Bæjarins besta - 12.04.2007, Síða 7
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 7
Ferðamönnum fjölgar
Alls seldust 108.369 gistinætur á Vestfjörðum, Suðurnesjum og Vesturlandi á síðasta ári, en þessi
landsvæði eru felld saman í einn flokk hjá Hagstofunni sökum fárra gististaða. Þetta er aukning um
14,7% á milli ára. Þar af fjölgaði Íslendingum mest, úr tæplega 40 þúsund árið 2005 í ríflega 50
þúsund árið eftir, eða um tæplega 26%. Útlendingar voru því ríflega 58 þúsund. Þar voru Banda-
ríkjamenn fjölmennastir, 9.659 talsins, en næstir komu Bretar, 9.494 talsins. Þjóðverjar keyptu
7.494 gistinætur. Danir keyptu 2.940 gistinætur. Japanir keyptu 2.875 gistinætur. Frakkar keyptu
2.715 gistinætur. Spánverjar keyptu 2.290 gistinætur, og Ítalir keyptu 2.131 gistinótt.
Orkubú Vestfjarða vinnur
að því þessa dagana að afla
áhættufjár í formi víkjandi
láns til að fjármagna boranir
sem geta gengið úr skugga
um hvort vinnanlegur jarðhiti
sé við Bræðratungu í Tungu-
dal í Skutulsfirði. Nú er fyrir
hendi tækni til að ráða við
boranir af því tagi sem þarna
þarf, en kostnaðurinn er mik-
ill. Fyrri boranir við Bræðra-
tungu hafa staðfest að heitt
vatnskerfi er þar undir þótt
enginn yfirborðsjarðhiti sé
fyrir hendi. Niðurstöður bor-
ana og efnafræði vatns í hol-
unum gefa til kynna að þaðan
megi ná um 60-70°C heitu
vatni.
Horft er til tveggja mögu-
leika í áframhaldandi borun.
Fyrri möguleikinn er sá að
borhola verði staðsett til hliðar
við ætlaða sprungu. Í fyrri bor-
unum kom allmikið af 25-
30°C heitu vatni í holurnar
tiltölulega grunnt, en þær æðar
voru steyptar af. Dýpri holurn-
ar sigu saman á fáeinum dög-
um í um 800 m. Þar sem hol-
urnar síga saman eru þykk set-
lög sem þarf að fóðra af áður
en dýpra er haldið. Því þyrfti
að bora þyrfti niður fyrir 800
m. Að því búnu þyrfti að
stefnubora í átt að sprungunni
og skera hana á yfir 1.000 m
dýpi. Gera mætti ráð fyrir að
bora þyrfti allt að 1.200-1.500
m djúpa holu.
Seinni möguleikinn er að
bora svonefnda skáholu. Þá
er bornum hallað strax við yf-
irborð og haldið sömu stefnu
alla leið. Slík skáborun er mun
ódýrari en stefnuborun. Vanga-
veltur eru einnig um að sleppa
samfelldri fóðringu og fóðra
einungis lausa beltið. Eftir á
að meta hvor aðferðin er betri,
með tilliti til áhættu og kostn-
aðar.
Síðast var borað við Bræðra-
tungu árið 1999 og var holan
1.255 m djúp. Holan stíflaðist
fljótlega á 700-800 m dýpi.
Holan var mjög lek niður í
um 300 metra og hiti í æðum
var 20-40°C. Hitamæling í lok
borunar gefur sterkt til kynna
að 60-70°C heitt vatnskerfi sé
í nánd við holuna. Það hefur
verið talið að holan hafi skorið
sprunguna ofarlega.
Haukur Jóhannesson jarð-
fræðingur hjá Íslenskum Orku-
rannsóknum segir að jarð-
fræðirannsóknir hafa leitt í
ljós að heitavatnskerfi þetta
er líklega tengt tiltölulega
ungri sprungu sem stefnir
norðvestur-suðaustur og má
rekja hana inn í botn Álfta-
fjarðar. Þar kom einnig fram
hitafrávik við hitastigulsbor-
anir. Þá segir hann að það
hljóti að vera kappsmál fyrir
heimamenn að ganga úr skugga
um hvort vinnanlegur jarðhiti
sé fyrir hendi í Skutulsfirði.
Það verður ekki gert nema
með borunum.
– tinna@bb.is
Orkubú Vestfjarða.
Stefnt að áframhaldandi rann-
sóknarborunum í Tungudal
Rúmlega tvítugur karl-
maður var á dögunum dæmd-
ur í Héraðsdómi Vestfjarða
í sex mánaða fangelsi fyrir
tvö brot gegn fyrstu og ann-
arri grein almennra hegn-
ingarlaga. Fresta skal fulln-
ustu refsingarinnar og skal
hún falla niður að liðnum
tveimur árum frá uppkvaðn-
ingu dóms haldi ákærði al-
mennt skilorð. Maðurinn er
annarsvegar dæmdur fyrir
að hafa veist að lögreglu-
manni við skyldustörf og
hinsvegar fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás.
Málsatvik eru þau að að-
faranótt sunnudagsins 8. októ-
ber 2006 brutust út slagsmál
milli ákærða og annars brota-
þolanna bak við verslunina
Blómaturninn við Austurveg
á Ísafirði. Sló ákærði brota-
þola í höfuðið með glasi með
þeim afleiðingum að hann
hlaut skurð á höfði. Þegar lög-
regla skarst í leikinn veittist
ákærði að einum lögreglu-
mannanna og sló hann hnefa-
höggi í andlitið með þeim af-
leiðingum að lögreglumaður-
inn hlaut tannbrot og fleiðrur
á yfirborð slímhúðar í hægri
kinn.
Í dóminum segir að brotin
hafi verið tilefnislaus og al-
varleg og beinst gegn höfðum
brotaþolanna. Við ákvörðun
refsingar þykir hins vegar
mega líta til þess að högg það
sem ákærði veitti öðrum
brotaþolanum með glasi olli
hvorki alvarlegum né varan-
legum áverkum, þó svo brotið
verði allt að einu að telja sér-
staklega hættulegt. Þá játaði
hann skýlaust brot það gegn
valdstjórninni sem honum
er gefið að sök í málinu. Að
endingu þykir mega horfa
til þess að ákærði var ein-
ungis tvítugur er hann
framdi brotin og þá hefur
hann ekki áður gerst sekur
um ofbeldisbrot.
Ákærða var dæmt að
greiða 230.570 krónur í sak-
arkostnað.
– tinna@bb.is
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
Segja verðlaunafé ekki geta
verið lægra en 200 þúsund
Nefnd um byggðamerki
fyrir Ísafjarðarbæ hefur haldið
sinn fyrsta fund og er það mat
nefndarinnar að nauðsynlegt
sé að hafa vegleg verðlaun í
boði fyrir sigurvegara þeirrar
samkeppni sem til stendur að
halda um byggðamerki, og
einnig þurfi að leggja til fjár-
magn í auglýsingar um sam-
keppnina. Horfir nefndin þá
til þess hvað nágrannasveit-
arfélög hafa gert í þessum efn-
um á liðnum árum.
Leggur nefndin til að aug-
lýst verði á heimasíðu Ísa-
fjarðarbæjar, í Bæjarins besta
og í einu dagblaði. „Nefndin
telur að verðlaunafé fyrir
byggðamerki Ísafjarðarbæjar
geti ekki verið lægra en kr.
200.000 kr. fyrir 1. sæti og sé
vilji til þess að veita hærri
verðlaun, eða fyrir fleiri sæti,
þá sé það æskilegt og laði að
fleiri keppendur“, segir í bók-
un nefndarinnar.
Þá bendir nefndin á að nú er
í gangi samkeppni um byggða-
merki fyrir Hvalfjarðarsveit,
en þar eru veitt þrenn verð-
laun. 350 þúsund krónur veit-
ast fyrir 1. sæti, og 50 þúsund
krónur fyrir næstu tvö þar á
eftir. „Nefndin er sammála um
að því hærra sem verðlaunaféð
er og fleiri verðlaunasæti, því
fleiri og mögulega vandaðri
tillögur berist og þá hljóti að
koma til þátttaka bæði lærðra
og leikinna.“
Loks óskar nefndin eftir svör-
um frá bæjaryfirvöldum sem
fyrst, enda geti hún ekki hald-
ið áfram störfum sínum fyrr
en þessum spurningum er
svarað. – eirikur@bb.is
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Á síðasta ári voru 27
gistiheimili og eitt hótel
skráð á Vestfjörðum sam-
kvæmt tölum Hagstofu Ís-
lands. Gistiheimilin buðu
upp á 365 herbergi þar sem
finna mátti 807 rúm, en hót-
elið er með 36 herbergi og
72 rúm. Hótelið, sem er
Hótel Ísafjörður, starfar allt
árið um kring, en um helm-
ingur gistiheimilanna tekur
sér frí yfir vetrarmánuðina.
Á tímabilinu frá janúar
og fram í apríl voru starfandi
13 gistiheimili með 177 her-
bergi og 385 rúm, en á tíma-
bilinu frá september og
fram í desember voru starf-
andi 14 gistiheimili með
177 herbergi og 382 rúm.
Fleiri gistiheimili störfuðu
á Vestfjörðum á árinu 2005,
eða 31, og buðu þau samtals
upp á 385 herbergi með
samtals 848 rúmum. Rekst-
ur þeirra utan helsta tíma-
bilsins, frá maí fram í ágúst,
var svipað mikill og í ár en
skiptist þannig að fleiri
gistiheimili voru rekin frá
september-desember, eða
17, heldur en voru frá janú-
ar-apríl, eða 11.
Tölurnar hér að ofan
koma frá Hagstofu Íslands
og miðast við þá gististaði
sem uppfylla hennar staðla
um gistiheimili og hótel.
Til að teljast hótel verða
gististaðir að hafa opið allt
árið um kring, vera með
baðherbergi á a.m.k 75%
herbergja og opna móttöku
allan sólarhringinn. Önnur
hótel falla undir gistiheim-
ili.
– eirikur@bb.is
Gistiheimilum
fækkar milli ára
Hótel Edda á Ísafirði telst til gisti-
heimila, enda ekki opið nema á sumrin.