Bæjarins besta - 12.03.2009, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
Utan úr heimi
stíllLífs
Fagur fiskur í sjó
Tígrisdýr þykja falleg dýr og hafa fatahönnuðir ósjaldan
sótt til þeirra innblástur er kemur að mynstrum í tískunni.
Dýrin eru þó ekki þau eina sem skarta þessu sérstaka yfir-
bragði en fiskurinn Astronotus
ocellatus er einmitt skrýddur tígr-
isdýramynstri, eða minnsta kosti
eitt af þremur afbrigðum fisksins.
Fiskurinn sem oftast er kallaður Óskar lifir í ferskvatni og
kemur Suður Ameríku. Hann er vinsæll í fiskabúrum enda
fagur á að líta. Þeir eru frekar grimmir og éta minni fiska, en
eru að sama skapi heilmiklir persónuleikar og hænast að eig-
anda sínum. Myndin er tekin af wikipediavefnum.
Berrassaðir í drullubaði
Nektarhátíðin, eða eins og hún heitir á frummálinu hadaka
matsuri, er aldagömul hefð við Mimusubi-hofið í Yotsukaido
í Japan og er tileinkuð guðunum sem ráða yfir hrísgrjónaökr-
unum. Talið er að hátíðin hafi verið hluti af undirbúningi
bænda fyrir sáningu, eftir að þeir höfðu verið að mestu leyti
innandyra yfir vetrartímann. Þar leggjast menn á bæn og
biðja um góða uppskeru og að gæfan verði með þeim. Jap-
anskir karlar taka meðal annars upp á því að ærslast í
drullu, ekki ósvipað látunum sem oft verða í Mýrarboltanum
árvissa á Ísafirði fyrir utan að Japanirnir eru íklæddir engu
nema lendarskýlum.
Í nógu er að snúast hjá Skíða-
félagi Ísfirðinga um þessar
mundir og hafa skíðaiðkendur
fagnað góðu færi í vetur. Vetrar-
íþróttir eiga sér langa sögu hér á
Ísafirði, einkum þó skíðaíþróttir.
Skíðafélagið var stofnað árið
1934 og ári seinna var stofnað til
Skíðaviku sem hefð er fyrir að
haldin sé um páskana og dregur
ár hvert að sér mikinn fjölda víða
af landinu.
Nú eru SFÍ-liðar að undirbúa
unglingsmeistaramót sem haldið
verður á Ísafirði í byrjun apríl en
von er á um 200 keppendum. Þá
er einnig stærsti viðburður ársins
framundan hin margrómaða
Fossavatnsganga sem er elsta
skíðamót sem enn er haldið á
landinu. Bæjarins besta ræddi við
Jónu Lind Karlsdóttur formann
Skíðafélagsins um starfið, íþrótt-
ina og viðburðina framundan.
– Nú hefur manni fundist vera
uppsveifla hjá Skíðafélaginu í
vetur, er það rétt?
„Já ég held að það sé viss upp-
sveifla. Ég held að fólk sé farið
að fara meira á skíði og við erum
að fá inn fleiri yngri iðkendur.
T.d er mjög stór hópur hjá okkur
12 ára og yngri.
Við höfum verið að bjóða upp
á fría kennslu á skíðasvæðinu á
laugardögum og það hefur verið
fín mæting hjá fólki sem vill fá
leiðsögn. Einnig höfum við boðið
upp á fría gönguskíðakennslu
a.m.k. einu sinni í mánuði, hún
fer fram á miðvikudögum en við
munum auka við þá kennslu þeg-
ar nær dregur að Fossavatns-
göngunni. Það hefur verið gríðar-
lega góð mæting í hana, alveg
upp í 40 manns. Ég held nefnilega
að það sé fullt af fólki sem hefur
lagt skíðin á hilluna um tíma sé
núna að dusta rykið klossunum
og taka þráðinn upp aftur. Kann-
ski er það líka hvetjandi fyrir þá
sem eru óöruggir að boðið sé
upp á leiðsögn.“
– Unglingameistaramót Ís-
lands á skíðum verður haldið á
sem koma.“
– Unglingameistaramótið er
með stærstu viðburðum vetrarins
hjá Skíðafélaginu.
„Við höfum líka haldið í vetur
bæði bikarmót í göngu og svigi
sem heppnuðust mjög vel. Við
vorum ótrúlega heppin með veð-
ur en þau fóru fram sitt hvora
helgina um mánaðamótin janúar-
febrúar, einmitt á þeim tíma sem
er allra veðra er von. En stærsti
viðburður vetrarins er Fossa-
vatnsgangan sem er lokapunktur-
inn á skíðavertíðinni. Fleiri hundr-
uð manns sækja gönguna og er
þeim sífellt að fjölga. Sérstaklega
hefur erlendum keppendum fjölg-
að undanfarin ár og þar á meðal
hafa verið margir heimsfrægir
skíðagöngumenn. Þeir hafa meira
að segja hafa dásamað gönguna í
blöðum erlendis sem er mjög góð
svæðiskynning og kemur okkur
á kortið. Margir af þessum köpp-
um koma ár eftir ár í Fossavatns-
gönguna sem segir okkur að þeir
séu mjög ánægðir. Þeir eru vanir
að keppa í stærstu göngunum og
ferðast um heiminn til að sækja
þær, það er því góður vitnisburð-
ur um að þeir séu ánægðir með
það sem við höfum að bjóða að
þeir komi alltaf aftur til okkar.“
– Þannig að starfið gengur vel
í Skíðafélaginu.
„Já það gerir það, þótt það sé
erfitt rekstrarlega um þessar
mundir. Mörg fyrirtæki halda að
sér höndunum í því efnahags-
ástandi sem nú ríkir og hafa ekki
getað styrkt okkur eins og oft
áður. En við reynum að gera okk-
ar besta og reka félagið eins vel
og við getum. Ég finn fyrir mjög
mikilli jákvæðni hjá foreldrum
og félagsmönnum en við höfum
kallað eftir meiri sjálfboðavinnu
og aðstoð við mót og slíkt. Ég
hef ekki fundið annað en að fólk
sé tilbúið að leggja sitt af mörk-
um. Kannski er það vegna þess
að sama ástandið er alls staðar
og því sýnir fólk því skilning og
er reiðubúnara til að hjálpa.“
Ísafirði dagana 3.-6. apríl. Búist
er við að nokkur hundruð manns
komi til Ísafjarðar á vegum móts-
ins. Er ekki mikill undirbúningur
í kringum mót af þessu tagi?
„Það er hellings undirbúningur
og unglingameistaramótsnefndin
hefur verið að störfum frá því í
janúar. Það er margt sem þarf að
huga að í sambandi við svona
mót.
Við eigum von á í kringum
200 keppendum en þeim fylgir
náttúrlega þjálfarar og jafnvel
foreldrar svo það verður heilmikil
aukning í bænum.“
– Leggst það ekki bara vel í
ykkur?
„Jú mjög vel. Við í Skíðafélag-
inu höfum haft það orð á okkur
að halda vel utan um þau mót
sem við höfum haldið. Ég hef að
minnsta kosti heyrt það frá Skíða-
sambandinu að mótshald hjá
okkur hafi verið til fyrirmyndar.
Ég held að það spili kannski inn
í að af því maður er úti á landi
hugsar maður um ýmis smáatriði
sem oft gleymast á stærri stöðun-
um. Eins og t.d. á höfuðborgar-
svæðinu er frekar gert ráð fyrir
að fólk bjargi sér sjálft þegar það
er komið á staðinn en hér reynum
við eftir fremsta megni að gera
hlutina auðveldari fyrir fólk. Eins
og til að mynda að útvega því
aðstöðu til þess að undirbúa og
smyrja skíðin. Það er metnaður
okkar að allt sé til taks fyrir þá
Jóna Lind Karlsdóttir.
Blómlegt starf
hjá Skíðafélaginu