Bæjarins besta - 28.01.2010, Side 7
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 7
Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Endurskoðun Vestfjarða ehf. stóðu fyrir skattafundi á
Hótel Ísafirði á föstudaginn. „Það var góð mæting og fín stemming , það voru um 90 manns
búnir að boða komu sína, en það mættu fleiri.“ segir Guðmundur Kjartansson hjá Endurskoðun
Vestfjarða ehf. Á fundinum voru kynntar nýlegar skattabreytingar og áhrif þeirra á atvinnulífið.
Vala Valtýsdóttir, lögfræðingur og yfirmaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte og Sigurður Páll
Hauksson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte fluttu erindi og fundarstjórn var í höndum
Þorvarðs Gunnarsson, forstjóra Deloitte. – kristjan@bb.is
Fjölmenni á skattafundi
Fjöldi manns mætti á skattafund sem haldinn var á Hótel Ísafirði á föstudag.
Samningaviðræður standa nú
yfir milli bæjaryfirvalda í Ísa-
fjarðarbæ og Slökkviliðs Ísa-
fjarðarbæjar um öryggisþjónustu
á Hlíf, þjónustuíbúðum aldraðra
á Ísafirði. Mun sú þjónusta taka
við af þeirri þjónustu sem þjón-
ustudeildin hefur veitt til þess en
eins og kunnugt er verður deild-
inni lokað um næstu mánaðamót.
„Öryggið í húsinu verður mun
meira ef eitthvað er, nú eru
hnappar og spottar í húsinu sem
fólk getur ýtt á ef það þarf á
aðstoð halda en nýja þjónustan
felst í því að fólk verður með
hnapp á hendinni. Þegar ýtt er á
hnappinn hringir síminn hjá þeim
sem er á vakt og hann ræðir við
viðkomandi á meðan aðstoð
berst,“ segir Maron Pétursson,
forstöðumaður Hlífar.
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sem
séð hefur um sjúkraflutninga í
sveitarfélaginu í þrjá áratugi. Að
sögn Marons eru samningavið-
ræður á lokastigi. Maron segist
mjög ánægður með fyrirhugaðan
samning. „Ég er mjög ánægður
með að þjónustunni sé sinnt af
heimamönnum og peningarnir
haldist í byggðalaginu. Ég hef
fulla trú á að þjónustunni verði
sinnt mjög vel.“ – thelma@bb.is
„Öryggið verður meira“
Hlíf á Ísafirði.