Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 16
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR16 Einkunnarorð leikskólakennara á degi leikskólans 6. febrúar ár hvert eru Við bjóðum góðan dag alla daga. Þessi fallega og hlýja kveðja segir mikið til um þann anda sem ríkir í því faglega, jákvæða og gleðiríka starfi sem fram fer í leikskólum landsins. Kveðjan ber með sér gleði og kærleika og að einstaklingar með fjölbreyttar og ólíkar þarfir séu velkomnir til leiks og náms í leikskólann. Flestir fræðimenn sem rannsakað hafa þroskaferli barna eru sam- mála um að leikurinn í öllum sínum fjölbreytileika sé aðal- námsleið ungra barna. Íslenskir leikskólakennarar hafa ávallt lagt áherslu á leikinn, umönnun og skapandi starf. Mikil fjölbreytni er í leikskólaflóru landsins og ólíkar uppeldisstefnur í gangi en áherslan er á að skapa barninu sem best uppeldis- og námsskilyrði. Ég er stolt af því að tilheyra þessari stétt og óska öllum leikskólakenn- urum til hamingju með daginn. Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar Á síðustu miss- erum hafa víða birst greinar þess efnis að ríkis- stjórnin geri lítið fyrir Suðurnesin. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum ályktaði á síðasta aðalfundi að Suðurnesin væru hornrekur þegar litið væri til fjár- magns í ákveðna málaflokka. Margt er til í þeim orðum en samt sem áður eru ýmsir í núverandi ríkisstjórn sem hafa eytt miklum tíma og orku í málefni Suðurnesja. Reyndar höfum við oft fengið það staðfest í samtölum við þingmenn og ráðherra að þeir láta sér annt um Suðurnesin og oft fylgja verk þeim hug. Sú sem einna harðast hefur beitt sér til að rétta hlut Suðurnesjamanna er Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra og varaformaður VG. Menntamálaráðherra setti af stað verkefni hér á Suðurnesjum þar sem farið var í ítarlega kortlagningu á menntun á svæðinu og þeim úrræðum sem væru í boði. Mennta- málaráðherra hefur beitt sér fyrir því að fisktækniskólinn hefur hlotið viðurkenningu sem menntastofnun með ákveðnum skilyrðum og hún beitti sér einnig fyrir því að Keilir og það góða starf sem þar er unnið fékk verðskuldaða viðurkenningu stjór- nvalda. Menntamálaráðherra hefur hlustað á raddir frá Suðurnesjum um uppbyggingu símenntunar og samstarf við Vinnumálastofnun og hefur hún beitt sér fyrir átaki í því að tengja saman símenntun og vinnumarkað. Menntamálaráðherra beitti sér fyrir stofnun fræðaseturs í Sandgerði til að auka menntun og rannsóknir á svæðinu og tengsl við háskólasamfélagið og síðast en ekki síst hefur hún fyrst íslenskra menntamálaráðherra leiðrétt langvarandi misræmi í fjár- framlögum milli Fjölbrautaskóla Suðurnesja og annarra mennta- og fjölbrautaskóla á landinu. Það skiptir okkur máli á Suður- nesjum að fólk frá svæðinu sé á Alþingi Íslendinga. En það skiptir líka miklu máli að hafa ráðherra sem skilja vanda ákveðinna svæða, vilja hlusta á raddir heimamanna og er tilbúnir að beita tíma sínum og áhrifum til að leiðrétta það. Undir þeim væntingum hefur Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra staðið á síðasta kjörtímabili. Arndís Soffía Sigurðardóttir Lögfræðingur 1. sæti VG í Suðurkjördæmi Inga Sigrún Atladóttir Guðfræðingur 2. sæti VG í Suðurkjördæmi vf@vf.isPÓSTKASSINN n Arndís soffíA og ingA sigrún skrifA: Menntamálaráðherra hugar að Suðurnesjum n ingiBJÖrg BrYndís HiLMArsdÓTTir skrifAr: Við bjóðum góðan dag alla daga Holtsgötu 24 - 260 Reykjanesbæ Sími: 421 5010 Meistaraf lokkur karla og kvenna hjá körfu- knatt leiksdei ld Njarðvíkur notar Ís lenskt fæðubótarefni án al l ra aukaefna Vörukynning í Kosti Njarðvík föstudaginn 8. febrúar kl . 16:00 - 19:00. FAAS, Félag áhugafólks og að- standenda Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma, hefur myndað tenglahóp, FAAS á Suðurnesjum, sem ætlar að standa að 3 fræðslufundum fram á vorið. Fundirnir verða með kaffihúsabrag og pönnukökum í meðlæti, ásamt ýmiskonar fræðslu og gagnlegum upplýsingum. Fyrsti fundurinn verður haldinn nk. mánudag 11. febrúar kl. 16.30 í Selinu, Vallarbraut 4 (Njarðvík) Reykjanesbæ. Fræðslan að þessu sinni er kynning á MEMAXI sem er skipulags- og samskiptakerfi fjölskyldna sem auðveldar fólki með minnisskerð- ingu að búa sjálfstætt. Annar Kaffihúsafundurinn verður mánudaginn 11. mars kl. 16.30, fræðsluefni þess fundar verður kynning á MentisCura fyrirtækinu sem unnið hefur að þróun nýrrar aðferðar við að greina Alzheimer- sjúkdóminn. Þriðji Kaffihúsafundurinn verður mánudaginn 15. apríl kl. 16.30, fræðsluefni þess fundar verður auglýst síðar. Fundirnir verða nánar auglýstir þegar nær dregur. Við í tenglahópi FAAS á Suður- nesjum horfum bjartsýnar til að fræðslu- og spjallfundir með Kaffi- húsabrag séu komnir til að vera. Við vitum að allir/flestir vilja búa heima svo lengi sem unnt er, en til þess þarf oftast aðstoð fjölskyldu og/ eða heilbrigðiskerfisins. Við teljum að þörfin fyrir almenna fræðslu um málefni Alzheimersjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma sé til staðar. Við höfum alla möguleika á að hafa slíka umræðu/fræðslu hér á heimaslóðum, en til þess þurfum við áhuga, mætingu og aðstoð úr ýmsum áttum. Fundirnir eru öllum opnir, við hvetjum félagsmenn og alla áhuga- sama að mæta og láta sig málið varða. FAAS félagið þarf á fleiri félagsmönnum að halda, aukinn liðsstyrkur ætti að auðvelda okkur að miðla þekkingu innan þessa stóra málaflokks. Við þökkum þeim sem veitt hafa FAAS félaginu stuðning fram að þessu, en betur má ef duga skal. Kær kveðja, FAAS tengiliðir á Suðurnesjum Aðalheiður Valgeirsdóttir, netpóstur heida@ds.is Ingibjörg Magnúsdóttir, netpóstur ingamagnusdottir@hotmail.com Helen Antonsdóttir, netpóstur helen_815@hotmail.com Eygló Antonsdóttir, net- póstur eyglo@sandgerdi.is Margrét Jónsdóttir, net- póstur maggaj@me.com Sigríður Þórólfsdóttir, net- póstur sigga2424@simnet.is Miðvikudaginn 6. febrúar var Dagur leikskólans sem hefur fest sig í sessi sem hátíðisdagur í leik- skólum landsins. Tilgangurinn er að m.a. að vekja athygli á mikilvægu hlutverki leikskólans og hvaða nám fer þar fram. Í tilefni dagsins voru framgluggar Tjarnarsels skreyttir með ljósmyndum af öllum leik- skólabörnum í leikskólanum, vegfarendum til skemmtunar og yndisauka. Hliðin sem snýr inn í leikskólann er skreytt af börnunum sjálfum. Einnig var sett upp kaffi- hús í fjölnota sal leikskólans og börnum og kennurum boðið upp á heitar vöfflur og súkkulaði að hætti okkar góðu matráða og stjórnendur skólans þjónuðu til borðs. Naglasúpugerð í leikskólanum Það er ýmislegt brallað í leikskól- anum Tjarnarseli og elstu börnin ásamt kennurum tóku sig til í lok janúar og elduðu NAGLASÚPU, eftir að hafa lesið bókina eftir Hugin Þór Grétarsson Naglasúpan, sagan af flækingnum sem sýður súpu með nagla einum saman. Börnin skrifuðu bréf og teiknuðu mynd af einhverju matarkyns sem þau vildu hafa og koma með að heiman til að setja í súpuna. Foreldrar tóku vel í verkefnið og börnin komu með lauk, gúrku, gulrófur, jarðarber og epli að heiman. Allt var mælt og vigtað í súpuna og auðvitað var stærðarinnar nagli grunnurinn í súpunni sem var elduð inni á deild og borðuð í hádeginu sama dag. Sum barnanna sögðu súpuna vera ,,sko mjúk og góð og alveg eins og súpa á að vera“ en aðrir sögðu ,,oj oj laukur.“ Undirritaðri var boðið í mat og fannst súpan ljúffeng. Inga María Ingvarsdóttir, leikskólastjóri Tjarnarsels Kaffihúsaspjall og pönnukökur! n ingA MAríA ingVArsdÓTTir skrifAr: Dagur leikskólans Fata- markaður í Grófinni Útibú fjöskylduhjálpar á Suðurnesjum opnaði verslun sína í Grófinni 10c, mánudaginn 21. janúar. Verslunin verður opin framvegis á milli klukkan 13:00 og 18:00. Á fatamarkaðnum er bæði nýr og notaður fatnaður. Notaði fatnaður- inn er mjög vel með farinn en markaðurinn er hugsaður fyrir alla Suðurnesjamenn og er til fjáröfl- unar. Fatnaðurinn á markaðnum er almennt seldur á 200-3000 krónur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.