Bæjarins besta - 12.04.2007, Page 9
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 9
„Við ætluðum aldrei að eiga neina verslun, í upphafi ætluðum við
aðeins að flytja inn fyrir heildsala. Við vorum búin að kasta okkur
út í nær hálfrar milljón króna kostnað við að flytja prufur til
landsins en svo vildi heildsalinn ekki borga nógu gott verð fyrir
þær. Þá sáum við fram á að við gætum alveg gert þetta sjálf.“
óknar
á villigötum með þetta. Við
erum alltaf að hugsa um topp-
inn og þá sem eiga mestan
pening en þeir eiga allt og það
er hinn almenni ferðalangur
sem eyðir mestu þótt það sé
lítið í einu.
Það þarf líka að huga að því
hvað það er sem fólk er að
kaupa, vanalega er það eitt-
hvað sem er sérstakt og kostar
lítinn pening. Eins og sumarið
2005 þegar eitt skemmtiferða-
skipið lagðist að í Önundar-
firði vegna veðurs, þá heim-
sóttu farþegarnir handverks-
húsið á Flateyri og þar seldist
allt upp. Það er því margt sem
heimamenn geta gert til þess
að búa sér betur í haginn. Ekki
eingöngu þegar kemur að
ferðamönnum heldur ætti
einnig að beita sér fyrir því að
fyrirtæki sem vinna þróunar-
vinnu kæmu vestur með starfs-
menn sína þar sem þeir gætu
verið í friði til þess að klára
verkefni sín. Í borginni er svo
mikið áreiti að góðir mögu-
leikar eru á því að fyrirtæki
fengjust til þess að koma í
róna og næðið í vestrinu. Það
skilur alltaf eitthvað eftir sig í
samfélaginu. Það er hellingur
af húsnæði í boði fyrir slík
fyrirtæki en það sem setur
strik í reikninginn er netteng-
ingin. Stjórnmálamenn ættu
að beita sér sérstaklega fyrir
því að bæta internetið hér
vestra því það mun auka
atvinnumöguleikana. Til þess
að geta boðið nýjum fyrirtækj-
um og nýjum tækifærum vest-
ur verða menn að taka til
heima hjá sér“, segir Guðbjart-
ur sem þekktur er fyrir að orða
hlutina skemmtilega.