Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 15
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 15
HG fékk sex styrki frá AVS
Hraðfrystihúsið Gunnvör í
Hnífsdal kemur að sex verkefn-
um sem fengu styrk úr AVS rann-
sóknasjóði. Hæsti styrkurinn
nam 25,8 milljónum króna til
kynbóta á þorski og seiðaeldi en
að verkefninu standa HG, IceCod
ehf, Stofnfiskur hf, Tilrauna-
eldisstöð Hafrannsóknastofnunar
og Tilraunastöð HÍ í meinafræð-
um að Keldum. Aðlöðun og
gildrun þorsks hlaut 8 milljónir
króna en að því koma Hjalti
Karlsson hjá Hafrannsóknastofn-
un, Háskólinn á Akureyri, LÍÚ
og Hraðfrystihúsið-Gunnvör.
Sex milljónum var úthlutað til
verkefnisins ljósvarpa sem Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands, Haf-
rannsóknastofnun, Hraðfrysti-
húsið-Gunnvör og Fjarðarnet
vinna að.
Milljón var úthlutað til rann-
sókna á afföllum á þorski í sjó-
kvíum en verkefnisstjóri er Krist-
ján G. Jóakimsson og að þeim
standa Hraðfrystihúsið Gunnvör
hf, HB Grandi, Sjávarútvegs-
þjónustan og Tilraunastöð HÍ í
meinafræði að Keldum. Þá var
úthlutað 4,5 milljónum vegna
hönnunar eldiskvía fyrir íslensk-
ar aðstæður á vegum Matís, Nátt-
úrustofu Vestfjarða, Hafrann-
sóknastofnun, Veðurstofu Ís-
lands, Hraðfrystihússins Gunn-
varar.
3,8 milljónir fóru í verkefnið
bestun á útsetningarstærð og út-
setningartíma þorskseiða í kvíar
sem HB-Grandi, Hraðfrystihúsið
Gunnvör, Rannsókna og fræða-
setur Háskóla Íslands á Vest-
fjörðum, Matís og Stofnfiskur
standa að. 1,9 milljónir í áhrif
fóðrunartíðni og þéttleika á ung
þorskseiði á vegum Háskólans á
Hólum og Rannsókna og fræða-
setur Háskóla Íslands á Vest-
fjörðum. Rannsókna og fræða-
setur Háskóla Íslands á Vest-
fjörðum, Hafrannsóknastofnun,
Náttúrustofa Vestfjarða fékk 3
milljónir vegna rannsókna á
áhrifum þorskeldis á villta stofna:
samkeppni um svæði og fæðu.
Og 5,4 milljónir fóru í verkefnið
í bestun á þíðingar- og ílagnar-
ferli rækju til pillunar sem unnið
er af Dögun, Hólmadrangi og
Matís.
Fjöldi umsókna til AVS sjóðs-
ins hafa aldrei verið fleiri en í ár
og greinilegt að það er mikil hug-
myndavinna í gangi um allt land.
Alls bárust rúmlega 160 umsókn-
ir þar sem sótt var um ríflega 800
milljónir króna. Nú liggur fyrir
að 76 verkefni fá styrk á þessu
ári og því þarf að hafna rúmlega
80 umsóknum. Samtals eru þessi
verkefni að fá tæplega 325 millj-
ónir.
AVS stendur fyrir „aukið virði
sjávarafurða“ og er rannsókna-
sjóður á vegum sjávarútvegs-
ráðuneytisins sem veitir styrki
til rannsóknaverkefna, er auka
verðmæti sjávarfangs.
– thelma@bb.is
Hraðfrystihúsið Gunnvör ásamt samstarfsaðilum kemur að sex
verkefnum sem hlutu styrk úr AVS rannsóknasjóðinum í ár.