Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Taugatrekkjandi að forskera í Hnífsdal Á athafnasvæði Ósafls í Bolungarvík starfar Bol- víkingurinn Magnús Trausta- son. Hann byrjaði að for- skera fyrir göngunum í júlí á síðasta ári, aðeins sautján ára gamall. Að- spurður hvernig er að starfa við göngin segir Magnús það vera ágætt en hann starfar aðallega fyrir utan göngin á jarðýtu. Hann leggur alla vegi og ýtir út efni sem vörubílar keyra út úr göngunum. „Ég fékk reyndar ekki eins mikla athygli þegar ég var að forskera fyrir snjó- flóðavarnargarðinum í Bolungarvík í fyrra. Það voru ekki allir sáttir með framkvæmdina þar en þetta er bara mjög fínt.“ – En finnst þér skemmti- legt að vinna við jarðganga- gerðina? „Já, það er skemmti- legra að vinna nálægt heim- ilinu sínu. Þetta er ekki verra en að sitja á rassgat- – En nú ertu aðeins á átj- ánda ári og búin að sjá um öll þessi störf. Ertu ekki full snemma í þessu? „Það er aldrei of snemmt að byrja á einhverju ef þú mátt það.“ – Hvenær fékkstu bílpróf? „Í maí í fyrra. Þegar mað- ur er kominn með bílpróf, fær maður réttindi til að keyra jarðýtu á opnu svæði. Þannig að ég mátti ekki taka prófið fyrr en ég varð 17 ára en ég var búinn að taka rétt- indin á hana 16 ára.“ – En ef þessa vinnu væri ekki að fá hjá Ósafli, værir þú atvinnulaus í dag? „Ég væri eflaust í skóla. Ég var byrjaður í vélstjórn en veit ekki hvort ég held áfram með það nám.“ – Býstu við því að halda mikið áfram við verktaka- vinnu? „Maður getur fengið ágæt- iskaup við að vinna á jarðýtu ef þú ert kominn með ágætis reynslu.“ inu að gera ekki neitt.“ – Hefurðu komið nálægt svona vinnu áður? „Já, já, en það var samt ekki gaman að príla á vélinni lengst upp í fjall og byrja að forskera. Það var verst í Hnífsdal því þar er svo hátt niður. Ég var búinn að vinna hérna í tvo daga þegar ég var sendur þangað upp. Þetta tók svolítið á fyrstu tvo dagana en svo var ég orðinn vanur þessu.“ Magnús Traustason. Náttúran er stórbrotin Michal Kubiš jarðfræðingur hjá svissneska verktakafyrir- tækisins Marti Contractors er einn þeirra sem starfar við Bol- ungarvíkurgöngin. Þegar blaða- maður og ljósmyndari óku inn í göngin Hnífsdalsmegin var Michal að störfum við að taka sýni úr göngunum. Þegar leit- ast var eftir stuttu spjalli, sagði hann ensku kunnáttu sína ekki góða, en sló samt til. Hann var fyrst spurður hvaðan hann kæmi. „Ég kem frá Slóvakíu. Ég kom til Íslands í nóvember í fyrra og vann við göngin á Siglu- firði og fer aftur núna í mars.“ – Er vinnan ávallt eins í öllum göngum? „Já, ég myndi segja það. Vinnuskilyrði og jarðfræðin eru mjög svipuð en á Siglufirði var vatn mikið vandamál við jarðgangagerðina en hérna eru það setlög og leirkenndur jarð- vegur.“ – Hvernig finnst þér að vera í Bolungarvík? „Bolungarvík er indæll stað- ur með mjög indælu fólki og er mjög áhugaverður bær fyr- ir mig. Náttúran er stór- brotin og fjöllin eru einstak- lega falleg, sem er mjög spennandi fyrir mig sem jarðfræðing.“ – Kemur þú frá stórri borg í Slóvakíu? „Nei, ekki svo. Ég myndi segja að rúmlega hundrað þúsund íbúa búi þar.“ – En hvernig er að starfa í Bolungarvík svo fjarri fjölskyldunni í Slóvakíu? „Það er ekki svo slæmt, það venst,“ segir Michak Kubiš. Michal Kubiš. Jarðvegurinn er mjög leirkenndur eins og sést á myndinni. Slóvakarnir máttu hafa sig alla við að setja hvellhetturnar í lauskenndan jarðveginn. Göngin Hnífsdalsmegin. Þar er mun meira af vatni sem kemur úr berginu og leirkennda setlagið er fyrir neðan bergið.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.