Bæjarins besta - 12.04.2007, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 200712
Rífandi stemmning
á Aldrei fór ég suður
Rokkhátíð alþýðunnar, Al-
drei fór ég suður, var haldin í
fjórða sinn á Ísafirði um síð-
ustu helgi. Hátíðin hefur
stækkað með hverju árinu og
í ár þurfti að taka tvo daga
undir herlegheitin, en 37 hljóm-
sveitir stigu á stokk í gömlu
Ríkisskipa skemmunni við
Ásgeirsbakka. Það var vest-
firska hljómsveitin Kristina
Logos sem hóf leikinn kl. 19
á föstudag en meðal atriða það
kvöld voru Pétur Ben, Bógo-
mil Font og Flís, Mínus,
Blonde Redhead og Söku-
dólgarnir, en með Sökudólg-
unum spilar Ísfirðingurinn
Skúli Þórðarson.
Á laugardeginum voru það
þeir Heiðar Örn Kristjánsson
og Haraldur Freyr Gíslason,
oft kenndir við Botnleðju, sem
stigu fyrstir á svið með hljóm-
sveit sinni, Pollapönki. Í kjöl-
farið fylgdu svo atriði frá
sveitum eins og Jan Mayen,
Sprengjuhöllinni, Ælu og
Esju, auk þess sem hinn ævi-
ráðni Siggi Björns spilaði að
sjálfsögðu. Atriði Lúðrasveit-
ar Tónlistarskólans og Apollo
vakti mikla athygli, en sveit-
irnar tóku m.a. We will rock
you, sem hljómsveitin Queen
gerði frægt á sínum tíma.
Talið er að flestir hafi verið
í húsinu um það leyti sem Lay
Low, Ampop og Reykjavík!
spiluðu. Næst síðasta atriðið
á svið var önfirski karlakórinn
Fjallabræður sem vakti storm-
andi lukku. Það var þunga-
rokkssveitin goðsagnakennda,
Ham, sem var síðasta atriði
hátíðarinnar, en hún spilaði
þegar klukkan var um 2 eftir
miðnætti.
Rokkstjóri Aldrei fór ég
suður, Hálfdán Bjarki Hálf-
dánsson, er að vonum ánægð-
ur, enda fór hátíðin einstak-
lega vel fram. Skipuleggj-
endur hátíðarinnar, gæsla og
lögregla voru með gott eftirlit
á hátíðinni auk þess sem fíkni-
efnaleitarhundurinn Tíri og
umsjónarmaður hans, frá lög-
reglunni í Borgarnesi, voru
lögreglumönnum á Vestfjörð-
um til aðstoðar við eftirlitið á
hátíðinni.
Ljósmyndarar blaðsins voru
að sjálfsögðu á hátíðinni og
tóku þar meðfylgjandi mynd-
ir. Fleiri myndir munu birtast
á svipmyndum á bb.is innan
tíðar. – tinna@bb.is