Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 13
Instagram
VF
MUNDU EFTIR AÐ MERKJA
MYNDIRNAR ÞÍNAR Á INSTAGRAM
H ér má sjá glæsilegar myndir sem borist hafa Víkurfréttum í Instagram-leik blaðsins að undanförnnu. Framvegis verða veitt verðlaun aðra hverja viku en
áfram munum við birta skemmtilegar myndir í blaðinu hjá okkur
og á vf.is. Að þessu sinni eru myndirnar fjölbreyttar en töluvert
barst þó af myndum sem sýndu litadýrð Suðurnesjaskýja, enda
hefur sólroðinn verið afar fallegur undanfarna morgna. Taka skal
fram að engin þessara mynda hlýtur verðlaun að þessu sinni,
en þær eiga allar möguleika á glæsilegum verðlaunum í næstu
viku.
Fríhöfnin ehf. hlaut Starfs-menntaverðlaun Samtaka
Ferðaþjónustunnar, en þau voru
veitt í sjötta sinn á Degi mennt-
unar í síðustu viku.
„Stjórnendur Fríhafnarinnar leggja
mikla áherslu á markvissa stefnu í
mannauðsmálum, jafnréttismálum
og fræðslumálum starfsmanna
sinna. Markviss stefna í símenntun
hefur verið hluti af starfsemi Frí-
hafnarinnar sl. ár og mikill metn-
aður einkennir fræðslustarfið.
Með markvissu námi fyrir starfs-
menn mun Fr íhöf nin sk i l a
ánægðum starfsmönnum enda
sýna vinnustaðagreiningar að
starfsánægja hjá Fríhöfninni er
há, mælist 4,37 (af 5), en gerð var
könnun á vegum Capacent árið
2012,“ sagði Ásta Dís Óladóttir,
framkvæmdastjóri. Fríhöfnin var
valin fyrirmyndarfyrirtæki og varð
í 4. sæti af 93 þegar „Stofnun árs-
ins“ á vegum SFR var kynnt í maí
2012. Könnunin var gerð meðal
félagsmanna SFR á starfsskilyrðum
þeirra og líðan á vinnustað. Hún
náði til um 44 þúsund starfsmanna
á almennum og opinberum vinnu-
markaði, en SFR hefur verið í sam-
starfi við VR um valið á Stofnun
ársins og Fyrirtæki ársins um ára-
bil.
Eftirtalið var mælt; ánægja í starfi,
stolt, launakjör, vinnuskilyrði,
sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í
starfi, ímynd fyrirtækisins og trú-
verðugleiki stjórnenda. Eitt af því
sem bent var á var Fríhafnarskól-
inn en árið 2011 undirrituðu starfs-
menn og stjórnendur kjarasamning
sem fól í sér samkomulag um nám
og þjálfun starfsmanna sem metið
er til launahækkana.
Í kjölfar þess var sérstakt fræðslu-
ráð stofnað en í því eiga sæti starfs-
menn og stjórnendur fyrirtækisins.
Sameiginlega þróaði fræðsluráðið
námslínu í samstarfi við Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum, sem
hentar afar vel fyrir starfsfólk í
verslunum á alþjóðlegum flugvelli,
en Keflavíkurflugvöllur er bæði
fyrsti viðkomustaður erlendra
ferðamanna á Íslandi sem og hinn
síðasti. „Því skiptir miklu máli að
hafa vel þjálfað starfsfólk í versl-
unum fyrirtækisins. Það sýnir sig
að aukin menntun starfsmanna
hefur afar jákvæð áhrif á fyrirtækið
í heild, sem og á nærsamfélagið,“
sagði Ásta Dís.
Fríhöfnin ehf. hlaut
Starfsmenntaverðlaunin
saman. Til afnota er (50 yarda) 45
metra útilaug til að æfa í sem er
reyndar skipt upp í tvær 22 metra
laugar. „Við höfum annan endann
alveg útaf fyrir okkur, 10 brautir.
Sem er alls ekki slæmt, alltaf bara
tvær á braut, sem er mjög þægi-
legt eins og flestir sundmenn vita.
Einnig er skólinn með sex brauta,
22 metra innilaug sem við syndum
í á morgnana þegar það er mjög
kalt í veðri. „Á morgnana hér í New
Mexico er sko alls ekki heitt, hitinn
hefur farið allt niður í 5 gráður!“
Næstu fjögur árin dvelur Jóna
í Bandaríkjunum en hún saknar
óneitanlega heimahaganna. „Það
sem ég sakna mest að heiman er
fjölskyldan, vinirnir og kisan mín.
Svo sakna ég líka þess að geta farið
í heita pottinn eftir sundæfingar og
slakað á. Íslenski maturinn er líka
alltaf bestur,“ en Jóna nýtti tæki-
færið þegar hún kom heim um jólin
og borðaði vel af skyri og kókó-
mjólk. Ævintýrið er rétt að byrja og
Jóna segir þessa reynslu vera afar
skemmtilega. „Mér líður mjög vel
hérna, hef eignast góðar vinkonur
og allt er hreinlega frábært.“
Ásamt vinkonunum á amerískum fótboltaleik
Fyrsti þÁttur Frumsýndur
mÁnudagskvöldið
18. Febrúar kl. 21:30
og Á kapalkerFinu
í reykjanesbæ og Á vF.is
á ínntv
Suðurnesjamagasín
ferskur blær í sjónvarpi frá Suðurnesjum
TÖKUM VIÐ ÁBENDINGUM
UM ÁHUGAVERT EFNI Á VF@V
F.IS