Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.05.2010, Síða 10

Bæjarins besta - 27.05.2010, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Væri örugglega þungarokkari Hjálmar H. Ragnarsson, tón- skáld og rektor Listaháskólans, er sannfærður um það að ef hann væri ungur í dag myndi hann heillast af þungarokki. Hann sér þó ekki eftir þeim farsæla ferli sem hann hefur átt og hlakkar til að snúa sér alfarið að tónlistar- sköpun þegar tímabilinu sem rektor lýkur eftir þrjú og hálft ár. Hjálmar rakti sögu sína í stórum dráttum fyrir Bæjarins besta og auðvitað hefst hún á Smiðjugötu 5 á Ísafirði, þar sem foreldrar hans, þau Ragnar H. Ragnar og Sigríð- ur Jónsdóttir Ragnar, réðu ríkj- um. „Smiðjugata 5 er ekki bara hús, þótt það sé með fallegustu hús- um, heldur er þetta líka nokkurs konar menningarstofnun og menn tengja þetta hús við tónlist- arsögu Ísfirðinga og jafnvel Vest- firðinga. Þar var rekinn tónlistar- skóli áratugum saman og þar var og er enn nokkurs konar menn- ingarmiðstöð. Á þeim árum sem ég er að alast þar upp og foreldrar mínir eru allt í öllu í menningar- lífinu á Ísafirði þá er þarna straum- ur fólks í gegnum húsið, ekki bara Ísfirðingar heldur ekki síður aðkomufólk. Ég held það megi segja að flestir rithöfundar og listamenn, auk margra annarra, sem komu til Ísafjarðar á þessum árum hafi talið sig eiga erindi á Smiðjugötuna. Ég man eftir blá- ókunnugu fólki sem hringdi bjöllunni og sagði að því hefði verið sagt að það yrði heimsækja Siggu og Ragnar ef það væri á Ísafirði. Það þótti bara sjálfsagt og alltaf jafn vel tekið á móti öllum. En fyrst og fremst var þetta auðvitað staður fyrir ungt fólk. Þótt foreldrar mínir, og þá sér- staklega pabbi, hafi þá verið orð- inn roskinn þá var Smiðjugatan staður sem ungt fólk átti einhvern veginn erindi við, hvort sem það voru menntskælingar eða yngri krakkar, þannig að þetta var ekk- ert venjulegt heimili. Mest af kennslunni við Tónlistarskólann fór fram á Smiðjugötunni, þótt pabbi reyndar kenndi meira úti í bæ og eignaðist vinskap við alls konar fólk sem leigði honum her- bergi þar sem hann fékk nemend- ur í tíma. Svo voru auðvitað hljómleikar í stofunni alla sunnu- daga og reyndar miklu oftar. Mamma kenndi líka tónfræði heima, því þótt hún væri ekki menntuð tónlistarkona gat hún kennt allan skrattann, líka tónlist. Hennar aðalstarf var þó að kenna við Barnaskólann. Hún tók líka oft krakka sem hún var að kenna þar með sér heim og hjálpaði þeim við heimanámið. Hún hafði góð tök á unglingum sem voru taldir vandræðagemlingar í þá daga og var oft fengin til að kenna þeim. Þannig að það var ekki bara tónlistarskólinn sem átti at- hvarf í húsinu heldur líka þessir skjólstæðingar mömmu.“ Var þetta aldrei erfitt fyrir ykk- ur systkinin? „Nei, ég minnist þess nú ekki. Það var kannski bara ekkert spurt. Við til dæmis æfðum okkur oft einhvers staðar úti í bæ, því það var ekkert auðvelt að komast í píanóið heima. Þetta var, eins og ég segi, bara stöðugur gestagang- ur og okkur þótti það alveg eðli- legt. Pabbi var líka organisti í kirkjunni, þannig að hann tók oft á móti fólki út af jarðarförum og alls konar athöfnum, og svo voru oft minni kóræfingar heima og þá dundi húsið af söng. Svo höfðu foreldrar mínir líka mjög gaman af því að skella upp veislum. Ég man til dæmis að einhvern tíma kom strandferða- skip að höfninni á Ísafirði og það var heill karlakór um borð. Pabbi hitti þessa menn á rölti um bæinn og bauð þeim bara öllum heim um kvöldið, sirka sextíu manns! Þær eru minnisstæðar margar veislurnar, enda mikið af tónlist- arfólki sem spilaði og söng. Ól- afur Kristjánsson úr Bolungarvík var til dæmis fastagestur og lék oft fyrir dansi í stofunni ásamt fleirum. Og svo var sungið enda- laust, allt frá gömlum þjóðlögum upp í alla þessa slagara sem við þekkjum. Óhemju skemmtilegt. Þessar veislur vildu oft dragast fram eftir nóttunni og ég man eftir pabba komnum á níræðis- aldur vera að kveðja fólk með hermannakveðju klukkan sex og sjö á morgnana á tröppunum fyrir utan.“ Áhrif föðurins „Ég get eiginlega ekki talað um föður minn eins og venjuleg- an föður. Hann var náttúrulega mikið eldri en ég, var 52 ára þegar ég fæddist og orðinn þrosk- aður maður, þannig að þetta var svolítið öðruvísi samband. Hann var á vissan hátt kannski fjarlæg- ari en líka mjög náinn og talaði alltaf við okkur systkinin eins og við værum fullorðið fólk, gerði gríðarlegar kröfur til okkar og reyndar allra og til sjálfs sín ekki minnst. Hann talaði alltaf við börn af mikilli virðingu og ætlað- ist til þess að þau svöruðu á sama hátt. Það var kannski þar sem galdurinn lá í uppeldinu hjá for- eldrum mínum, að tala við börn af alvöru, hlusta á þau og taka mark á því sem þau sögðu, en um leið gera kröfur á móti. Þetta er mörgum mjög minnisstætt sem fóru undir þeirra handarjaðar að einhverju leyti og ég er alltaf að hitta ókunnugt fólk sem heilsar mér eða tekur mig tali og segist vita hver ég er vegna þess að foreldrar mínir hafi á einhvern hátt komið inn í líf þess. Og oftast er þessu fólki minnistæðast hversu mikla virðingu foreldrar mínir hafi sýnt því sem börnum. Það var algengt viðhorf til barna í sjávarþorpum á þessum tímum að þau ættu fyrst og fremst að læra að vinna og annað nám ætti að koma númer tvö. Ég man eftir mörgum þrum- andi ræðum sem pabbi hélt við tónleika og skólaslit Tónlistar- skólans, sem þá voru haldin í Alþýðuhúsinu, þar sem hann brýndi fyrir þeim fullorðnu að hvetja börnin til náms og kaupa handa þeim hljóðfæri, eins konar mannréttindayfirlýsingar fyrir börn. Hann gat orðið ansi harð- orður og eðlilega þótti okkur syst- kinunum þetta vera mjög óþægi- legt. Við skömmuðumst okkar hálfpartinn fyrir þessar ræður pabba. Hann var á margan hátt mjög sérstakur og gat verið mjög bráður, en það var fljótt að fara úr honum. Það að hafa búið er- lendis í næstum 30 ár og þar að auki þjónað sem hermaður í seinni heimstyrjöldinni setti auð- vitað mark sitt á hann. Hann gerði þá kröfu að menn stæðu við sitt og vönduðu sig við allt sem þeir gerðu. Engar undantekningar leyfðar þar á.“ Kom aldrei til greina að þú legðir annað en tónlistina fyrir þig? „Jú, það kom vissulega til greina. Umræðuefnin heima spönnuðu vítt svið og við systkin- in fengum hvatningu til að leita okkur þekkingar á hinum ólík- ustu sviðum. Ég man til dæmis eftir umræðum um mengun, löngu áður en sú umræða kvikn- aði í þjóðfélaginu almennt. Þá var mikið rætt um heimspólitík, listir, bókmenntir og meira að segja flóknari vísindi eins og eðlisfræði og stjörnufræði. Pabbi átti líka eitt stærsta og verð- mætasta prívatbókasafn á Íslandi, sem hann hafði komið sér upp allt frá því hann var í Ameríku, alls konar bækur, bæði íslenskar og erlendar, skáldverk, ljóð, og fræðibækur og uppsláttarrit. Ég hafði mikinn áhuga á nátt- úrufræði og stefndi á það á tíma- bili að leggja hana fyrir mig. En

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.