Bæjarins besta - 12.03.2009, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
Marsibil flottust tvö ár í röð
Hátt í 200 manns skemmtu sér
á grímuballi KFÍ og Ísfólksins,
stuðningshóps félagsins, í Krús-
inni á Ísafirði á laugardag. Meiri-
hluti ballgesta var í hinum ýmsu
gervum og mátti sjá skáldsagna-
persónur, kvikmyndahetjur og
furðuverur dilla sér á dansgólfinu
við tónlist Bjarna Ara og Millj-
ónamæringanna, en þeir létu ekki
sitt eftir liggja og voru klæddir
sem körfuboltamenn. Eins og
endranær fór fram kosning á
dansleiknum um það hver væri í
flottasta búningnum.
Að þessu sinni varði sigurveg-
ari ársins í fyrra titil sinn en
Marsibil Kristjánsdóttir hafnaði
í fyrsta sæti sem Kalypsó úr stór-
myndinni Pirates of the Cara-
bean. Í öðru sæti voru hjónin
Sveinbjörn Hjálmarsson og Sól-
ey Huld Árnadóttir sem voru í
gervi hinna illræmdu bræðra
Karíusar og Baktusar. Í þriðja
sæti var Björn Arnór Svein-
björnsson sem prestur og perri.
Snorri Hinriksson þótti bera
frumlegasta búninginn sem hinn
góðkunni Magnús Hauksson.
Grímuballið var nú haldið í
ellefta sinn en það hefur notið
mikilla vinsælda frá upphafi.
Meira er lagt í búningana ár frá
ári og leggja margir mikið á sig
til að gera gervin sem best úr
garði, allt frá því að skarta lituð-
um linsum upp í það að raka sig
sköllótta. Allur ágóði ballsins
rennur til styrktar barnastarfi
KFÍ.
Á síðasta ári var hagnaðurinn
nýttur til að fjármagna ferð í
körfuboltabúðir í Serbíu. Páll Ön-
undarson kom við á ballinu og
tók þar meðfylgjandi myndir.
Fleiri myndir birtast í svipmynd-
um á bb.is. – thelma@bb.is