Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.01.2010, Síða 12

Bæjarins besta - 28.01.2010, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Í minningu svæðisútvarps Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Stakkur skrifar smáar Til sölu er glæsileg íbúð á Hlíf II. Um er að ræða endaíbúð og eina af stærstu íbúðunum á Hlíf. Íbúðin er í toppstandi. Uppl. í síma 456 3244. Til sölu er nýr ofn og hellu- borð. Selst saman. Upplýsing- ar í síma 869 8015 eftir kl. 16. Vantar þig trog á þorrablótið? Hafðu þá samband í síma 895 1633. Til sölu er skenkur, lengd 148 cm, breidd 43,5 cm, hæð 87,5 cm. Vel með farinn. Selst á kr. 10.000. Uppl. í síma 456 3594. Til sölu er þrekhjól með þrek- mæli. Verð kr. 10.000. Uppl. í síma 896 3682. Óska eftir þvottavél, sófaborði, sjónvarpsskáp, 2ja manna eld- húsborði og tveimur stólum fyrir lítið eða gefins. Uppl. í síma 869 3111 (Herdís). Grunnvíkingar! Hið árlega þorrablót Grunnvíkingafélags- ins verður haldið laugardag- inn 13. febrúar nk. í Félags- heimilinu í Hnífsdal. Miðapant- anir eru hjá G. Óla Lyngmo í síma 863 3852, Erni Ingasyni í síma 456 3696 og Agnesi Sig- urðardóttur í síma 456 7135. Til sölu er Subaru Forrester árg. 2004, ekinn 89 þús. km., sjálfskiptur. Áhvílandi lán kr. 1.100.000. Greiðsla kr. 38 þús. á mánuði. Góð nagladekk og sumardekk á felgum. Tek ódýr- ari bíl upp í. Upplýs. í síma 895 4115. Hundabúr fyrir stóra hunda með áfastri matardollu til sölu. Uppl. í síma 849 5315. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í Bolungarvík, Elías Jónatansson bæjarstjóri og Bald- ur Smári Einarsson, hafa ákveðið að gefa kost á sér á ný við sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Þetta kom fram á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Bolungar- vík, sem haldinn var fyrir stuttu. Ragna J. Magnúsdóttir tilkynnti á fundinum að hún myndi ekki gefa kost á sér að nýju. Fulltrúa- ráðið samþykkti, líkt og undan- farin ár, að ekki yrði haldið próf- kjör til að velja frambjóðendur flokksins á lista. „Fulltrúaráðið lýsir ánægju sinni með störf núverandi meiri- hluta bæjarstjórnar og þann við- snúning sem náðst hefur í fjár- málum bæjarins. Sömuleiðis ítrekar fulltrúaráðið mikilvægi þess að halda áfram á sömu braut þannig að hægt verði að greiða af lánum og minnka skuldir sveit- arfélagsins en ljóst er að það verður aðalviðfangsefni bæjar- stjórnar á komandi kjörtímabili.“ segir á vikari.is. Elías og Baldur Smári gefa kost á sér áfram Eigendur Hvamms í Dýrafirði hafa óskað eftir fundi með bæj- aryfirvöldum í Ísafjarðarbæ varð- andi nýtingu á vatni á landar- eigninni, sem er vatnsverndar- svæði Þingeyrar. Í desember var haldinn samráðsfundur með flestum eigendum jarðarinnar Hvamms þar sem farið var yfir samning um vatnsöflun og nýt- ingu sveitarfélagsins á vatni úr landi Hvamms en hann var und- irritaður í ágúst 1972 og átti ein- ungis að gilda í fimm ár. „Okkur er ekki kunnugt um að samningurinn hafi verið endur- nýjaður, hafi hann verið endur- nýjaður þætti okkur vænt um að fá upplýsingar þar um. Hafi hann hins vegar ekki verið endurnýj- aður teljum við eðlilegt að svo verði gert við fyrsta hentugleika. Æskilegt væri að við þá endur- skoðun verði höfð hliðsjón af almennum samningum sveitarfé- laga um sama efni,“ segir í bréfi landeigenda til bæjaryfirvalda. Þar er jafnframt óskað eftir samráðsfundi er sólin hækkar, sennilega í byrjun mars, og æskilegt sé að drög að nýtum samningi liggi þá fyrir. Þeim Ragnari Erni Þórðarsyni, Steinari Steinssyni og Þorbergi S. Leifs- syni hefur verið falið að vinna drög að nýjum samningi og hefur bæjarráð falið bæjarstjóra að ræða við þá um nýtingu vatns úr landi Hvamms í Dýrafirði. – thelma@bb.is Samningur um vatnsréttindi út- runninn fyrir tæpum 33 árum? Eigendur í Hvammi í Dýrafirði vita ekki til þess að samningur varðandi nýtingu á vatni á landinu hafi verið endurnýjaður en hann rann út fyrir tæplega 33 árum. Afleiðingar græðginnar sem felldi íslensku bankanna kemur æ betur í ljós. Enn er þess beðið að hlutur heimilanna á Íslandi verði réttur þannig að fólk fái staðið undir meiri skuldum sem spruttu upp þegar gengi krónunnar féll og álit Íslendinga erlendis öllu meir. Meðan endurreisnar er beðið hefur al- menningur sýnt mikla þolinmæði. Samtímis lætur margt undan sem hefur þótt sjálfsagt í nútímalífi. Svæðisútvarp Vestfjarða hefur nú verið lagt niður. Hvert hafa yfirlýsingar ráðamanna um að sinna menningu og fréttum úr öllum landshlutum horfið? Lagður var á sérstakur skattur að undirlagi Sjálfstæðisflokksins til að standa undir rekstri Ríkisútvarpsins. Skyldi hann koma í stað afnotagjalda. Þeirra er nú saknað. Nú er svo komið að tekjustofn sem sérstaklega var ætlaður Ríkisútvarpinu hefur verið skertur um 10% og skal sá hluti renna í hinn sameiginlega ríkissjóð. Væntanlega á hann að renna til svonefndrar norænnar velferðar. Það hugtak er óljóst og hefur ekki verið útskýrt nægilega fyrir þjóðinni. Eitt er ljóst að hugtakið verður ekki skýrt í Svæðisútvarpi Vestfjarða í ná- inni framtíð. Ekki verða fluttar fréttir af atburðum, menningu og verkum Vestfirðinga á þeim vettvangi næstu árin. Hætt er við að hlutur okkar Vestfirðinga verði rýr í Ríkisútvarpinu um ófyrirséða framtíð. Hverjar afleiðingarnar verða er vandi að spá um, en afar líklegt er að lítið verði fjallað um framantalið í útvarpi á Íslandi, hvort heldur er í því frjálsa eða Ríkisútvarpinu, sem setur niður við þessi málalok. Spurningu um gagnsemi eða gagnsleysi svæðisútvarps landshluta verða ráðmenn, bæði útvarpsstjóri og menntamála- ráðherra, að svara bæði Vestfirðingum og almenningi á Íslandi. Ella verður að ekki unnt að líta á þessa niðurstöðu með öðrum hætti en þeim að mat þeirra sé að gagnið sé lítið eða ekkert. Í síðustu viku var minnst snjóflóðsins í Súðavík fyrir rúmum 15 árum. Þá var þess ekki getið að mat margra var að Svæðis- útvarp Vestfjarða hefði gegnt miklu og nytsömu hlutverki í fréttaflutningi. Hlutverk fjölmiðla er víðtækt. Sá grunur læðist að mörgum að allt of stór hluti fólks líti svo á útvarp, að því beri að skemmta mönnum með léttu hjali og tónlist. Sé svo er ríkis- útvarp óþarft og fé sem ætlað er til reksturs þess betur varið til velferðar, hvort heldur norrænnar eða því sem er enn æskilegra íslenskrar velferðar sem of sjaldan hefur heyrst nefnd í ræðu og riti. Margir hafa gagnrýnt Svæðisútvarp Vestfjarða undanfarna áratugi, einkum fyrir að flytja ekki jákvæðar fréttir af Vest- fjörðum. Þeim verður nú að ósk sinni að sjá það hverfa af vettvangi. Hollt er að hafa í huga að fréttir verða einungis jákvæðar ef eitthvað jákvætt gerist. Þær neikvæðu skapa sig sjálfar. Þökk fyrir samfylgdina RÚVVEST. Gerist áskrifendur í síma 456 4560

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.