar strax. Leiguverð: 85.000 kr. á mánuði fyrir utan hita og rafmagn. Allar nánari upplýsingar gefnar í síma 421 8787. 50 fm. íbúð til leigu, 2ja herbergja, eldhús og bað. Skilvísi, reyklaus og ekki gæludýr. Íbúðin losnar í byrj- un janúar.Uppl. í síma 894 1242. 3ja herb íbúð til leigu Til leigu 85 fm endaíbúð á jarðhæð 100 þús. á mán. Fyrirframgreiðsla og meðmæli æskileg. Uppl. í síma 893 9888. Um leið og ég þakka Suður-nesjamönnum fyrir góð s a m s k i pt i á árinu sem er að líða vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þegar áramót nálgast er vert að horfa um öxl og líta yfir farinn veg. Ljóst er að afleiðingar bankahrunsins haustið 2008 lagði byrðar á alla landsmenn. Almenn- ingur varð leiksoppur kringum- stæðna sem hann bar enga ábyrgð á. Uppgjörið eftir hrun hefur leitt margt ógeðfellt í ljós og slíkt sam- félag viljum við ekki byggja upp að nýju. Grípa þurfti til margvíslegra ráð- stafana til að stýra landinu upp úr efnahagslægðinni. Við úrvinnslu vandans hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur haft það að leiðar- ljósi að dreifa byrðum á eins sann- gjarnan hátt og mögulegt er og með skýrri forgangsröðun varið velferðar- og menntakerfið. Árangur í ríkisfjármálunum er augljós og fjárlög ársins 2013 sem ég mælti fyrir í september síðast- liðnum, sýna best þann árangur. Auknar tekjur af auðlindum í al- mannaeign, ábyrg efnahagsstjórn og stöðugur hagvöxtur gera mögu- legt að auka stuðning við fjölskyld- urnar í landinu. Fæðingarorlofs- greiðslur hækka strax á næsta ári og fæðingarorlofið verður lengt í 12 mánuði í áföngum til ársins 2016. Greiðslur til barnabóta eru hækkaðar umtalsvert og einnig greiðslur til húsaleigubóta en það er í samræmi við nýja húsnæðis- stefnu. Nýja stefnan felur í sér fleiri valkosti en séreignarstefnuna með auknu framboði á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði. Fjárlögin fela einnig í sér áherslur jafnaðarmanna í atvinnusköpun. Þannig er fjórum milljörðum króna af veiðileyfagjaldinu veitt til samgöngubóta, til að styrkja Rann- sóknarsjóði og Tæknisjóði og til sóknaráætlunar landshluta. Aðrir 6 milljarðar fara í ýmis verkefni, s.s. byggingu fangelsis, uppbyggingu ferðamannastaða og innviði frið- lýstra svæða, grænar áherslur í at- vinnusköpun og skapandi greinar. Markmiðið er aukin fjárfesting og fjölgun starfa. Kosningarnar næsta vor munu snúast um hvort við viljum halda áfram á leið jafnaðarmanna til aukins jöfnuðar og réttlætis. Við endurreisn samfélags eftir hrun setja jafnaðarmenn hag barna í forgang ásamt áherslu á skilvirkt menntakerfi, öflugt velferðarkerfi og að mæta eldri borgurum með virðingu og sanngirni. Við höfum lært að það er ekki hægt að stytta sér leið, taka góðæri að láni eða svindla sér upp úr krepp- unni. Það er ekki hægt að taka lán fyrir nýju Íslandi. Þar verðum við að treysta á eigin hug og hönd. Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar Jólin eru á næsta leiti, eftirvæntingin allsráðandi hjá krökkunum, fjölskyldur koma saman borða veislumat og standa á blístri. Þetta er sá árs- tími sem neysla Íslendinga nær h á m a r k i o g þykir mörgum n ó g u m . E n öfgarnar geta verið mik lar og því miður eru ekki allir sem hlakka til jólanna eða sjá fram á veislumat, hitta fjölskyldur, vini eða bara að sitja í hlýju húsi. Reyndar er það svo að fjöldi Íslendinga þiggja matargjafir fyrir jólin, um 10% Íslendinga eru taldir undir fátæktarmörkum og hátt í 200 Ís- lendingar teljast til heimilislausra. Eiga ekkert. Samfélag jafnaðar er sterkara og réttlátara er samfélag ójafnaðar Við erum 300 þúsund manns á þessari eyju. Við erum vellauðug af orku, landi og vatni – eyjan okkar er matarkista. Á Íslandi þarf enginn að vera svangur. Við höfum búið við krappari kjör síðustu ár en lífsgæði hér á landi teljast engu að síður ein þau mestu á Vestur- löndum, sem sagt Íslendingar búa við ein þau mestu lífsgæði í heimi. Samfélagið okkar er þó ekki sterkara en svo að við getum ekki hjálpað fólki sem á ekkert og reyndar gátum við það heldur ekki fyrir hrun. Við getum ekki hjálpað fólki sem er heimilislaust og er ekki fært um að hjálpa sér sjálft. Við getum reiknað það út að útgerðin, ferðaþjónustan, hátekjufólk og fleiri hópar geti ekki greitt nema svo og svo mikinn skatt til samfélagsins, ella fái viðkomandi ekki þrifist. Raunveruleikinn er sá að í samfélaginu er fólk sem fær ekki þrifist vegna þess að samfélagið telur sig ekki hafa fjárhagslega burði til að mæta þörfum þeirra. Misskiptingin er óþolandi Hjálparstofnanir og sjálfboðaliðar hafa af mikilli ósér- hlífni og dugnaði mætt brýnustu þörfum fátækra og heimilislausra Íslendinga en þannig á það ekki að vera. Við eigum öll heima á þessari eyju. Við búum öll saman í þessu samfélagi og við eigum öll að deila gæðum þannig að við fáum notið mannsæmandi lífs. Staðreyndin er sú að nóg er af gæðum – þeim er ein- faldlega misskipt. Misskiptingin er afleiðing þess að við höfum ekki tekið málstað fátækra. Við hlustum á Samtök atvinnulífsins en Samtök fátækra eru ekki til. Við hlustum á Landssamband íslenskra útvegsmanna en Landssamband heimilislausra Íslendinga er ekki til. Við hlustum á Samtök fjármálastofnana en Samtök þeirra sem þiggja matargjafir eru ekki til. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar eru þeirra málsvarar þegar kemur að því að taka málstað fátækra og skipta gæðum Ís- lendinga. Skiptum jafnt. Arndís Soffía Sigurðardóttir, 1. sæti Vg Suðurkjördæmi Inga Sigrún Atladóttir, 2. sæti Vg Suðurkjördæmi PÓSTKASSINN n Oddný G. HarðardóTTIr skrIfar: Jóla- og nýárskveðja n arndís sOffía sIGurðardóTTIr OG InGa sIGrún aTladóTTIr skrIfa: Fátækt og ríkidæmi vf@vf.is Marta Eiríksdóttir áritar Mei mí beibísitt? í Eymundsson fimmtudagskvöldið 20. desember frá klukkan 20:00 til 22:00. Leikskólabörnum í Reykja-nesbæ hefur á síðustu dögum verið boðið í heitt súkkulaði á Flughóteli í Keflavík. Þar hafa verið hengdar upp myndskreyt- ingar við skemmtilega jólasögu sem leikskólabörnin á leikskólum bæjarins hafa sameinast um að semja. Sagan er um Nilla, lítinn strák í Reykjanesbæ og jólaundir- búninginn hjá honum. Meðfylgj- andi myndir voru teknar fyrir helgi þegar hópur barna þáði heitt súkkulaði. Sagan um Nilla mun birtast á vef Víkurfrétta, vf.is, um jólin. Sömdu sögu um Nilla

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.