Bæjarins besta - 11.01.2007, Side 12
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 200712
Röng verkfræðistofa
bendluð við verkið
Vegna athugasemdar Árna
Traustasonar við viðtal við
mig í 52. tölublaði BB lang-
ar mig að koma eftirfarandi
á framfæri:
Athugasemd Árna, sem er
umboðsmaður verkfræði-
stofunnar VST á Ísafirði, á
fullan rétt á sér. Þ.e.a.s. ég
hafði tilgreint í þessu viðtali
verkfræðistofuna VST sem
kom hvergi nærri umræddu
máli eða verki sem þarna var
fjallað um. Þarna geri ég þau
leiðu mistök að bendla ranga
verkfræðistofu við verkið,
og bið ég Árna og aðra hlut-
aðeigandi afsökunar á þeim.
Aftur á móti ætla ég að nýta
mér það frelsi að halda mig
við það sem þarna kom
fram. Þar ræður hvorki ann-
arlegt ástand, meint heimska
né nokkuð annað heldur en
einfaldlega mín persónulega
skoðun!
Kristján Freyr Halldórs-
son, Barmahlíð 27, 105
Reykjavík.
Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins haldið 26. janúar
Hið víðfræga Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið með pompi og prakt þann 26. janúar. Dagskrá hátíðarinnar, sem
haldin verður á Broadway, er glæsileg og verður endað á balli með Milljónamæringunum ásamt Páli Óskari og Ragga Bjarna. „Nú
ætlum við að blása í alla herlúðra og ná saman stærri hópi en nokkru sinni fyrr“, segir m.a. í tilkynningu frá aðstandendum. Sú ný-
breytni verður tekin upp að þessu sinni að árgangar eða félagasamtök geta tryggt sér sérborð kaupi þeir 10 miða eða fleiri í forsölu. Þá
hefur Flugfélag Íslands sett upp nettilboð á flugi frá Ísafirði til Reykjavíkur þessa helgi og Hótel Park Inn Ísland verður með sérstakt
tilboð fyrir gesti á Sólarkaffi. Forsala aðgöngumiða fer fram á Broadway laugardaginn 20. janúar milli kl. 14 til 16 og síðan í miðasölu
Boadway í síma 533 1100, en Sólarkaffið er eins og áður segir haldið á Broadway föstudaginn 26. janúar n.k, og opnar húsið kl. 20.
Alls voru sjúkraflutningar
Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar
252 á árinu 2006. Þetta kemur
fram í nýrri ársskýrslu slökk-
viliðsins. Af þessum 252
sjúkraflutningum voru 53 for-
gangsflutningar, almennir
flutningar voru 183 og aðrir
flutningar voru 16 talsins.118
sjúkraflutninganna voru inn-
anbæjar, 10 frá Suðureyri, 14
frá Flateyri, 9 frá Þingeyri, 3
frá Bolungarvík, 9 frá Súðavík
og 5 úr Ísafjarðardjúpi. 25
voru í sjúkraflug til Reykjavík
og jafn margir í sjúkraflugi
frá Reykjavík.
Fjórtán sinnum var um að
ræða fylgd í sjúkraflug, 15
tilfelli eru mertk „yfirfarið
flugstell“. Önnur útköll voru
fimm talsins. Flestir voru
flutningarnir í desember eða
33.
Næstflestir voru þeir í mars,
eða 31, þá í febrúar þegar þeir
voru 29 talsins, og svo í janúar
er þeir voru 28 talsins.
Í apríl voru 21 flutningar,
17 í maí, 16 í júní, 14 í júlí, 17
í ágúst, 18 í september, og 14
bæði í október og nóvember.
– eirikur@bb.is
252 sjúkraflutn-
ingar á síðasta ári
Hver gestur að meðaltali í 1,8 næt-
ur fyrstu fjóra mánuði síðasta árs
Fyrstu fjóra mánuði ársins
2006 keyptu erlendir ferða-
menn 14,6% gistinótta á hót-
elum og gistiheimilum á Vest-
fjörðum, samkvæmt nýjustu
tölum frá Hagstofu Íslands.
Þá voru seldar gistinætur á
gistiheimilum og hótelum alls
2.711, en þar af gistu Íslend-
ingar í 2.315 nætur en útlend-
ingar í 396 nætur. Alls voru
gestir á þessu tímabili 1.502,
og gisti því hver þeirra að
meðaltali í 1,8 nætur. Íslenskir
gestir voru 1.281, og gisti því
hver Íslendingur að meðaltali
í 1,81 nótt. Erlendir gestir voru
221 og gisti því hver þeirra að
meðaltali í 1,79 nætur.
Átta árum fyrr, fyrstu fjóra
mánuði ársins 1998, voru alls
seldar 2.094 gistinætur. Af
þeim keyptu erlendir gestir
329, eða 15,7%, en Íslend-
ingar 1.765. Alls voru gestir
1.091 á tímabilinu og gisti
hver þeirra því að meðaltali
1,91 nótt. Íslenskir gestir voru
947 og gisti því hver þeirra að
meðaltali í 1,86 nætur. Erlend-
ir gestir voru 144 og gisti því
hver þeirra í 2,28 nætur.
Rétt er að taka fram að um-
ræddir mánuðir eru utan helsta
ferðamannatímabils, og gefa
því einungis til kynna hver
staðan er ákveðna mánuði
utan vertíðar, og ekki sjálf-
gefið að sú mynd hafi nokkuð
með heildarmynd ársins að
gera.
Tölurnar hér að ofan eru
fengnar frá Hagstofu Íslands,
og miðast við hótel og gisti-
heimili, sem svo eru skráð hjá
Hagstofu Íslands. Í því felst
að hér eru ótaldar gistinætur
og gestakomur á öðrum teg-
undum gististaða.
– eirikur@bb.is Hótel Ísafjörður.
Niðurgreiðsla til dagmæðragjalda
hækkar um 51% til forgangshópa
Niðurgreiðsla dagmæðra-
gjalda í Ísafjarðarbæ verður
hækkuð og er miðað við sama
gjald og í leikskóla, sam-
kvæmt frumvarpi til fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2007. For-
sendur fyrir gjaldinu er gjald-
skrá dagforeldris og niður-
greiðslan mismunur á því og
leikskólagjaldi. Niðurgreiðsla
hækkar um 51% til forgangs-
hópa og 36,5% vegna almenn-
rar gjaldskrár. Gert er ráð fyrir
kostnaði í frumvarpinu að fjár-
hagsáætlun vegna þessa.
Leikskólagjaldskrá hefur
ekki hækkað í tvö ár og ekki er
boðuð hækkun á árinu 2007.
Því er um raunlækkun að ræða.
Á árinu 2006 var tekin upp
forgangsgjaldskrá og syst-
kinaafsláttur með öðru barni
aukinn í 30% og frítt fyrir
þriðja barn. Gert er ráð fyrir
því að tvær klukkustundir
fyrir 5 ára börn verði án gjalds
fyrir hádegi. Rökstuðningur
fyrir því er sá að fyrir hádegi
fer fram undirbúningsstarf
fyrir grunnskólagöngu elstu
barna leikskólans.
Kostnaður vegna grunn-
skólanema sem taka áfanga í
framhaldsskólum er áætlaður
72.000 kr. á árinu 2007. Til-
laga er um að taka upp niður-
greiðslu vegna þessara nem-
enda sem eru þrír um þessar
mundir. Eins og fram kom
við fyrri umræðu fjárhags-
áætlunar hækkar liðurinn um
fræðslumál hjá Ísafjarðarbæ
um 77 milljónir króna á milli
áranna 2006 og 2007.
– thelma@bb.is
Niðurgreiðsla dagmæðragjalda í Ísafjarðarbæ verður hækkuð og er miðað við sama gjald og í leikskóla.