Bæjarins besta - 19.02.2009, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
stíllLífs
Óstöðugur
tennisvöllur
Utan úr heimi
Á þessum tennisvelli má ekki
mikið út af bera til að boltinn
tapist að eilífu. Kapparnir sem
hér eigast við munu þó hafa
efni á því að týna nokkrum boltum án þess að það hafi veruleg
áhrif á afkomu þeirra. Það eru þeir Rafael Nadal og Roger
Federer, sem hér spila á dálítið óstöðugum tennisvelli í Qatar
við Persaflóa.
Handtaka
Nei, þetta er ekki vígvöllur. Ræningjagengi liggur á grúfu
eins og hráviði handjárnað fyrir aftan bak á götu í Foshan í
Guangdong-héraði í Kína. Vegfarendur fylgjast með þessum
sérstæða viðburði um hábjartan dag. Glæpatíðni hefur aukist
gríðarlega í Kína á síðari árum.
Taminn steinörn ræðst á ref á steppum Kasakstans í Asíu,
skammt frá Karkaralinsk í miðju landinu. Örninn læsir klónni
um trýni refsins áður en hann gengur frá honum. Veiðar með
örnum er þjóðarsport Kasaka og ár hvert koma veiðimenn úr
öllu landinu saman á meistaramót. Steinörninn var fyrrum út-
breiddur víða um Evrópu en finnst þar nú einkum í fjallahéruðum.
Veiðiörn
Fingralangir græða meira
tækni og vísindi
Vísindamenn hafa komist að því, að fingralangir verðbréfabraskarar ná mun betri árangri í starfi en
fingrastuttir. Hér er þó ekki átt við þá merkingu orðsins „fingralangur“ þegar talað er um þjófótta menn
heldur bókstaflega merkingu þess. Og raunar gildir þetta aðeins um
einn fingur á hvorri hendi – lengd baugfingurs í hlutfalli við lengd
vísifingurs. Því lengri sem baugfingurinn er í samanburði við vísi-
fingurinn, þeim mun betur gengur braskið með verðbréfin. Þessi rannsókn var gerð við háskólann í
Cambridge á Englandi. Skoðaðir og mældir voru fingur á 44 verðbréfabröskurum, sem þurftu að vera
eldsnöggir að taka ákvarðanir um kaup og sölu, og síðan var fylgst með starfi þeirra og árangri í tuttugu
mánuði. Niðurstaðan var eindregin og óvéfengjanleg. Því lengri sem baugfingurinn var, þeim mun
meiri var gróðinn. Og öfugt.
Hlutfallsleg lengd fingra ákvarðast þegar á fósturstigi og mótast af hlutföllum kven- og karlhormóna
í fóstrinu. Því sterkari sem karlhormónin eru, þeim mun lengri verður baugfingurinn í hlutfalli við aðra
fingur. Þessi hlutföll hafa líka áhrif á heilastarfsemina og eðliseigindir og hegðunarmynstur einstaklingsins
þegar hann vex úr grasi.
Allt er þegar þrennt er
Nú hefur fyrirtæki í Bandaríkjunum ráðið bót á þeim al-
genga vanda að annar sokkurinn tínist í pari. Lausnin er sú
að selja þrjá sokka á verði tveggja svo að sokkaeigandinn
eigi aukasokk þótt svo að einn glatist. Á vefsíðu fyrirtækis-
ins Throx segir að handritshöfundurinn og leikstjórinn
Edwin Heaven frá San Fransisco hafi uppgötvað þessa
snilldarlausn á hinum vel kunna vanda. Er þar uppgötvun-
inni lýst sem mest spennandi tríói síðan The Jimi Hendrix
Experience var og hét. „Ímyndaðu þér þetta: Þú hefur
lokið við vikulega þvottinn og ert að para sama sokka þeg-
ar þú uppgötvar að einn eða fleiri hafa horfið á dularfullan
hátt. Hljómar þetta kunnuglega? Nú þarftu ekki að hafa
áhyggjur af þessu lengur því snjall hugvitsmaður frá San
Fransisco hefur komið með frumlega lausn á þessu pirrandi
fyrirbæri“, segir á trox.com.