Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 16

Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Jóhanna – til hamingju Ísland! Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Stakkur skrifar smáar Til sölu er nánast ónotaður Crosstrainer. Tilboð óskast. Uppl. í síma 849 5315. Tapast hafa stór Afríku-tromma (Djembe) og tréspil (xílófónn) frá Tónlistarskóla Ísafjarðar. Þessi hljóðfæri eru okkur afar kær og nauðsynleg við daglega kennslu. Hugsanlega liggja þau einhvers staðar og bíða eftir að þau verði fundin. Fundar- laun! Lúffur með dökki skinni í lófa og selskinnslit í bakið fyrir 6- 13 ára og klassísk 66 gráður norður húfa, fóðruð að innan með dökku gæriskinni fundust í Tónlistarskólanum. Einnig full- orðins sólgeraugu. Eigendur geta vitjað þeirra í skólanum. Óska eftir ódýrum ísskáp, helst um 120 cm á hæð eða hærri. Uppl. í síma 820 8284. Handavinnusýning eldri borg- ara verður á Hlíf í dag, fimmtu- dag kl. 14-17. Vöfflur og kaffi- sala. Verið velkomin. Til leigu er 5 herb. íbúð. Laus í leigu 1. júní. Upplýsingar í síma 898 3802. Til leigu er 4-5 herb. 110m² íbúð á 3ju hæð í hverfi 108 í Reykja- vík. Eldhús, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, þvottahús með stórum vélum í sameign. Íbúðin leigist frá 1. júlí nk. Uppl. í síma 696 4622 og 588 0494. Hin gömlu góðu gildi lifa enn. Þau hafa meira að segja lifað af útrásarþrjótana. Það er mikil skömm að því að tala um víkinga í sömu andránni og þrjóta sem svífast einskis og hafa enga samvisku yfir því að keyra almúgann í þrot á Íslandi meðan þeir halda áfram að skemmta sér á kostnað hans erlendis. Einhvern veginn er það svo að þótt margir tengi víkinga við ofbeldi og yfirgang og vissu- lega sé þar að finna tengsl við þá sem sóttu fram með látum er- lendis og nutu náðar stjórnvalda frá þeim æðsta og niður úr að ógleymdum lesendum íslenskra slúður- og myndablaða sem ekki verða nefnd hér, þá áttu víkingarnir siðferði, þeir hirtu um vini sína, sórust í fóstbræðralag og hefndu þeirra ef svo bar undir. Þrjót- arnir hugsa bara um sig og ekkert annað. Þessi formáli var til að undirstrika það að sú glæsilega stúlka sem vann annað sæti fyrir Íslendinga í Melodi Grand Prix keppninni, sem oftast er kennd við Eurovision, bar af sér góðan þokka og var Íslandi og Íslendingum til sóma í hvívetna og líkleg til að ná aftur einhverju af glötuðu orðspori okkar erlendis. Bretar veittu okkur 10 stig, Norðmenn, Írar og Möltubúar 12 stig hver, auk allra hinna sem höfðu okkur á blaði að þessu sinni. Fyrir það eigum við að vera þakklát. Þessi auglýsing fyrir Ísland og þjóðina er ómetanleg. Hún bætir um hirðuleysi þriggja síðustu ríkisstjórna við að vinna okkur orðstír að nýju erlendis. Það tekur langan tíma að vinna sér orðstír að öllu jöfnu. Að þessu sinni vann þessi fallega stúlka, Jóhanna Guðrún, afrek með afburða fallegum söng sínum, sem hreif fólk um alla Evrópu og víðar. Það gerðist á örskotsstundu enda var unun að heyra hve vel margir kynnar töluðu um hana. Látlaus og einföld framkoma hennar í besta skilningi þess orðs vann hug og hjörtu fólks, sem ýmist hafði lítið um Ísland hugsað eða jafnvel sent okkur slæmar hugsanir. Slíkt er ómetanlegt. Jóhanna Guðrún sýndi hve einlægni og hreinskiptin framkoma gefur mikið af sér í bland við aðra hæfileika. Margir gætu mikið af henni lært. Íslendingar eru stoltir af þessum unga glæsilega fulltrúa þjóðar- innar, sem gerði sitt besta með eftirminnlegum hætti. Sú staðreynd minnir okkur á að í unga fólkinu er fólgin fjársjóður og kraftur sem leitt getur þjóðina upp úr þeim erfiða öldudal sem hún nú siglir. Jafnframt varpar hún ljósi á þá staðreynd að ekki er nóg að vera ungur. Hæfileika þarf til. Yfir þeim bjuggu unglingarnir í hópi útrásarþrjótanna ekki, þótt hampað væri. Þegar saman fara einlægni, hæfileikar, einbeittur vilji til að nýta þá og útgeislun þá nær fólk langt. Það sýndi Jóhanna Guðrún okkur eftirminnilega, en hún hafði líka úr að spila góðum efnivið, lagi Óskars Páls Sveinssonar og meðhöfunda. Þeim er öllum óskað til hamingju, einkum söngkonunni sem stóðst álagið með prýði. Ertu orðin(n) áskrifandi? Síminn er 456 4560! Kristján B. Ólafsson, við- skipta- og hagfræðingur hefur ákveðið að bjóða sig fram í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur. Hann segir Bolvíkinga afar ósátta við þróun mála hjá sjóðnum og skil- ur ekki hvernig sjóðurinn gat tekið ákvarðanir sem leiddu til þess að eigið fé hans rýrnaði um 80% milli áramóta . „Þessi afleita staða hlýtur að leiða til þess að gera verði rót- tækar breytingar á stjórn og rekstri sjóðsins. Þá hefur sjóður- inn þurft að leita aðstoðar hjá ríkinu þar sem CAD hlutfallið er komið niðurfyrir leyfileg mörk. Af þessum sökum hef ég tilkynnt Ásgeiri Sólbergssyni, sparisjóðsstjóra, og stjórn sjóðs- ins að ég gefi kost á mér til stjórnar og geti þar með lagt af mörkum viðskipta- og hagfræði- menntun ásamt 25 ára reynslu við stjórnun fyrirtækja og fjár- málastjórn,“ segir Kristján. Býður sig fram í stjórn „Flateyri: hús og fólk“ var formlega tekið í notkun í Félags- bæ á Flateyri á laugardag en um er að ræða nokkurs konar rafrænt leiðsögukerfi. Verkefnið felst í sextán söguskiltum sem sett hafa verið upp víðsvegar um Flateyri með teikningum Ómars Smára Kristinssonar og grunnupplýs- ingum um hvern stað á íslensku, ensku og þýsku. Samhliða þessu hefur verið tekinn saman texti, sem hefur verið leiklesinn af Elf- ari Loga Hannessyni og hljóðrit- aður í Tanknum á Flateyri. „Þetta hefur vakið mikla athygli og lukku. Vel var mætt í Félagsbæ og allir virðast vera mjög spenntir fyrir þessu formi. Við erum nátt- úrulega að renna blint í sjóinn með þetta en byrjunin lofar alla- vega góðu“segir Jón Svanberg Hjartarson sem unnið hefur að verkefninu. Sautján kaflar af efni hafa verið settir á MP3 spilara sem fólk getur leigt gegn tryggingargjaldi. Hugmyndin er sú að fólk geti gengið um með spilarana og hlustað á ítarlega frásögn frá hverjum stað, en á hverju sögu- skilti er númerið á þeim kafla sem á við hverju sinni. „Við ákváðum að hafa þetta gjaldfrítt í ár og því fá þeir sem leigja spilarana trygginguna til baka þegar þeir skila. Við förum í það í dag og á morgun að koma spil- urunum í útleigu á bensínstöð- inni“, segir Jón Svanberg. Efnið á spilurunum er á íslensku en unnið er að því að gera samantekt á ensku og þýsku. „Íslenska efnið er mun ítarlegra og oft er verið að segja frá nafnþekktum mönn- um sem brottfluttir Önfirðingar hafa gaman af því að heyra um en útlendingana varðar ekkert um það“, segir Jón Svanberg. Er þetta í fyrsta sinn, svo blaða- manni sé kunnugt, um að leið- sögukerfi að þessu sé verið tekið upp á Íslandi. Hugmyndasmið- irnir eru Önfirðingarnir Guðrún Pálsdóttir og Jóhanna Kristjáns- dóttir en heilmargir hafa komið að verkefninu. – thelma@bb.is Rafrænt leiðsögukerfi vekur athygli Jón Svanberg Hjartarson og Jóhanna Kristjánsdóttir kynntu verkefnið í Félagsbæ. Ljósm: Páll Önundarson.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.