Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2007, Page 11

Bæjarins besta - 11.01.2007, Page 11
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2007 11 a um allan heim dekkinu eins og á Íslandi.“ Lærðu hjá bandarísk- um lífsleiknigúrú „Þegar við komum heim höfðu sonur minn og tengda- dóttir ákveðið að fara á nám- skeið hjá Antony Robins, sem er bandarískur lífsleiknigúru. Þeim fannst alveg nauðsyn- legt að við hjónin kæmum með og tileinkuðum okkur þann lífsstíl sem þar er kennd- ur. Mánuði seinna vorum við lögð af stað til London á þetta fimm daga námskeið. Robins kenndi þetta sjálfur, byrjaði klukkan átta eða níu á morgn- ana og kenndi fram á kvöld- mat, án hléa. Hann stóð uppi, talaði og hljóp og var bókstaf- lega á ferðinni allan daginn. Þarna vorum við á átta til tólf tíma löngum fundum og stóð- um uppi hluta af námskeiðinu, og maður fann aldrei fyrir þreytu. Ég hefði aldrei trúað því fyrirfram, en eftir þessa ströngu törn hafði maður meiri orku en áður. Námskeiðið endaði á því að hann tók allan hópinn út og lét okkur ganga berfætt á tíu metra langri glóðarrönd. Ég velti því fyrir mér hvort ég væri orðinn brjálaður, að verða sjötugur og ætlaði að enda ævina með ónýta fætur, búinn að brenna undan mér lappirnar. En ég lét mig hafa þetta og komst að því að þetta er ekkert mál. Maður getur gert hvað sem maður vill ef maður bara undirbýr sig nógu vel og trúir á það sem maður er að gera. Þegar ég kom heim af nám- skeiðinu hafði ég það mikla trú á því að ég gæti gert það sem ég vildi að ég dembdi mér beint í prófkjör og vann sjálfur alla þá vinnu sem því fylgir. Að vísu náði ég nú ekki miklum árangri í kjörinu sjálfu, en hafði þó orku og vilja í að ráðast í þetta, sem er afrek út af fyrir sig.“ Flogið til Ástralíu „Ína konan mín hafði í nokkur ár verið yfirmaður Zonta-hreyfingarinnar á Ís- landi og átti að skila því em- bætti af sér á heimsþingi hreyf- ingarinnar í Melbourne í Ástra- líu sem haldið var í júní í fyrra. Á árum áður hafði ég verið umdæmisstjóri Lyons og hún fylgdi mér í allar þær ferðir sem ég fór í. Á sama hátt vildi ég fylgja henni í þessa ferð og úr varð að við fórum ásamt tæplega tuttugu öðrum Íslend- ingum. Við flugum út frá London til Singapore þar sem við stoppuðum í þrjá daga og skoðuðum borgina. Frá Singa- pore flugum við til Sindney sem er alveg ofboðslega falleg borg. Það er svakalega gaman að koma til Ástralíu, því Ástralir eru alveg stórmerkileg þjóð. Þetta er auðugt land og menn hafa farið vel með auðinn. Allt sem snýr að fólki, öll þjónusta, allur túrismi og allt er algjör- lega fyrsta flokks. Í Melbourne gengum við karlmennirnir um nánasta um- hverfi borgarinnar á meðan konurnar sátu þingið. Mel- bourne er líka stórmerkileg. Þetta var um tíma höfuðborg Ástralíu, byggðist upp vegna þess að hún er í nágrenni við gullnámur sem nýttar voru.“ Eiga erfitt með að lifa í vestrænu samfélagi „Að þinginu loknu flugum við til Alice springs sem er í miðju landsins, mitt í auðninni og í 1.500 kílómetra fjarlægð frá næsta bæ. Þar skoðuðum við meðal annars Ayers rock, sem er svona járnleirstappi sem stendur einn og sér upp úr sléttunni. Ayers rock er mjög heilagur hjá frumbyggjum Ástralíu. Núna er búið að afhenda frum- byggjum landsins aftur marga af þeirra helgustu stöðum, en það kemur eiginlega til af samviskubiti út af útrýming- aráætlunum sem framfylgt var af stjórnvöldum á fyrri hluta síðustu aldar. Frumbyggjar Ástralíu eru á allt öðru stigi en aðrir í landinu og margir þeirra eiga erfitt með að lifa í vestrænu samfé- lagi. Það var mjög sorglegt að sjá fólkið liggja á grasbölum í miðjum bænum með brenni- vínsflösku í hendi.“ Miklir mynd- listahæfileikar „Sem betur fer tekst mörg- um að halda sig frá brenni- víninu sem virðist leggjast óskaplega illa í þetta fólk. Þegar það tekst koma hæfi- leikar þess í ljós, en þeir virð- ast liggja mikið í myndlist. Við komum út í frumbyggja- þorp og hittum þar fjórar manneskjur sem sátu í jörðinni og voru eitthvað að sýsla. Leiðsögumaður sem var með okkur kynnti okkur fyrir einni konunni og sagði að hún hafi hannað merki Quantas flugfé- lagsins og sæti í stjórn fyrir- tækisins. Sérsvið frumbyggjanna í mál- aralistinni eru svona punkta- myndir, þar sem milljónir punkta í hinum og þessum litum gera eina heild. Þetta eru gríðarlega flottar myndir sem príða veggi margra stær- stu listasafna heimsins.“ Endaði sem forsöngvari „Eitt kvöldið var haldin veisla við Ayers rock. Þegar það hafði dimmt kom stjörnu- fræðingur og sýndi okkur öll helstu og merkilegustu stjörnu- merkin, sem ég man nú ekki hvað heita nema Suðurkross- inn. Þegar menn höfðu étið og drukkið eins og þeir gátu, var kveikt upp í bálkesti og byrjað að syngja ýmsa fjöldasöngva á ensku. Það endaði með því að ég var orðinn forsöngvari, því ég var sá eini sem kunni eitthvað af enskum textum. Það sem við Íslendingar áttum okkur ekki á er að þeir sem hafa verið á þorrablótum og öðrum slíkum samkomum kunna ótrúlega mikið af skandi- navískum, breskum og banda- rískum sönglögum. Ástralíuferðina enduðum við svo með því að fara til Cairns sem er sumarleyfis- borg Ástrala og liggur rétt við Kóralarifið mikla sem er um 1.500 kílómetra langt. Við sigldum út að rifinu, köfuðum og skoðuðum þetta ótrúlega lífríki sem fylgir kóralarifum.“ Fríið byrjaði eftir fjórar vikur „Síðasta haust fór ég síðan í sjö vikna ferð til Tælands. Þannig er mál með vexti að ég hef alla tíð þjáðst af miklu skammdegisþunglyndi. Þegar ég var ungur maður lét ég mig hreinlega hafa það, enda réð ég miklu betur við það á þeim tíma. Síðustu ár hefur það aftur á móti verið partur af mínu vetrarprógrammi að fara „Sem betur fer bráðnaði mesta þunglyndið af mér þegar ég hafði vanist hitanum og þá fyrst byrjaði fríið. Þá komst ég að því hvað Tæland er ótrúlegt land. Fegurð landsins er gríðarlega mikil og fólkið tekur mjög vel á móti manni.“ til sólarlanda í nokkrar vikur að hausti og aftur í nokkrar vikur að vori. Ég hef yfirleitt farið til sól- arlandastaða sem eru Íslend- ingum vel kunnir, en var bent á að fara til Tælands sem ég ákvað svo að gera. Ég hefði kannski átt að undirbúa mig betur, því fyrstu fjórar vikurn- ar af ferðinni var ég þjakaður af þunglyndi, þekkti ekkert inn á landið og fór ekki út úr húsi. Sem betur fer bráðnaði mesta þunglyndið af mér þeg- ar ég hafði vanist hitanum og þá fyrst byrjaði fríið. Þá komst ég að því hvað Tæland er ótrú- legt land. Fegurð landsins er gríðarlega mikil og fólkið tekur mjög vel á móti manni. Þó fyrstu fjórar vikurnar hafi verið hálf ömurlegar voru þær seinni þrjár meiriháttar og þess vegna hef ég ákveðið að fara aftur út eftir nokkrar vikur.“ Úlfar undirbýr sig undir köfun við kóralrifið mikla í Ástralíu.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.