Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2007, Page 8

Bæjarins besta - 11.01.2007, Page 8
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 20078 STAKKUR SKRIFAR Kosningaárið „mikla“ Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Það er fallegt í Bolungar- víkinni. Þar er gott að búa og fátt betra en að vakna á morgn- ana með fjölskyldunni og halda svo saman, gangandi út í fallegan daginn. Úti er myrk- ur á janúarmorgninum, en yndislega milt veður og snjór á götum og gangstéttum. Við erum heppin hér, því það er hægt að ganga næstum óhindr- að eftir göngustíg frá húsinu okkar að Grunnskóla Bolung- arvíkur. Þetta er einn af kost- unum við smæðina. Að maður er öruggur um börnin sín í um- ferðinni. Eða hvað? Reynslan hefur kennt mér annað. Nú þori ég vart að leyfa ungum börnum mínum að nota göngu- stíg þann sem liggur milli Vitastígs og Skólastígs og svo aftur til Höfðastígs á leið í skólann. Svo oft höfum við dóttir mín, sem situr í fyrsta bekk, lent í því á leið okkar að stórar jeppabifreiðar hafa ekið inn á þennan gangstíg eins og um umferðargötu sé að ræða. Þetta hefur gerst svo oft að nú er mér ekki til setunnar boðið. Úti er myrkur og börnin halda að þetta sé göngustígur fyrir þau og eru því alls ekki við- búin því að þurfa að hrökkva undan stórum bifreiðum á leið sinni þarna á milli. Þessa leið nota þau börn sem stunda nám við Grunnskólann auk þeirra sem fara í sundlaug eða íþrótta- hús svo líklega má ætla að þetta séu nokkur hundruð ferðir barna á hverjum degi. Nokkur hundruð börn þurfa að hafa óttast um líf sitt og limi þegar þau ganga á göngu- stíg Bolungarvíkur því eig- endur stórra bifreiða þurfa að nota göngustígana undir bíl- ana sína? Hvernig má þetta vera? Eru götur Bolungarvík- ur ekki nógu góðar fyrir bílana okkar? Ég held að ástæðan liggi frekar í hugsunarleysi. Ég held að Víkarar séu ekki fantar. Ég vona ekki. Og fyrst ég er byrjuð þá er best að minnast á annað mál- inu tengt. Í morgun þegar við dóttir mín vorum á leið í skól- ann og skutluðumst frá jepp- anum sem þurfti að komast leiðar sinnar á göngustígnum tókum við eftir því að jeppa- bifreiðin stöðvaðist við hús eitt og út stökk bílstjórinn. Bíllinn var skilinn eftir í gangi eins og tíðkast hér í Víkinni. búa. Þau eiga rétt á því að við skilum andrúmsloftinu eins hreinu til þeirra og við tökum við því. Eins eru þau forvitin að eðlisfari og geta því hæg- lega tekið upp á því að skríða upp í gangsettar bifreiðar og Guð einn veit þá hvað gerst getur. Í vikunni bárust fregnir af ungum börnum austur í Evr- ópu sem drukknuðu í bíl for- eldra sinna. Foreldrarnir brugðu sér út úr bílnum til að kaupa miða í ferju sem ætlunin var að taka. Þau skildu börnin eftir í bílnum sem var í gangi. Bíll- inn hrökk svo af einhverjum ástæðum úr gír og rann út í Dóná með þessum skelfilegu afleiðingum. Ekkert var hægt að gera. Því fór sem fór. Við höfum ekki Dóná hér í Bol- ungarvík, en við höfum annars konar hættur. Það eru fá rök með því að skilja bílinn eftir í gangi á meðan skroppið er inn í kaffi hjá vinunum í næsta húsi. Við höfum tekið eftir sömu bílun- um í gangi stundunum saman á ferðum okkar um Víkina. Þó fólk kjósi að aka á milli húsa hér er ekki endilega nauðsynlegt að skilja bílinn eftir í gangi á meðan á heim- sókn stendur. Það er ekki það kalt hér að við þurfum að óttast kul á útlimum á heimleiðinni í bílnum. Sýnum gott fordæmi í um- ferðinni. Við erum fyrirmynd- in, við getum breytt rétt því við erum frábær í Víkinni fögru! Bolungarvík, 4. janúar 2007, Helga Vala Helgadóttir. Þetta er mér algerlega óskilj- anlegt. Af hverju „drepa“ Vík- arar ekki á bílunum sínum þegar þeir halda inn í hús að sinna erindum sínum. Aftur vísa ég til barnanna sem hér Helga Vala Helgadóttir. Eru Víkarar fantar í umferðinni? Bolungarvík semur við Símann Bæjarstjóra Bolungarvíkur hefur verið falið að ganga til samninga við Símann hf., á grundvelli samnings byggðum á ríkiskaupasamningi. Var það afráðið á fundi bæjarráðs á dögunum. „Við vorum nú þegar með samning við Símann en um er að ræða hagræðingar- samning. Við erum ekki að minnka viðskiptin við önnur fyrirtæki heldur eingöngu að hagræða samningnum við Símann“, segir Grímur Atlason, bæjarstjóri. Samningurinn gildir í tvö ár. Dagatal Önfirðingafélagsins komið út Fyrir stuttu var borið út á öll heimili í Önundarfirði dagatal Önfirðingafélagsins 2007, einnig var það borið út til allra félagsmanna, ætti það því að prýða marga veggi á landinu í dag. Á dagtali þessa árs eru fjórar myndir í hverjum mánuði og auk þess fjórar myndir á kápu eða 52 myndir og má því segja að ein mynd sé fyrir hverja viku ársins. Ön- firðingafélagið í Reykjavík hefur gefið út dagatöl frá árinu 1992 og er þetta því 15. árið sem dagatölin eru gefin út. Þau hafa skapað sér veglegan sess í félagsstarfinu og farið víða og verið góð kynning þess sem önfirskt umhverfi hefur upp á að bjóða. ATVINNA Sundhöllin við Austurveg á Ísafirði óskar eftir konu í fullt starf. Um tíma- bundna ráðningu er að ræða með möguleika á framtíðarráðningu. Skil- yrði er að umsækjendur séu vel á sig komnir líkamlega, standist sundpróf, hafi ríka þjónustulund og eigi gott með að vinna með fólki. Upplýsingar gefur Guðjón í síma 456 3200. Lisa Ekdahl syngur í Víkurbæ Sænska söngkonan Lisa Ekdahl heldur tónleika í Víkurbæ í Bol- ungarvík þann 3. mars. Lisa Ekdahl er mörgum kunn á Íslandi og má segja að hún sé sannkallaður Íslandsvinur. Hún hefur spilað ásamt hljómsveit í Austurbæjarbíói og Háskólabíói fyrir troðfullu húsi. Að þessu sinni er Lisa á ferð með kassagítar og undirleikaranum Mattias Blomdahl sem spilar á gítar, hljómborð og önnur hljóðfæri. Söngkonan mun halda þrenna tónleika á landinu í mars og auk tón- leikanna í Víkurbæ mun hún koma fram á Nasa í Reykjavík og á Græna Hattinum Akureyri. „Draumur hennar var að spila úti á landi á Íslandi og þann draum lætur hún rætast nú. Lisa Ekdahl á tryggan hóp aðdáenda hér á landi og má með sanni segja að sú að- dáun sé gagnkvæm þegar kemur að landi og þjóð“, segir í tilkynn- ingu. Lisa Ekdahl sló í gegn með hljómplötunni Vem vet árið 1994 en það var hennar fyrsta plata, en hún er ein sú söluhæsta á Norður- löndunum til þessa dags. Lisa Ekdhal hefur síðan farið ýmsar leiðir í tónlistarsköpun sinni, allt frá djassi og bossanova yfir í popp. Miðasala er á midi.is og í verslunum Skífunnar og velvöldum BT verslunum. Miðaverð er 2900 krónur. – thelma@bb.is Það er gott til þess að vita að Kristinn H. Gunnarsson er í fullu fjöri og ákafinn mikill að vinna vel meðan krafturinn er fyrir hendi. Engu að síður er óupplýst enn hvar hann hyggst beita kröftum sínum. Spennandi verður að sjá hver framvinda mála verður í Frjálslynda flokknum. Magnús Reynir Guðmundsson er orðinn framkvæmdastjóri um stund. Sjálfstæðisflokkur býr samkvæmt skoðanakönnun við minnst fylgi á Vestfjörðum. Þar á hann tvo ráðherra og prýðilegan þingmann, Einar Odd Kristjánsson, sem óhræddur er við að hafa skoðanir og halda þeim fram. Reyndar er Einar Oddur gæddur þeirri náttúru að fá góðar hugmyndir og þora að brjótast út úr viðjum vanans. Slíkir menn eru of fáséðir. Nægir að minnast þess að hann tók höndum saman við forystumenn ASÍ meðan hann stóð í brúnni vinnuveitendamegin. Þótt Þjóðarsáttin hefði ekki komist á án þátttöku margra er ljóst að Einar Oddur fór þar fremstur meðal jafningja. Aðferðafræðin var nýlunda í raun. Brátt eru liðin 17 ár frá því ASÍ, VSÍ og Stéttarsamband bænda náðu samningi og ríksstjórn lagði sitt af mörkum. Samkomulag var undirritað 2. febrúar 1990. Mörgum hefur orðið hugsað aftur þessi 17 ár þegar verðbólgan hefur tekið kippi. Þeir hafa þó ekki verið neitt í líkingu við ástandið sem þá ríkti. Nærri 16 ár hefur setið ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokks, að frátal- inni tíð Halldórs Ásgrímssonar í tæp tvö ár. Í upphafi var Alþýðuflokkur í samstarfi eitt kjörtímabil. Framsóknarflokkur tók þá sæti í stjórn og hefur það samstarf reynst farsælt, þó ekki að mati stjórnarandstöðu. Nú velta margir fyrir sér framtíðinni í þessum efnum. Innlegg Valgerðar Sverrisdóttur er eftirtektarvert. Utanríkisráðherra vill taka upp evru í stað krónu og gera það án þess að ganga í Evrópusambandið. Hvað er orðið um ungmennafélagshugsjónina, Íslandi allt? Voru það kannski eftir allt saman mistök að berjast fyrir sjálfstæði alla síðustu öld? Hvers vegna á að taka upp evru í stað krónu, en standa samt utan Evrópu- sambandsins? Fróðlegt væri að fá skýr svör við þessum eeinföldu spurning- um. Framsóknarmenn eru vart svo taugaveiklaðir að vilja ekki lengur vera íslenskir. En búast má við því að evrumálið verði kosningamál sé alvara fólgin í orðum utanríkisráðherra. Þá fæst úr vilja kjósenda skorið. Nær væri að taka upp sterlingspund. Bretar er næstir okkur af stóru ríkj- um Evrópu og þrátt fyrir að hafa staðið í þorksastríðum við Íslendinga eru þeir góðir bandamenn. Að öllu gamni slepptu er brýnna að leysa úr verð- bólgu og ,,vaxtaverkjum” heima fyrir en að grípa næstu ódýru lausnina sem blasir við. En trúlega veit utanríkisráðherra að fiskimið eru góð skipti- mynt í samskiptum ríkja. Verður kosið um þau? Atkvæðin eru Íslendinga.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.