Bæjarins besta - 12.04.2007, Síða 1
Vagnstjórinn
blæs til sóknar
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 12. apríl 2007 · 15. tbl. · 24. árg.
Guðbjartur Jónsson varð þjóðkunnur sem Vagnstjóri á Flateyri. Hann hefur komið víða við á starfsævi sinni og
var til að mynda framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins á Flateyri um tíma, en nú hefur hann ásamt konu sinni
opnað verslun á Ísafirði og verslar með vandaðan kristal. Í framtíðinni stefnir hann að því að selja varninginn
um allt land. Sjá miðopnu.
Fá nýjan
búning
Undanfarna mánuði hef-
ur klasaverkefnið Sjávar-
þorpið Suðureyri unnið að
umbúðahönnun fyrir fram-
leiðsluvörur sem fram-
leiddar eru á Suðureyri.
Innan skamms hefst fram-
leiðsla og sala á vörum úr
þorpinu í nýjum og fersk-
um búningi.
Þær vörur sem koma
fyrst á markaðinn eru fros-
in ýsa, þorskur og stein-
bítur frá Fiskvinnslunni
Íslandssögu, hjallþurrkað-
ur harðfiskur frá fiskverk-
un Jóhanns og sjóarafiskur
frá Vestfisk en þeir þurrka
ýsu frá Íslandssögu fyrir
verkefnið. Vörurnar hafa
það sameiginlegt að vera
framleiddar sem vistvæn-
ar sjávarafurðir.
Ofangreindar vörur verða
komnar í allar betri versl-
anir í byrjun sumars.
– thelma@bb.is
Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, var haldin í fjórða sinn á Ísafirði um síðustu helgi. Hátíðin hefur stækkað
með hverju árinu og í ár þurfti að taka tvo daga undir herlegheitin, en 37 hljómsveitir stigu á stokk í gömlu Ríkisskipa
skemmunni við Ásgeirsbakka. Rokkstjóri Aldrei fór ég suður, Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, er að vonum ánægður,
enda fór hátíðin einstaklega vel fram. Skipuleggjendur hátíðarinnar, gæsla og lögregla voru með gott eftirlit á hátíðinni
auk þess sem fíkniefnaleitarhundurinn Tíri og umsjónarmaður hans, frá lögreglunni í Borgarnesi, voru lögreglumönnum
á Vestfjörðum til aðstoðar við eftirlitið á hátíðinni. Sjá frásögn og myndir inni í blaðinu. – tinna@bb.is