Bæjarins besta - 21.05.2009, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Haukur í horni: Lætur ekki smá raka stoppa sig!
Misjafnt ástand á golfvöllum: „Flatirnar eru í góðu standi en nokkrir blautir blettir eru á brautunum
sem eru óðum að þorna.“
Áætlun um innköllun aflaheim-
ilda tekur gildi í september 2010
Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar
ríkisstjórnar segir að leggja skuli
grunn að endurráðstöfun afla-
heimilda á 20 ára tímabili. End-
urskoðunin verði unnin í samráði
við hagsmunaaðila í sjávarútvegi
og er miðað við að áætlun um
innköllun og endurráðstöfun taki
gildi í upphafi fiskveiðiárs, 1.
september 2010. Skipaður verði
starfshópur er vinni að endur-
skoðuninni og kalli til samráðs
hagsmunaaðila og sérfræðinga.
Markmið sjávarútvegsstefnu rík-
isstjórnarinnar er að fiskveiðar
umhverfis landið séu hagkvæmar
og skapi verðmæti og störf en
séu jafnframt sjálfbærar og vist-
vænar og í samræmi við alþjóð-
legar skuldbindingar um verndun
vistkerfa, lífríkis og hafsbotns.
Veiðiheimildir skulu ákvarðast
af nýtingarstefnu sem byggist á
aflareglu hverju sinni. Íslenskur
sjávarútvegur mun gegna lykil-
hlutverki við þá endurreisn at-
vinnulífsins sem framundan er.
„Það er því afar mikilvægt að
skapa greininni bestu rekstrar-
skilyrði sem völ er á og treysta
þannig rekstrargrundvöllinn til
langs tíma, en jafnframt verði
leitað sátta um stjórn fiskveiða,“
segir í samstarfsyfirlýsingunni.
Með sérstöku ákvæði í stjórn-
arskrá verði undirstrikað að fiski-
stofnarnir umhverfis landið séu
sameign þjóðarinnar. Úthlutun
aflaheimilda er tímabundinn af-
notaréttur og myndar ekki undir
neinum kringumstæðum eignar-
rétt eða óafturkallanlegt forræði
einstakra aðila yfir heimildunum.
Bregðast þarf frekar við áliti
Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna, m.a. með því að gæta
atvinnufrelsis og að tryggja að
jafnræðis verði gætt við úthlutun
afnotaréttarins og aðgengi að
hinni sameiginlegu auðlind.
Knýja á um frekari fullvinnslu
afla hérlendis með því m.a. að
skoða hóflegt útflutningsálag á
fisk og/eða að óunninn afli verði
settur á innlendan markað. Tak-
marka framsal á aflaheimildum,
auka veiðiskyldu og endurskoða
tilfærslur á heimildum milli ára.
Stofna auðlindasjóð sem fer með
ráðstöfun fiskveiðiréttinda í eigu
þjóðarinnar. Arður af rekstri
sjóðsins renni til atvinnuupp-
byggingar. Vernda grunnslóð.
Kannaðir verði möguleikar þess
að veiðar afkastamikilla skipa á
grunnslóð og inni á fjörðum verði
takmarkaðar frá því sem nú er
með það að markmiði að treysta
grunnslóðina sem veiðislóð fyrir
smærri báta og umhverfisvænni veiði.
Skipa ráðgefandi hópa útgerð-
armanna og sjómanna varðandi
veiðiráðgjöf og nýtingu sjávar-
auðlinda og ástand í lífríki sjávar.
Heimila frjálsar handfæraveiðar
smábáta yfir sumarmánuðina.
Lög um stjórn fiskveiða verði
endurskoðuð í heild með það að
markmiði að stuðla að vernd
fiskistofna, stuðla að hagkvæmri
nýtingu auðlinda sjávar, treysta
atvinnu, efla byggð í landinu,
skapa sátt meðal þjóðarinnar um
eignarhald og nýtingu auðlinda
sjávar, leggja grunn að innköllun
og endurráðstöfun aflaheimilda
á 20 ára tímabili í samræmi við
stefnu beggja flokka. Endurskoð-
unin mun verða unnin í samráði
við hagsmunaaðila í sjávarútvegi
og er miðað við að áætlun um
innköllun og endurráðstöfun taki
gildi í upphafi fiskveiðiárs 1.
september 2010. Skipaður verði
starfshópur er vinni að endur-
skoðuninni og kalli til samráðs
hagsmunaaðila og sérfræðinga.
Ríkisstjórnin telur brýnt að
treysta í sessi siðræn viðhorf í
umgengni við hafið og auðlindir
sjávar í ljósi þess að maðurinn er
hluti af náttúrunni og verður að
umgangast hana af ábyrgð. Nýta
þarf krafta sjómanna og útgerð-
armanna í hafrannsóknum til að
efla gagnasöfnun og rannsókn-
arverkefni sem þeir eru þátttak-
endur í. Kortleggja vel menntun
og fræðslu í sjávarútvegi með
það að markmiði að auka mennt-
unarstig í greininni. Íslendingar
áskilja sér hér eftir sem hingað
til rétt til nýtingar sjávarauðlinda
samkvæmt alþjóðlegum skuld-
bindingum. Forsendur fyrir
veiðum og nýtingu sjávarspen-
dýra, sela og hvala, verði endur-
metnar frá grunni með tilliti til
sjálfbærni og efnahagslegrar
þýðingar fyrir þjóðarbúið í heild
sem og alþjóðlegra skuldbind-
inga og ímyndar Íslands.