Bæjarins besta - 28.01.2010, Blaðsíða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 400 m/vsk
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 400 m/vsk
Fimmtudagur
28. janúar 2010
4. tbl. · 27. árg.
Ljósm: Spessi.
„Það er fólksins á hverjum stað að sjá til þess að hlutirnir gerist og það sé jafnvægi á milli landshluta.
Þessi hugsanafeill að höfuðborgin sé eini staðurinn þar sem eitthvað gerist af viti er menningarlega
stórhættulegur og það verður að snúa honum við,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt og for-
stöðumaður listamiðstöðvarinnar Shorefast á Fogo-eyju við Nýfundnaland, í fróðlegu spjalli um fer-
ilinn, lífið og listamiðstöðvar utan alfaraleiðar í opnu blaðsins.
Borgin er ekki norm
og á ekki að vera það