Bæjarins besta - 28.01.2010, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Níu tilnefningar bárust um kjör íþróttamanns ársins.
Emil Pálsson íþróttamaður
ársins 2009 í Ísafjarðarbæ
Knattspyrnumaðurinn Emil
Pálsson hefur verið útnefndur
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið
2009. Emil Pálsson er 16 ára og
æfir hjá Boltafélagi Ísafjarðar.
Hann hefur leikið frábærlega
með meistaraflokksliði BÍ/Bol-
ungarvíkur og stóð sig frábærlega
í 2.deildinni í sumar. Emil var í
haust kjörinn efnilegasti leikmað-
ur á lokahófi BÍ/Bolungarvík.
Einnig hefur Emil sýnt góða takta
með U17 landsliðinu og keppti
meðal annars á Norðurlandamót
U17 landsliða í Noregi í sumar
þar sem Emil var í byrjunarliðinu
í þremur af fjórum leikjum liðs-
ins og skoraði tvö mörk. Viður-
kenning fyrir útnefninguna og
farandbikar var afhentur við há-
tíðlega athöfn í Stjórnsýsluhús-
inu á Ísafirði á sunnudag.
Níu tilnefningar bárust frá
íþróttafélögum um kjör íþrótta-
manns Ísafjarðabæjar fyrir árið
2009. Þeir sem tilnefndir voru
Anna María Stefánsdóttir hjá
Sundfélaginu Vestra, Anton
Helgi Guðjónsson hjá Golfklúbbi
Ísafjarðar, Baldur Geir Gunnars-
son hjá Knattspyrnufélaginu
Herði, handknattleiksdeild, Bylgja
Dröfn Magnúsdóttir hjá Hesta-
mannafélaginu Hendingu, Emil
Pálsson hjá Boltafélagi Ísafjarð-
ar, Guðmundur Valdimarsson
hjá Skotíþróttarfélagi Ísafjarðar-
bæjar, Pance Iliewski hjá Körfu-
knattleiksfélagi Ísafjarðar, Silja
Rán Guðmundsdóttir hjá Skíða-
félagi Ísfirðinga og Ragney Líf
Stefánsdóttir hjá Íþróttafélaginu
Ívari en hún var útnefnd íþrótta-
maður Ísafjarðarbæjar fyrir árið
2008. – kristjan@bb.is
Gísli Halldórsson og Emil Pálsson við útnefninguna.