Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.01.2010, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 28.01.2010, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is, Kristján Einarsson, símar 456 4560 og 848 3403, kristjan@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Spurningin Óttast þú stóran jarð- skjálfta á Vestfjörðum? Alls svöruðu 640. Já sögðu 31 eða 5% Nei sögðu 609 eða 95% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Helgarveðrið Horfur á föstudag: Fremur hæg breytileg átt og stöku él. Frost 0-10 stig, kaldast í innsveitum. Horfur á laugardag: Fremur hæg breytileg átt og stöku él. Frost 0-10 stig, kaldast í innsveitum. Horfur á sunnudag: Útlit fyrir suðaustanátt með úrkomu sunnan- og vest- anlands og heldur hlýn- andi veður. Ritstjórnargrein Um 220 manns á þorrablóti í GÍ Nemendur í 10. bekk Grunn- skólans á Ísafirði, foreldrar þeirra, aðrir gestir og kennarar skemmtu sér hið besta á þorrablóti sem haldið var á bóndadaginn í skól- anum. „Blótið heppnaðist frá- bærlega. Þarna voru saman- komnir um 220 manns. Eins og vanalega sáu foreldrar og kenn- arar um skemmtiatriðin og léku foreldrar m.a. Michael Jackson sem vakti lukku hjá krökkunum. Mikið var dansað undir öruggri stjórn Evu Friðþjófsdóttur og for- eldrarnir stóðu sig vel í skemmti- atriðum. Þetta er örugglega besta þorrablótið í bænum þar sem ekk- ert áfengi er haft um hönd“, segir Guðríður Sigurðardóttir, umsjón- arkennari í GÍ. Blótið er ein af elstu hefðum skólastarfsins og með þeim skemmtilegustu að margra mati, því það má telja það eins konar manndómsvígslu að hafa upplif- að að snæða þorramat með ætt- ingjum sínum, hlustað á gaman- vísur um náungann og horft á heimatilbúið skaup áður en flogið er úr öruggum faðmi grunnskól- ans á vit fullorðinsáranna. Að borðhaldi loknu var slegið upp balli og dansaðir gömlu dansarnir en unga fólkið hafði æft gömlu dansana að undan- förnu undir leiðsögn Evu Frið- þjófsdóttur danskennara auk þess sem nokkrir foreldrar þáðu dans- tíma. Að vanda voru þeir sem gátu hvattir til að skarta þjóð- búningum og voru þó nokkrir sem gerðu það. – thelma@bb.is Á sömu þúfunni! Óneitanlega kann fyrirsögnin að þykja í mótsögn við leiðara sem fjallar um fiskveiðar. Enda til þess eins ætluð að undirstrika sundur- leita, ómarkvissa umræðu, brask og hagsmunaátök um kerfi ætlað til verndar fiskistofnum, en sem hefur frá upphafi leitt til stórfellds ágreinings þar sem í skjóli þess var stofnað til mestu eignatilfærslu í sögu þjóðarinnar. Í góða tvo áratugi var þjóðinni talin trú um að kvótakerfinu hafi verið ætlað það hlutverk að byggja upp fiskistofna, sem komnir voru að hruni. Í aðdraganda kosninganna 2003 var því hins vegar lýst yfir að því hafi verið komið á fót til bjargar útgerðinni, sem á þeim tíma hafi verið rjúkandi rúst. Linnulaust var brýnt fyrir almenningi að frjálst framsal aflaheimilda væri möndull kerfisins. Fyrir sömu kosningar lýsti þáv. formaður Framsóknarflokksins, Halldór Ásgrímsson, yfir að ,,framsalið hafi verið ágalli (á kvótakerf- inu) alla tíð“ það, ,,særði réttlætiskennd þjóðarinnar.“ Í nóv. 2001 sagðist Árni Mathiesen, þáv. sjávarútvegsráðherra, að hann væri til- búinn að skoða afnám leiguframsalsins. Í janúar 2007 sagðist Einar K. Guðfinnsson, þáv. sjávarútvegsráðherra, opinn fyrir að skoða þetta mál. Í ráðherratíð Þorsteins Pálssonar var frumvarp Guðjóns Guðmundssonar og Guðmundar Hallvarðssonar, um bann við sölu á kvóta, svæft í sjávarútvegsnefnd Alþingis. ,,Ég er ekki viss um að allir þingmenn geri sér grein fyrir hvað þeir voru að samþykkja“ eru fleyg orð Kristjáns Pálssonar, fyrrum alþingis- manns, þegar svefnvana þingmenn björguðu bankakerfinu fyrir horn með því að heimila veðsetningu aflaheimilda, að beiðni Steingríms Hermannssonar, þáv. Seðlabankastjóra. Kristján hafði rétt fyrir sér. Síðar sögðu þeir sem stóðu fyrir veðsetningu þjóðareignarinnar að ef yrði hróflað við kerfinu færi allt til fjandans. Stundum er sagt að þetta og hitt sé í skötulíki. Nú er skötuselurinn sagður ógna kerfinu, sem ku vera í endurskoðun vegna mannréttinabrota, sem það er sagt leiða af sér. Með reiknistokk í hendi komast menn sitt á hvað um ágæti og vankanta strandveiðanna, allt eftir því hverra hagsmuna er verið að gæta. Í fáum orðum: klögumálin ganga á víxl. Sérhagsmunirnir stangast á. Og nú, þegar við þurfum á öllu okkar að halda, er þrælsóttinn við reiknistokkinn svo mikill að við þorum ekki að auka þorskveiði, tak- markaðan tíma, þrátt fyrir ótal vísbendingar um að áhættan í þeim efnum sé hverfandi. Hvar er nú kjarkinn að finna? Þegar allt kemur til alls er því hægt að orða það svo að við séum enn á sömu hundaþúfunni hvað kvótakerfið varðar, helteknir skamm- tímahagsmunum, aldrei náð að horfa fram á veginn. (Hvernig væri að hóa í Matthías?!) Þær eru víða skotgrafirnar. Fastir í þeim vinnum við enga orustu, hvað þá stríðið. s.h.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.