Bæjarins besta - 12.03.2009, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 15
Frítt fyrir atvinnlausa í líkamsrækt
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga,
Gylfi Guðmundsson, hjá Félagi opinberra starfsmanna og Halldór Óli Hjálmarsson, hjá Félagi járniðnaðarmanna.
Atvinnulausir einstaklingar í
Ísafjarðarbæ frá frítt í líkamsræk
í íþróttamiðstöðvum í Ísafjarð-
arbæ samkvæmt samkomulagi
sem fulltrúar frá Ísafjarðarbæ,
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga,
Félagi opinberra starfsmanna á
Vestfjörðum og Félagi járniðn-
aðarmanna á Ísafirði undirrituðu
á föstudag. Samkomulagið felur
í sér að stéttarfélögin greiða 50%
af kostnaði við sundkort/líkams-
ræktarkort á móti Ísafjarðarbæ
sem á móti gefur 50% af kostnaði
við kortið. Samningurinn gildir
úr árið.
„Í kjölfar bankakreppu og
efnahagsþrenginga hefur at-
vinnuleysi á Vestfjörðum stór-
aukist undanfarna mánuði. Að
mati Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga (Verk. Vest), Félags járniðn-
aðarmanna á Ísafirði, Félags op-
inberra starfsmanna á Vestfjörð-
um (Fos. Vest.) og Ísafjarðar-
bæjar, eru það ótvíræðir hags-
munir einstaklinganna og samfé-
lagsins að atvinnuleitendum sé
gefinn kostur á að rækta sál og
líkama þegar þrengir að“, að því
fram kemur í samningnum.
Undir samninginn rituðu þeir
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, Finnbogi Svein-
björnsson, formaður Verkalýðs-
félags Vestfirðinga, Gylfi Guð-
mundsson, hjá Félagi opinberra
starfsmanna og Halldór Óli
Hjálmarsson, hjá Félagi járniðn-
aðarmanna. Á sama tíma var
undirritað samskonar samkomu-
lag milli stéttarfélaganna og Stef-
áns Dan Óskarssonar.
Umferðarlagabrot-
um fækkaði í janúar
Umferðarlagabrotum fækk-
aði mikið í umdæmi lögregl-
unnar á Vestfjörðum í jan-
úar miðað við sama mánuð
árið á undan samkvæmt ný-
útgefinni afbrotaskýrslu lög-
reglunnar. Í síðasta mánuði
voru 32 slík brot framin en í
janúar 2007 voru umferðar-
lagabrotin 25 talsins og 33
árið 2006. Átta hegningar-
lagabrot voru framin í um-
dæminu í síðasta mánuði
sem er einu færra en árið á
undan og örlítil fækkun frá
2006 þegar þau voru tólf.
Þrjú fíkniefnabrot komu til
kasta lögreglunnar á Vest-
fjörðum í síðasta mánuði og
er það sami fjöldi og árið á
undan en þau voru tvö árið
2006.
Rétt er að geta þess að við
samantekt tölulegra upplýs-
inga eru tilgreind öll brot
sem tilkynnt voru lögregl-
unni að frátöldum þeim sem
reynast við nánari athugun
ekki vera brot. Hafa ber í
huga að eitt atvik getur falið
í sér fleiri en eitt brot. Til
dæmis getur maður sem er
stöðvaður vegna umferðar-
lagabrots fengið í sama máli
kæru fyrir fíkniefni sem
fundust í fórum hans.
Flest fiskiskip voru með skráða
heimahöfn á Vestfjörðum í árslok
2008, eða 302 skip, sem er um
20% fiskiskipastóls landsins.
Opnir bátar voru flestir á Vest-
fjörðum eða 158 og því næst
kom Vesturland með 129 báta.
Fæstir bátar þessarar tegundar
voru með heimahöfn á Suður-
landi eða alls 24. Vélskip voru
flest á Vestfjörðum eða 138 tals-
ins en fæst á Norðurlandi vestra
eða 55 skip. Flest vestfirskra
skipa voru með heimahöfn í Bol-
ungarvík eða 37 bátar, þar af
voru 14 opnir fiskibátar og 22
vélskip. Því næst kom Patreks-
fjörður sem er heimahöfn 31 báts.
28 voru með heimahöfn á Tálk-
nafirði, 27 á Ísafirði og í Súðavík
og 25 á Suðureyri.
Flestir togarar voru með heima-
höfn skráða á höfuðborgarsvæð-
inu, alls 14. Þá voru sex togarar
með heimahöfn á Vestfjörðum.
Reykjavík er einnig heimahöfn
flestra fiskiskipa eða alls 88. Þar
á eftir kom Grindavík með 81
skip skráð. Í Reykjavík voru
einnig flestir opnir fiskibátar með
heimahöfn, alls 35. Flest vélskip
áttu heimahöfn í Grindavík eða
66 skip, 43 voru skráð með
heimahöfn í Reykjavík og 42 í
Vestmannaeyjum. Í Reykjavík
voru 10 togarar skráðir með
heimahöfn og 7 í Vestmannaeyj-
um og á Akureyri.
Í lok árs 2008 voru 1.529 fiski-
skip á skrá hjá Siglingastofnun
og hafði þeim fækkað um 113
frá árinu áður. Fjöldi vélskipa
var alls 769 og samanlögð stærð
þeirra 86.390 brúttótonn. Vélskip-
um fækkaði um 65 á milli ára og
dróst flotinn saman um 5.266
brúttótonn. Togarar voru alls 60
og fækkaði um fjóra frá árinu á
undan. Heildarstærð togaraflot-
ans var 69.889 brúttótonn og
hafði minnkað um 4.177 brúttó-
tonn frá árinu 2007. Opnir fiski-
bátar voru 700 talsins og 3.348
brúttótonn að stærð. Opnum
fiskibátum fækkaði um 44 milli
ára og heildarstærð þeirra dróst
saman um 208 brúttótonn.
Heildarstærð fiskiskipaflotans
hefur dregist saman milli ára um
9.652 brúttótonn, eða um 5,7%
frá fyrra ári. Heildarstærð vél-
skipa dróst saman um 5.266 brúttó-
tonn eða 5,7% og heildarstærð
togara um 4.177 brúttótonn eða
5,6%. – thelma@bb.is
Flest fiskiskip á Vestfjörðum
Bolungarvík er heimahöfn flestra skipa á Vestfjörðum.