Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 21 – Lifið heil Mixtúrur og Paratabs 15% afsláttur gildir út febrúar Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 29 67 0 2/ 13 Það er munur á kvefpest og inflúensu. Inflúensa er veirusýking sem einkennist af háum hita, hálsbólgu, hósta, máttleysi, kuldahrolli, vöðvaverkjum og höfuðverk. Inflúensa hellist yfir einstaklinga af krafti á meðan kvef kemur í mann smátt og smátt. Á hverjum vetri gengur inflúensa yfir og hægt er að láta bólusetja sig á heilsugæslu- stöð til að verjast veikinni. Kvef er líka veirusýking, dæmi- gerð einkenni kvefs eru hnerri, stíflað nef, hálssærindi, hósti og höfuðverkur. Einkennin vara oftast í vikutíma og eru mun vægari en einkenni inflúensu. Það er ekki hættulegt að fá kvef, við getum haft gott af því að fá örlítið kvef til þess að örva ónæmiskerfið. Ef að inflúensan eða kvefið breytist í bakteríusýkingu verða veikindin meiri, sem hægt er að meðhöndla með sýklalyfjum. Kvef og inflúensa smitast með úðasmiti og því er mesta hættan á að smitast þegar maður er í nálægð við annan veikan einstakling. Þegar talað er, hóstað eða hnerrað. Til að fyrirbyggja smit er mikil- vægt að láta sér ekki verða kalt og klæða sig vel. Handþvottur er ein árangursríkasta leiðin til að fyrirbyggja smit. Góður þvottur getur fjarlægt mestan partinn af þeim sýklum sem við getum haft á höndunum. Rök sápustykki geta verið smitberar fyrir veirur og bakteríur. Smitleiðir eru greiðar til annarra ef hóstað er og hnerrað er út í loftið. Mikilvægt er að koma í veg fyrir úðasmit með því að nota vasaklút, eða hnerra í olnbogabótina. Ef að veikindi koma upp á heimili skulu allir heimils- menn vera með sér handklæði. Á vinnustöðum ættu að vera einnota pappírsþurrkur til staðar. Nota einnota snýtiklúta til að snýta sér. Henda þeim í ruslið eftir notkun og þvo sér um hendur áður en nokkuð annað er gert. Gott er að skola hálsinn með munnskoli og nefið með saltvatns- dropum, það minnkar líkurnar á sýkingu í öndunarveginum. Það eru ekki til lyf eða bóluefni við kvefi. Líkaminn sjálfur vinnur á sýkingunni. Gott er að taka því rólega og reyna að láta sér líða vel, hægt er að nota hóstamixtúrur við hósta og nefúða við nefrennsli. Munnsogstöflur eru góðar til að hreinsa og mýkja hálsinn. Ekki er nauðsynlegt að með- höndla hita sem er undir 38,5°C, vegna þess að hitinn hefur lækningamátt og hjálpar til við að ná sýkingunni niður. Lækn- ingamáttur líkamans er mikill. Með kveðju Sigríður Pálína Lyfjafræðingur vf@vf.isPÓSTKASSINN n Sigríður pálína SKriFar: Kvef eða inflúensa Burnirót – Hið íslenska ginseng? Burnirótin (Rhodiola rosea á latínu) eða arctic root eins og hún er gjarnan kölluð er ein af mínum uppáhalds jurtum en ég nota hana talsvert í jurta- blöndurnar mínar. Burnirótin er ein vin- sælasta lækningajurtin í dag en upphaflega var hún notuð af rúss- neskum hermönnum til að auka frammistöðu þeirra og úthald, og einnig hefur hún verið notuð hjá ýmsum þjóð- flokkum í gegnum tíðina til að auka vinnuþrek og langlífi. Klínískar rannsóknir á burnirót sýna að hún eykur einbeitingu, líkamlegt og andlegt úthald, og vinnur gegn streitu og álagi. Hún hefur áhrif á innkirtakerfi líkam- ans og framleiðslu taugaboðefna og dregur úr streituviðbrögðum. Hún virðist einnig hafa sterka andoxunarvirkni, vernandi áhrif á lifrarfrumur og ónæmisstyrkjandi áhrif. Þrátt fyrir að hafa aukandi áhrif á orku þá virðist hún ekki hækka blóðþrýsting eins og margar teg- undir ginsengs gera. Burnirótin er gjarnan notuð gegn orkuleysi, sleni, depurð/þunglyndi, streitu, ófrjósemi og minnkaðri kyn- löngun. Mín reynsla af notkun hennar er sú að hún gagnast afar vel ef um orkuleysi, depurð og mikla streitu er að ræða og einnig til að skerpa á einbeitingu og virkni heilans. Hún hefur reynst íþróttamönnum og fólki sem æfir mikið mjög góð til að auka úthald. Hún getur aukið áhrif annarra örvandi lyfja/bæti- efna og því þarf að hafa það í huga í þeim tilfellum. Burnirótin er mjög fjölvirk jurt og er mælt með að taka hana ekki seint á daginn eða kvöldin, en æskilegt er að taka hana inn á morgnana og/hádeginu. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.is/grasalaeknir Ásdís grasalæknir skrifar heIlsUhoRnIð fyrsti þÁttur frumsýndur mÁnudagskvöldið 18. feBrúar kl. 21:30 og Á kapalkerfinu í reykjanesBæ og Á vf.is á ínntv Suðurnesjamagasín fer sk ur blæ r í sjó nv arp i fr á S uð urn es jum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.