Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUdagUrInn 7. FEBrÚar 2013 • 5. TölUBlað • 34. árgangUr
Flugvallabraut 701 | 235 Reykjanesbæ
421-8070 | www.sporthusid.is
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Ert þú að kaupa eða selja
skip eða bát? Þá erum við
reiðubúnir til þjónustu.
Bátar og búnaður
www.batarb.is
Sími 562 2551- skip@batarb.is
Atburðir eru í náttúrunni við suður-enda Kleifarvatns og á Sveifluhálsi
sem geta endað með eldgosi. Síðustu
ár hefur verið að byggjast upp spenna
á svæðinu og landið bólgnar út. Jarð-
skjálftar eru þar tíðir en þeir eiga sér
upptök á 6-7 km dýpi. Ástandið er við-
varandi og þarna gæti verið eitthvað í
uppsiglingu. Þetta segir Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur. Hann hélt
erindi um jarðvá á Reykjanesi fyrir fullu
húsi í Keili á Ásbrú í hádeginu í gær.
Ari Trausti segir hins vegar að það geti
enginn sagt til um það hvað atburðurinn
taki langan tíma eða hvort virknin fjari
einfaldlega út án þess að komi til eldsum-
brota.
Á Reykjanesskaganum eru fjögur eld-
stöðvakerfi og gliðnunar- og eldgosahrinur
verða í þeim með 500 til 1000 ára millibili
og síðast voru eldgos á Reykjanesskag-
anum á þrettándu öld þannig að bráðum
fer að nálgast sá tími að búast mætti við
einhverju. Hins vegar verði að horfa til
þess að eldstöðvarnar hegði sér ekki eins
og klukkur og því ekki hægt að segja til
um það hvort gos verði á morgun, eftir ár,
áratugi eða aldir.
Fólk ætti að vera undir það búið að eitt-
hvað sé að fara að gerast og eldgos á
Reykjanesskaganum ætti í raun ekki að
koma fólki óvart. Eldgos eiga sér einhvern
aðdraganda og fólk verður ekki tekið í
bólinu, segir Ari Trausti.
Það verður ekki hjá því komist að það
gjósi á svæðinu og hentugasta staðsetn-
ingin fyrir gos er á því svæði þar sem nú
er spenna. Hins vegar er líka goshætta
við Grindavík og þar geta hraun runnið
yfir byggð. Á sama hátt geta hraun ógnað
orkuverinu í Svartsengi og eldsumbrot
geta einnig ógnað Reykjanesvirkjun. Í ljósi
sögunnar er það einnig staðreynd að gos
á þessu svæði verða í hrinum sem geta
staðið með hléum í jafnvel 30 ár.
Vegna þeirra atburða sem eru að gerast í
náttúrunni við Kleifarvatn og á Sveiflu-
hálsi þá hefur Almannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra nú látið hefja vinnu við
viðbragðsáætlun um rýmingu byggðar á
Reykjanesi og hvernig brugðist verði við
því ef raflínur rofna eða vatnslagnir því öll
Suðurnes eru háð heitu vatni úr Svartsengi
og jafnframt er kaldavatnsöflun frá sama
svæði. Þá þarf einnig að horfa til þess að
alþjóðaflugvöllurinn er á Reykjanesi og
aðeins tvær akstursleiðir eru frá Suður-
nesjum. Önnur um Reykjanesbraut, hin
um Suðurstrandarveg.
Ítarlegra viðtal við Ara Trausta Guðmunds-
son er í Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is.
Land bólgnar út
og hætta á eldgosi
n Jarðhræringar við suðurenda Kleifarvatns og á Sveifluhálsi:
Ari Trausti Guðmundsson á
fyrirlestrinum á Ásbrú í gær.