Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.02.2009, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 19.02.2009, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 13 fæddist ekki fyrr en 2006. Eitt af barnabörnunum fætt 1996 fædd- ist með hjartagalla og þurfti að dvelja á Landspítalanum í nokkra mánuði til að ná þeirri þyngd sem þurfti til að standast hjarta- uppskurð í London. Þetta voru tilfinningaþrungnir mánuðir. Tvö önnur barnabörn voru hjá mér, fyrst af og til og síðan alveg frá 1999. Sonur minn varð allt í einu eins og elsti bróðir frændsystkina sinna, sem dýrkuðu hann. Með þeim mynduðust sérstök tengsl sem hafa haldist. Dvöl þeirra hef- ur trúlega dregið eitthvað úr þeim leiðindum sem hann fann fyrir í efstu bekkjum Grunnskólans á Hólmavík vegna heimaaksturs- ins. Við fluttum suður til Reykja- víkur eftir að hann lauk tíunda bekk þar. Kennsla í Reykjavík Reykjavíkurárin 2001-2004 voru lærdómsrík. Bæði var það að kynnast breyttum starfsháttum í grunnskóla í þéttbýli, sem meðal annars miðuðu að því að kennarar væru sýnilegir í vinnu allan dag- inn, valdaleysi kennara, og svo hitt sem sneri að veikindum mín- um. Ég áttaði mig ekki á því að hvíldin milli kennslu og áfram- haldandi vinnu sem ég gat notið í Broddanesskóla var frá mér tek- in í Fellaskóla. Þessi hvíld var mér nauðsyn- leg, vegna þess að kennslan er svo krefjandi, að ég varð að hvíla heilann í einn til tvo tíma áður en áfram var haldið. Í stærri skólum hvarvetna á landinu taka yfirleitt við fundur á fund ofan og nám- skeið og samráð strax eftir kenn- slu. Loks þegar því var lokið var eftir að fara yfir verkefni og und- irbúa næsta dag, en þá tóku við heimilisstörf og fjölskyldulíf, heimanám og annað. Þegar svo ró var komin seint að kveldi var heilinn algerlega óviðráðanlegur og ég gat legið andvaka fram eftir nóttu með samviskubit yfir að hafa ekki klárað eitt og annað varðandi næsta dag. Svo var farið að vinna um helgar, en þetta gekk ekki til lengdar. Samt þraukaði ég þennan vetur. Ég var með svokall- aðan erfiðan bekk, en sá samt marg- ar jákvæðar breyt- ingar á hegðun krakkanna um veturinn. Samt náði ég ekki utan um kennsluna og allt það sem fylgdi, foreldrastarf og fleira. Það sem var mér erfiðast var að í bekknum var dauðvona dreng- ur vegna krabbameins en ég fékk takmarkaðar upplýsingar um hann í upphafi. Ég lofaði móður hans að koma í heimsókn til þeirra eins oft og ég gæti, en það varð sjaldnar en ég ætlaði mér. Drengurinn dó í apríl og sam- nemendur hans lærðu hvernig átti að votta móður hans samúð. Við minningarborðið hans í stofunni hafði kennari sem hafði haft drenginn lengst af í kennslu límt upp myndir og viðtöl frá því að hann fór í aðgerðina þar sem fótleggurinn var tekinn af um hné en sjálfum fætinum komið fyrir þar sem hnéð var. Ef hverju var mér ekki sýnt þetta löngu fyrr? Það besta sem mér fannst ég geta gert var að kaupa hvítt albúm, safna saman minningargreinum og fá hvern og einn í bekknum til að skrifa kveðjur til drengsins, skreyta svo með gullskreytingum og penna. Svo fór ég með bókina til móðurinnar sem ýmist hló eða grét. Það snart mig mjög. Það snart mig líka að allir hinir sund- urleitu bekkjarfélagar vildu koma kveðju til hans, hver með sínum hætti. Ég taldi að hvíldin sumarið 2002 myndi bæta líðan mína og ég byrjaði að kenna í Breiðholts- skóla um haustið. En í febrúar um veturinn var ég komin með slæma líkamlega líðan og mikið þunglyndi og datt úr vinnu um vorið. Niðurstaða mín er sú, að kennarar almennt þurfi að vera afskaplega hraustir bæði líkam- lega og andlega til að stunda sína vinnu, gefa allt í starfið og eiga varla frítíma nema um jól og páska. Kennsla er starf með lifandi fólki en allt er niðurnjörvað í aðalnámskrá og skólanámskrá, regluverkið stýrir öllu, en kenn- arinn er valdalaus rétt eins og við vinnu við færibandið í rækju- verksmiðju. Vilji kennari breyta einhverju rís bákn fyrir framan hann, bákn af reglugerðum og endalausum fundahöldum. Ég er ekki að segjast vera góður kenn- ari. Góður kennari er til dæmis hún Rannveig Þorvaldsdóttir. Ég er bara öðruvísi kennari og dottin út ótímabundið. Þunglyndið Frá því um ungl- ingsaldur hef ég glímt við skammdegis- þunglyndi og kvíðaköst. Mitt eðlilega svar var hreyfing, að hlaupa og hreyfa mig, hafa nóg fyrir stafni, iðka jóga að hætti Steinunnar Briem, vakna með snjóinn í rúminu, taka þátt í íþróttum. Ég missti mig líka í bóklestur, las mig í gegnum hill- urnar hjá Ellu og Halldóri bóka- vörðum fyrir ofan sundlaugina. Enginn sagði mér að gera þetta allt, þetta var náttúrulegt, en ég upplifði mig öðruvísi en aðra. Þó reyndi ég eins og ég gat að fylgja félögunum. En það var sama hvað ég reyndi. Áráttan jókst smám sam- an. Að lokum var svo komið að áráttan var orðin að martröð nótt eftir nótt og á daginn úthugsaði ég flóttaleiðir undan ísbjörnum, úthugsaði björgunarleiðir. Fannst þessi árátta vera að yfirtaka mig, svo ég þurfti oft að halda aftur af mér. Ég óttaðist að skaða sjálfa mig eða aðra. Þessar upplifanir voru hræðilegar en svo bráði af mér á milli. Alversti veturinn var svo 1979. Maðurinn minn vissi ekkert hvernig átti að bregðast við. Honum fannst líðan mín hrein geðveiki þegar ég ræddi þetta við hann. Niðurstaðan varð sú að skipta um umhverfi. Ég hafði verið á námskeiði hjá Guðrúnu Svövu, sem sagði mér meðal ann- ars frá Moskvuárum sínum. Ég fór norður á Akureyri með dæt- urnar eins og ég nefndi og leigði íbúð í kjallaranum hjá Jónu Kjart- ans. Mér leið vel þarna í Hlíðar- götunni og áráttan og martrað- irnar hurfu á þremur mánuðum. Eftir það gekk allt sinn vanagang nema hvað í svartasta skamm- deginu langaði mig helst til að skríða í helli og sofa þar í nokkra mánuði. Gætti þess þó að

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.