Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.03.2012, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 01.03.2012, Qupperneq 1
vf.is Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. TM Opið allan sólarhringinn Fitjum NÝTT Morgunverðar-matseðill Aðeins í boði áSubway Fitjum 14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011 Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is 989kr/stk. Tilboðsverð! 339kr/stk. Tilboðsverð! Easy ÞvoTTaEfni aloE vEra 2.7 kg Easy MýkingarEfni 2 l | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2. Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB Æsispennandi körfuknattleikir - sjá nánar á bls. 23 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 F i m m t u d A G u R i n n 1 . m A R S 2 0 1 2 • 9 . t ö l u b l A ð • 3 3 . á R G A n G u R Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 ›› Bandarískt fyrirtæki vill kaupa sorpeyðingarstöðina Kölku í Helguvík: HAFA OPNAÐ GLÆSILEGAN STAÐ AÐ HAFNARGÖTU 12 STÓR (12”) 1200 LÍTILL (6”) 790 HÁDEGISTILBOÐ (ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 14:00 www. hlollabatar.is - s. 421 8000 „Ég held að fulltrúar sveitarfélaganna sem eiga Kölku hljóti að þurfa að skoða þetta tilboð í sorpeyðingarstöðina vandlega. Stöðin er rétt rúmlega hálfnýtt en á henni hvíla miklar skuldir. Fari svo að við seljum stöðina munum við þó setja skilyrði fyrir því að gerður verði langtíma samningur um sorpbrennslu fyrir Suðurnesin á lægra verði en í dag. Sorpgjaldið okkar er með því hæsta sem gerist hér á landi,“ segir Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um málefni Kölku eftir að tilboð barst í stöðina frá bandarísku fyrirtæki. Tilboð Trimvirate um kaup á Kölku hljóðar upp á 10 millj. dollara eða um 1250 millj- ónir króna. Það er nálægt heildarskuldum Kölku í dag. Eftir brotthvarf Varnarliðsins sem nýtti stöðina til brennslu á öllum úr- gangi og sorpi frá starfsemi sinni, er stöðin rétt rúmlega hálfnýtt. Nú eru brennd um 7 þús. tonn á ári en stöðin ræður við 12-13 þús. tonn. Stærsti kúnninn, Kaninn, fór árið 2006 og síðan hefur hagur Kölku legið niður á við því búið var að byggja fullkomn- ustu sorpbrennslustöð á Íslandi fyrir mikla peninga. Hún uppfyllir allar kröfur Evrópu- sambandsins um staðla sem fylgja svona starfsemi. Böðvar segir að ekki hafi verið í umræðunni að brenna hættulegra sorp en verið sé að gera nú þegar, m.a. sjúkrahússorp. Áhugi Bandaríkjamanna stafi af mjög stífum reglum í þeirra heimalandi en þeir kaupa nú m.a. brennslu í Danmörku og í fleiri löndum. Sorpbrennslustöðvar sem nú þegar eru með starfsemi í Bandaríkjunum selji þjónustu sína svo dýrt að fyrirtæki sjái fram á að ódýrara sé að flytja sorpið til landa sem geta brennt það á ódýrari hátt. Vandamál sem hefur sprottið upp í orðsins fyllstu merkingu auk skuldavandamála, er frágangur eða urðun á öskunni sem verður eftir þegar sorpið er brennt í Kölku í Helguvík. Þegar Kalka hóf starfsemi stóð til að urða öskuna m.a. á Stafnesi en þegar kom að því kom babb í bátinn og enn stendur hnífurinn í kúnni varðandi þetta mál. Þannig hefur á sjö árum eða frá opnun Kölku, öskufjall hlaðist upp. Askan úr Kölku er geymd í gámum á nokkrum stöðum á Suðurnesjum, í Sandgerði, Garði og m.a. í gömlu sorpeyðingarstöðinni við Hafnaveg. Ekki hefur fundist lausn á því hvernig Kalka getur losað sig við úrganginn, öskuna. Er m.a. verið að skoða það alvarlega að sigla henni til Danmerkur þar sem hægt er að urða hana. Einnig er verið að rannsaka það í gegnum nýstofnað atvinnuþróunarfélag á Suðurnesjum, Hekluna, hvort hægt sé að nýta öskuna í malbiksgerð á Íslandi. Binda menn vonir við að slík lausn gæti verið góð í alla staði. Þannig væri sorp úr Kölku endurnýtt í orðsins fyllstu merkingu á mjög umhverfisvænan hátt og endaði í gatnagerð á Íslandi. Gangi það eftir að koma öskunni í malbik og Kalka seld sem gæti þýtt ódýrari sorp- brennslu fyrir Suðurnesjamenn og skulda- hreinsun væri verið að slá tvær flugur í einu höggi. Askan sem verður til eftir brennslu hrannast upp. Hefur ekki verið urðuð frá stofnun Kölku. Gæti þó endað í malbiksgerð á Íslandi sem væri frábær kostur. Skuldahreinsun og ódýrari sorp- brennsla fyrir Suðurnesjamenn

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.