Víkurfréttir - 07.02.2013, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR14
Hann lá hreyfingarlaus fyrir framan sjón-
varpið og ef hann hefði ekki skipt um rás á
sjónvarpinu með reglulegu millibili hefði
ég haldið að hann væri ekki með lífsmarki.
Ég var búin að gera nokkrar tilraunir til að
horfa á eitthvað með honum en um leið
og ég var að komast inn í það sem var á
skjánum, skipti hann um stöð. Var hann
að reyna að segja mér eitthvað? Ég leit á
hann og sagði: er ekki allt í lagi, þú ert eitt-
hvað svo fjarrænn?
Hann leit á mig með tómum
augum, rétt eins og hann hafi
hreinlega ekki tekið eftir að ég
væri þarna og svaraði: ha, jú jú
allt í góðu!
Þetta var ekki nógu gott svar: ertu
viss elskan, mér finnst þú eitthvað
svo fjarrænn?
Hann leit á mig aftur og sagði
ákveðið: það er ekkert að ANNA
LÓA!
ÚFF, það var greinilega eitthvað
mikið að, nú þurfti ég að kryfja.
Þá mundi ég allt í einu eftir tóma
hólfinu – hann var í TÓMA
HÓLFINU!
Ég hef áður talað um að heilar kvenna og
karla séu ólíkir og eftir ítarlega heimildaleit
og ábendingar frá lesendum Hamingju-
hornsins er ég sannfærð um þetta. Sam-
kvæmt „kenningunni“ eru karlmanns-
heilar með fullt af hólfum og í hverju hólfi
er ákveðinn málaflokkur. Þannig er hólf
fyrir konuna, annað fyrir börnin, hólf fyrir
foreldra og annað fyrir tengdó, hólf fyrir
vinnuna og bílinn, vinina, golfið og svo
framvegis. Þegar karlmenn þurfa að ræða
málin fara þeir og opna tiltekið hólf og
ræða BARA það sem er inni í því hólfi og
passa að það snerti ekki neitt annað hólf.
Heilinn á konum er frekar eins og víra-
flækja þar sem allt tengist. Tilfinningar
blandast saman við víraflækjuna og
búmm, mjög eldfim blanda. Öll málefni
fara einhvern veginn í graut þannig að ef
eiginmaðurinn er t.d. þögull sem steinn,
kveikja tilfinningar neista í víraflækjunni,
það logar allt og konan er viss um að það
sé eitthvað stórkostlegt í gangi sem hún
verður að „laga“. Í verstu tilvikum gýs upp
brunalykt þegar skammhlaup á sér stað
og konuheilinn við það að springa vegna
þessa stórkostlega „vanda“ sem heilinn
hennar greinir.
En það er eitt hólf sem karlmenn eru með
sem er svolítið merkilegt en það er kallað
tóma hólfið. Þetta er uppáhalds hólfið
þeirra sem þeir opna við hvert tækifæri.
Eins og nafnið gefur til kynna þá er ekk-
ert í þessu hólfi og engin hugsun sem á
sér stað þegar þeir opna það. Það skýrir
hvernig þeir geta staðið ofan í ískaldri á,
marga klukkutíma í einu með veiðistöng
án þess að nokkuð sé að gerast og starað
út í tómið. Þess vegna geta þeir legið fyrir
framan sjónvarpið með fjarstýringu í hönd
og skipt um stöðvar endalaust án þess að
vera að hugsa eða horfa eða verið með-
vitaðir um aðrar lifandi verur í nánasta
umhverfi.
Þegar konur takast á við erfiðleika og
streitu vilja þær tala um það. Ef mér líður
illa verð ég að deila vandanum en þá
líður mér betur jafnvel þó lausnin sé ekki
komin. Ef hann er ekki til í að hlusta þá á
ég á hættu að heilinn í mér springi. Þegar
ég segi honum frá vandamálunum mínum
finnur hann fyrir pressu til að bjarga mál-
unum á meðan ég þurfti bara einhvern
sem er til staðar og hlustar.
En af því að honum þykir vænt um mig
þá hlustar hann og gefur mér svo sitt besta
ráð og segir: hættu bara að hugsa um
þetta, hættu bara að tala um þetta. Þá verð
ég auðvitað ótrúlega sár því það eina sem
ég vildi var að hann mundi hlusta.
Þegar karlmenn takast á við erfiðleika og
streitu kjósa þeir ekkert frekar en að fara
inn í tóma hólfið sitt. Þeir vilja fá frið –
ekki hugsa né tala, bara vera. Hvað geri ég
– kem með mitt besta ráð: þú verður bara
að tala um þetta, hvað er að angra þig! Það
síðasta sem hann vill gera er að tala um
það – við verðum að skilja það! Leyfum
þeim bara að fara í tóma hólfið sitt og jafna
sig – heilinn þeirra mun ekki springa!
Þangað til næst - gangi þér vel!
Anna Lóa
Fylgstu með mér - http://www.
facebook.com/Hamingjuhornid
Hann er í tóma hólfinu!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
Það skýrir hvernig
þeir geta staðið ofan
í ískaldri á, marga klukkutíma
í einu með veiðistöng án þess
að nokkuð sé að gerast og
starað út í tómið. Þess vegna
geta þeir legið fyrir framan
sjónvarpið með fjarstýringu
í hönd og skipt um stöðvar
endalaust án þess að vera
að hugsa eða horfa eða verið
meðvitaðir um aðrar lifandi
verur í nánasta umhverfi.
Frekari upplýsingar um starð:
Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að
umsækjandi geti hað störf sem fyrst. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi ármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags. Sótt er um starð
rafrænt á; www.hss.is undir „Laus störf“. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í
6 mánuði. Vakin er athygli á því að
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er reyklaus
vinnustaður.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2013
Nánari upplýsingar veitir Ágústa Guðmarsdóttir
aðalbókari í síma 422 0581 eða með tölvupósti
á netfangið agusta@hss.is. Elís Reynarsson,
framkvæmdastjóri ármála og rekstrar í síma
422-0599 eða með tölvupósti á netfangið
elis@hss.is
BÓKARI
AUGLÝST ER EFTIR BÓKARA TIL STARFA Á SKRIFSTOFU HEILBRIGÐISSTOFNUNAR SUÐURNESJA
Helstu verkefni og ábyrgð:
Hæfniskröfur:
og tölvukunnáttu.
eða menntun sem nýtist í star.
ATVINNA
Bláa lónið með
fjórar tilnefn-
ingar til Vef-
verðlaunanna
Íslensku Vefverðlaunin verða afhent í Eldborgarsal Hörpu
föstudaginn 8. febrúar kl. 17.00.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, mun afhenda verð-
launin við hátíðlega athöfn.
Veitt eru verðlaun í tíu flokkum og
er vefur Bláa lónsins tilnefndur í
þremur flokkum. Vefur Bláa lóns-
ins er tilnefndur í flokkunum Besta
útlit og viðmót, Besti þjónustu- og
upplýsingavefurinn, og Besti sölu-
og kynningarvefurinn (með fleiri
starfsmenn en 50).
Vefhönnunarfyrirtækið Kosmos
& Kaos frá Reykjanesbæ er jafn-
framt tilnefnt til Íslensku Vefverð-
launanna að þessu sinni. Kosmos &
Kaos er tilnefnt í flokknum Frum-
legasti vefurinn.
Viðtöl við leik-
skólabörnin í
Gefnarborg
Róbert aron 5 ára
Hvað gerir þú í
leikskólanum?
Leik mér, fer í
tölvu og hvíli mig
Hvað er
skemmtilegast
að gera í leik-
skólanum?
Fara í tölvuna,
leira og lita
Ef þú værir leikskólakennari
hvað myndir þú gera með börn-
unum?
Þegar ég verð stór verð ég
læknir og vinn á leikskóla og
kenni börnunum að hlusta
Hjörtur Ingi 5 ára
Hvað gerir þú í
leikskólanum?
Leik með
smellukubba
og holkubba
Hvað er
skemmtilegast
að gera í leik-
skólanum?
Leika með
smellukubba, leika í dýn-
unum í salnum og skrifa
tölur og reikna í skólahóp
Ef þú værir leikskólakennari
hvað myndir þú gera með börn-
unum?
Kenna þeim að tala
fallega við hvert annað
jóhannes Kristinn 5 ára
Hvað gerir þú í
leikskólanum?
Leira, spyr spurn-
inga og perla. Ég
er aðeins minni
en skólakrakkar
þess vegna er
ég í leikskóla.
Hvað er
skemmtilegast
að gera í leikskólanum?
Leika í dýnum
Ef þú værir leikskólakennari
hvað myndir þú gera með börn-
unum?
Leika fallega
magdalena maría 5 ára
Hvað gerir þú í
leikskólanum?
Lita
Hvað er
skemmtilegast
að gera í leik-
skólanum?
Fara í búninga
og byggja hús
Ef þú værir leik-
skólakennari hvað myndir þú
gera með börnunum?
Passa alla og vera góð
nökkvi Steinn 5 ára
Hvað gerir þú í
leikskólanum?
Leik mér
Hvað er
skemmtilegast
að gera í leik-
skólanum?
Leika úti og
leika með
vinum mínum
Ef þú værir leikskólakennari
hvað myndir þú gera með börn-
unum?
Kenna þeim ýmislegt eins og
að sitja kyrr á rassinum og
svo myndi ég leika með þeim
með fuglagrímuna mína
FyRSTI þáTTuR FRumSýNDuR
máNuDAgSKvöLDIð
18. FebRúAR KL. 21:30
og á KApALKeRFINu
í ReyKjANeSbæ og á vF.IS
á íNNtv
Suðurnesja
magasín
ferskur blær í sjónvarpi frá Suðurnesjum