Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 21.05.2009, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Inn að beini Ársæll Níelsson,leikari og athafnamaður Níels Ársælsson er við nám í hinn margrómaða Comedia School í Danmörku. Hann hefur tekið þátt í ýmsum uppfærslum hér vestra og má nefna Djöflaeyjuna sem Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði setti upp og NÖRD hjá súgfirska leikfélaginu Hallvarður Súgandi. Einnig hefur hann stýrt ungmennaleikhúsinu Morranum og tekið þátt í skipulagningu Act alone. Það kemur því ekki á óvart að draumastarfið hans er að vera leikari. Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns? Að fara í menntaskóla á Ísafirði. Hvar langar þig helst að búa? Hvar sem er, svo lengi sem ég hef fjölskylduna hjá mér. Hver var hamingjusamasta stund lífs þíns? Fæðingar sona minna. Mestu vonbrigði lífs þíns? Að komast að því að ég gæti ekki flogið. Mesta uppgötvunin í lífi þínu? Þegar ég komst að því að Svavar Gestsson og Jón Baldvin væru ekki einn og sami maðurinn. Uppáhaldslagið? Turn your head með Live. Uppáhaldskvikmyndin? The Dark Knight. Uppáhaldsbókin? The Book of Lost Things eftir John Connolly. Ógleymanlegasta ferðalagið? Tveggja vikna ferð til Ítalíu haustið 2005. Uppáhaldsborgin? Kaupmannahöfn. Besta gjöfin? Nýr dagur. Telur þú að líf sé á öðrum hnöttum? Já. Hvaða hlut geturðu alls ekki verið án? GSM símans. Fyrsta starfið? Bæjarvinnan á Tálknafirði. Draumastarfið? Leikari. Hvaða frægu manneskju hefur þér verið líkt við? Hugh Grant. Fallegasti staðurinn á Íslandi? Tálknafjörður. Skondnasta upplifun þín? Þær eru svo margar. Fékk einu sinni rassinn á Árna Johnsen í andlitið, hann var sem betur fór klæddur í þurrbúning. Konan hans gaf mér súkkulaði í sárabætur. Aðaláhugamálið? Leiklist. Besta vefsíðan að þínu mati? IMDB.com og polli.blog.is Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Leikari. Hver er þinn helsti kostur að þínu mati? Góður húmor. En helsti löstur? Skapið, verst er að þeir sem sjá verstu hliðar þess eru þeir sem eiga það síst skilið. Besta farartækið? Lest. Hver er uppáhaldshátíðardagurinn þinn? Jóladagur. Hvaða manneskju lítur þú mest upp til? Johnny Depp og pabba. Ef þú mættir heita hvað sem er, hvað myndirðu heita? Ársæll. Á hvaða tíma sólarhrings kanntu best við þig? Kvöldin. Í hvaða stjörnumerki ertu? Hrútnum. Lífsmottóið þitt? Það reddast. Vélsmiðjan Mjölnir ehf. í Bolungarvík hefur verið úr- skurðuð gjaldþrota fyrir Hér- aðsdómi Vestfjarða. Skiptum á búinu lauk með úthlutunar- aðgerð í mars síðastliðnum. Samkvæmt henni greiddust 439 þúsund krónur upp í kröfur sem alls voru samtals að fjárhæð 5,2 milljónir króna eða 8,2873 hundraðshlutar. Ekkert greiddist upp í kröf- ur samtals að fjárhæð 85,1 milljónir króna. Lýstar kröf- ur í búið voru 100,4 milljónir króna. Ekkert fékkst upp í kröfur Kjörinn heið- urslistamaður Ísfirðingurinn Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld, hefur verið kjörinn heiðurslista- maður Kópavogsbæjar fyrir árið 2009. „Hjálmar hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá því hann flutti heim að loknu námi árið 1980. Verk hans spanna allt frá einleiksverk- um til stærri sinfónískra verka og frá einsöngslögum til söngleikja og ópera,“ sagði Sigurrós Þorgríms- dóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogs, þegar hún tilkynnti um kjör- ið. Hjálmar er sonur hjón- anna Sigríðar og Ragnars H. Ragnar, fyrrum skólastjóra Tónlistarskóla Ísafjarðar og bróðir Sigríðar Ragnars- dóttur, núverandi skólastjóra. Fóru á bátum niður Hólsá Sex Bolvíkingar fóru í svokallað „river rafting“ á þremur bátum niður Hólsá við Bolungarvík í síðustu viku. Þeir hófu siglinguna við brúna við Tungu. Áin ein- staklega straumhörð þessa dagana og létu bátarnir illa að stjórn að sögn Víðis Benediktssonar. „Það er mik- ið í ánni og hún er einstak- lega straumhörð. Maður réð ekkert við bátana. Ég fór al- veg á bólakaf og báturinn hvolfdist yfir mig. Við end- uðum út við Bolungarvíkur- höfn,“ sagði Víðir.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.