Bæjarins besta - 21.05.2009, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Þjónustudeild
aldraðra
Bloggið
[…] Málefni aldraðra eru í
tómum ólestri hvað skilgrein-
ingar varðar hér á norðursvæði
Vestfjarða. Og áreiðanlega víðar.
Það hefur ekkert með starfsfólk þeirra stofnana sem hér hafa verið
upptaldar að gera. Heldur skilgreiningarhlutann og peningana. Það
er eins og við, þessi sem yngri erum, gleymum því að áður en við
snúum okkur við, verðum við sjálf orðin öldruð,-beri okkur gæfa til
langlífis, og þurfum þá á viðhlítandi þjónustu að halda. En .... svona
komum við nú UNDAN GÓÐÆRINU! Hvernig fer þá kreppan með
þennan málaflokk? Ætli maður dagi ekki bara uppi á klassísku
fátækraheimili, sprottnu úr bókunum um Emil í kattholti? Þar sem
ein forstöðukona stelur bæði mat og neftóbaki frá okkur gamla
fólkinu og rennir sér í sleðaferðir á eftir einni góðri pylsu? Ein góð
pylsa er alltaf ein góð pylsa.....
Ég ætla að halda áfram að kynna mér þessi mál, það er greinilega
brotalöm víða. Og þó ég geti ekki mikið upp á eigin spýtur, hef ég
þó munn fyrir neðan mitt eðalnef og ætti að geta vakið athygli á því
sem mér finnst miður fara.
Ylfa Mist Helgadóttir – http://ylfamist.blog.is
Ný ríkisstjórn
Ég er að hugsa um að vera
gætinn og friðelskandi eins og
Páll heitinn afi minn og hyggst
dæma þessa ríkisstjórn af verkum
hennar fremur en mannvali. Þó
er mér skylt að láta þess getið
vegna fyrri ummæla minna að
mér líst fyrirfram vel á Svandísi
Svavarsdóttur sem umhverfis-
ráðherra. En Svandís þarf, eins
og stjórnin, að sýna í verki að
hún sé verð trausts áður en ég
lýsi yfir ótvíræðum stuðningi við hana. Ég skal hiklaust játa að ég
skil ekki erindi Katrínar Júlíusdóttur í þessari ríkisstjórn né heldur
Jóns Bjarnasonar. Mér finnst einhvern veginn að hans stóll sé eins
og heiðursóskarsverðlaun, bónus fyrir vel unnin störf í réttu kjördæmi.
Ég reyndi að gúgla yfirlýsingar Katrínar sem gætu tengst
stóriðjumálum, orkunýtingu eða rammaáætlun. En ég fann aðeins
krúttleg viðtöl um mataruppskriftir, kúrekastígvél, snyrtivörur og
rakspírapróf. Skrambi gott fyrir sinn hatt en rýrt veganesti í
ráðherrastól. En bíðum róleg og gefum þeim sjens. Líka Kötu.
Páll Ásgeir Ásgeirsson – http://blog.eyjan.is/pallasgeir/
Heija Norge
Mikill fögnuður braust út á
heimili títtnefndrar er Noregur
hreppti fyrsta sætið í söngva-
keppni Evrópskra sjónvarps-
stöðva og ekki var minni gleðin
er Jóhanna söng sig inn í hug og
hjörtu Evrópubúa með laginu
sínu sem skilaði því upp í annað
sætið. Þetta er glæsilegur árangur
og þjóðarrembingurinn er alveg yfirþyrmandi og norski skiptineminn
alsæl og allir hinir heimilismeðlimir einnig. Ekki skemmdi svo fyrir
að þjóðhátíðardagur Norðmanna, 17. maí rann upp í öllu sínu veldi
í framhaldinu. Það var ekki frítt við það að Idu langaði örlítið heim
til að taka þátt í hátíðarhöldunum í heimalandinu en hún reyndi að
hafa fánann sinn nálægt og klæddi sig upp í kjól og hvítt í tilefni
dagsins og tók lífinu með stóískri ró að vanda þrátt fyrir áhugaleysi
landans á þessum merka degi. Enginn var til að syngja með henni
þjóðsönginn, enginn skrúðganga var í Víkinni en hún gat fengið sér
ís og keypti sér pylsur líkt og hún gerir heima. Ekki óraði Vertinum
fyrir því hve mikilvægur hann er í augum Norðmanna en reyndi þó
eftir bestu getu að hafa hátíðlegt. Það hefði verið gott ef Peri gamli
hefði verið enn á lífi og í næsta húsi, það hefði farið vel á með þeim tveim.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir – http://vertinn.blog.is
Sumarstarf hjá Lyfju Ísafirði
Lyfja Ísafirði leitar að sjálfstæðum og metnaðarfullum sumarstarfs-
manni. Starfið felst í sölu og ráðgjöf til viðskiptavina við val á vörum,
afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausa-
sölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra auk annarra tilfallandi
verkefna. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní nk.
Um er að ræða starf alla virka daga frá kl. 10-18 og annan hvern laug-
ardag frá kl. 11-15.
Hæfniskröfur: Reynsla af verslunarstörfum er æskileg og reynsla úr
apóteki er kostur.
Nánari upplýsingar gefur Jónas Þór,
lyfsali Lyfju Ísafirði í síma 456 3009
eða á netfanginu jonas@lyfja.is.
Umsóknir sendist í gegnum
heimasíðu Lyfju hf., www.lyfja.is
eða í Lyfju Ísafirði.
Speglar í sturtuklefum Sund-
hallar Ísafjarðar hafa verið fjar-
lægðir vegna kvartana frá grunn-
skólabörnum og kennurum.
Speglarnir þóttu of stórir og þóttu
einstaklingar algjörlega óvarðir
fyrir því að einhverjir gætu horft
á þá nakta í speglunum og verður
í staðinn settir upp minni speglar
í þessari viku. Fastagestir Sund-
hallarinnar eru óhressir með að
þessi staða skuli komin upp núna
því speglarnir hafa verið í sturtu-
klefunum í 64 ár og eru margir
skólakrakkar ekki ánægð með
nýju tilhögunina því þau nota
speglana til að ganga úr skugga
um að þau hafi þrifið alla sápu úr
hári sínu. Ábending um óþægindi
sem speglarnir geta valdið barst
frá Sólstöfum, systursamtökum
Stígamóta á Vestfjörðum. Harpa
Oddbjörnsdóttir, talsmaður Sól-
stafa, segir speglamálið hafa
komið upp eftir að félagið hélt
námskeið í Grunnskólanum á Ísa-
firði.
„Það kom upp umræða um
speglana í sturtuklefunum á nám-
skeiðinu og í framhaldi af því
tók einn kennari sig til og benti
mér á þetta. Haft var samband
við Margréti Halldórsdóttur,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Ísa-
fjarðarbæjar, og í framhaldi af
því voru þeir teknir niður,“ segir
Harpa. Hún segir unga fólkið
hafa haft orð á því við félagið að
þeim finndist óþægilegt að hafa
svo stóra spegla í klefanum og
þurfa þar að leiðandi að horfa á
aðra einstaklinga nakta í speglun-
um hvert sem er litið í sturtuklef-
anum og vera óvarin fyrir því að
einhver sé að horfa á sig í klef-
anum. „Mér finnst þetta löngu
tímabært að þetta sé gert,“ segir
Harpa. Hún segist ekki vita til að
speglar verði teknir niður á
öðrum almenningasbaðstöðum
og veit ekki til þess að mann-
hæðaháir speglar séu inn í sturtu-
klefum annarsstaðar.
„Speglarnir eru oftast nær yfir
vöskum en aldrei inn í sturtu-
klefanum sjálfum og enginn
tilgangur með þeim líkt og voru
í sturtuklefum Sundhallar Ísa-
fjarðar,“ segir Harpa.
– birgir@bb.is
Speglar fjarlægðir
úr sturtuklefunum
Speglar í sturtuklefum Sundhallar Ísafjarðar hafa verið
fjarlægðir vegna kvartana frá grunnskólabörnum og kennurum.