Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2007, Blaðsíða 19

Bæjarins besta - 11.01.2007, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2007 19 Horfur á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, víða snjókoma eða él, en léttir til sunnanlands. Horfur á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt, víða snjókoma eða él, en léttir til sunn- anlands. Horfur á sunnudag: Útlit fyrir hvassa austlæga átt með snjókomu. Helgarveðrið Sælkeri vikunnar er Guðrún B. Magnúsdóttir í Bolungarvík Fiskréttir og hress- andi appelsínusalat Sælkeri vikunnar býður upp á saltfisksalat og mexíkóskan fiskrétt. Í eftirrétt er appelsínu- salat sem er bragðgott, hress- andi og hollt. „Eftir jólasteik- urnar og konfektið datt mér í hug að gefa uppskrift af fisk- réttum og ávaxtasalati sem er ögn léttara í maga. Fiskrétt- irnir eru reyndar forréttir en það má alveg hafa þá báða á borðum í einu og þá er kominn mátulegur aðalréttur“, segir Guðrún. Saltfisksalat 200 g saltfiskur, ekki út vatnaður 1 kg appelsínur 2 langir og mjóir blað laukar, skornir í þunnar sneiðar 1 glas af svörtum ólífum 3-5 msk ólífuolía, helst fín jómfrúrolía Hrár saltfiskurinn er hreins- aður vel, rifinn niður í ræmur og settur í skál. Appelsínurnar eru flysjaðar og allt hvíta lagið skorið vandlega burt. Þær eru skornar í bita og settar út í. Blaðlauknum og ólífunum er bætt við. Ólífuolíu er hellt út í og þetta er síðan látið bíða í a.m.k. 6 klst. Appelssínusaf- inn hefur þau áhrif að salt- fiskurinn verður ekki lengur eins og hrár. Mexíkóskur fiskréttur 1 kg bein- og roðlaus fiskur (ýsa eða lúða til spari) 250 ml limesafi Skerið fiskinn í 2-3 sm bita og hellið limesafanum yfir. Látið standa við stofuhita í 15 mín. Hellið þá safanum af fiskinum. 1 krukka jalapeno pipar, takið fræin úr. 125 ml extra virgin ólífuolía ¼ bolli ferskt kóríander 1 msk ferskt oreganó 125 ml.chili tómatsósa 4 hvítlauksgeirar 1 tsk salt Blandið öllu saman og setj- ið yfir fiskinn. Látið standa í ísskáp í einn sólarhring. Með þessum réttum er gott að bera fram brauð og e.t.v. salat. Gott er að drekka rauðvín með, ásamt vestfirsku blávatni. Appelsínusalat 10-12 sætar og safaríkar appelsínur 5 msk appelsínuþykkni 6 msk púðursykur 3 steyttir negulnaglar 1 tsk kanell ½ dl gróft saxaðar hesli hnetur Appelsínurnar eru afhýddar og allt hvítt skorið af. Þær eru síðan skornar í sneiðar og sett- ar í skál. Öllu hinu er blandað saman og hellt yfir appelsín- urnar. Látið standa í ísskáp í a.m.k. 3 klst og gjarnan leng- ur, svo kryddið nái að jafna sig. Gott er að blanda saman þeyttum rjóma og sýrðum, og bera fram með. Ég skora á systurnar og samstarfskonur mínar Mari- olu og Elzbietu Kowalczyk að gefa okkur uppskriftir af pólsku góðgæti í næsta blaði. Aldarafmæli Guðmundar Inga minnst Hundrað ár eru liðin frá fæðingu Guðmundar Inga Kristjánssonar, skálds á Kirkjubóli í Bjarnardal, Önundarfirði þann 15. janúar. Af því tilefni verður haldin samkoma og sólarkaffi í Friðarsetrinu Holti kl. 20 mánudagskvöldið 15. janúar. Undanfarin fimm ár hafa sveitungar hans minnst fæðingardags hans með ýmsum hætti. Nú þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu hans er vilji fyrir því að nota afmælisárið til að minnast hans með fjölbreyttari hætti. Eldri borgarar fögnuðu nýju ári Árlegur nýársfagnaður eldri borgara var haldinn á dvalarheimilinu Hlíf á sunnudag í boði Kiwanisklúbbsins Bása á Ísafirði. Nem- endur frá tónlistarskólanum á Ísafirði léku listir sínar fyrir gesti á meðan þeir gæddu sér á dýr- indis tertum og smurðu brauði. Að borðhaldi loknu var slegið upp dansleik þar sem Harmó- nikkufélag Vestfjarða lék svo fyrir dansi. Mikil stemmning ríkti hjá eldri borgurum og kiwanis- félögum á fögnuðinum og gleðin var allsráð- andi. Nýársfagnaður eldri borgara hefur verið hefð hjá Kiwanisklúbbnum í árafjöld og fer alltaf fram í kringum þrettándann. Fögnuðurinn var opinn öllum eldri borgurum á svæðinu og þátttaka var að vanda góð. Salurinn á Hlíf var fullsetinn á nýársfögnuði eldri borgara. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Ernis í Bolungarvík var mögnuð. Jólin kvödd í Bolungarvík Jólin voru kvödd í Bolung- arvík á laugardagskvöld með pompi og prakt er þar var hald- in álfagleði, með brennu, flug- eldasýningu og öllu tilheyr- andi. Álfar, tröll og ýmsar aðrar kynjaverur létu sig ekki vanta á fagnaðinn, en það er mál margra að álfar flytjist búferlum einmitt það kvöld. Björgunarsveitin Ernir í Bol- ungarvík sá um flugeldasýn- inguna sem var sérlega vegleg, enda höfðu björgunarsveitar- menn lofað að hún yrði tvö- föld þar sem ekki var hægt að halda álfagleðina fyrir tveimur árum síðan í Bolungarvík, því veður var með versta móti. Ekki var veðurspá fyrir laug- ardagskvöld beinlínis góð, en ekki varð veðrið eins slæmt og spáð hafði verið um og því álfagleðin haldin við mikinn fögnuð viðstaddra. Að því er fram kemur á Vís- indavef Háskóla Íslands voru þrettándabrennur orðnar nokk- uð algengar á nítjándu öld. „Ekki voru þær þó mjög há- tíðlegar af lýsingu Klemenz Jónssonar (f. 1862) að dæma og segir hann þar hafa tíðkast mikið fyllerí og ólæti. Á þess- um tíma var líka farið að dansa álfadans kringum brennurnar. Sá siður er ættaður frá piltum í Lærða skólanum sem frum- sýndu árið 1871 leikritið Ný- ársnótt þar sem álfar komu við sögu. Þeir tóku sig svo til á gamlárskvöld, ásamt stúd- entum þaðan og frá Kaup- mannahöfn, og klæddu sig upp sem ljósálfa eða svartálfa, gengu niður að Tjörninni í Reykjavík með blys í hönd, dönsuðu og sungu álfasöngva“, segir á Vísindavefnum. – annska@bb.is Ýmsar kynjaverur skemmtu sér á álfagleðinni.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.