Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.05.2010, Blaðsíða 18

Bæjarins besta - 27.05.2010, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Enginn hagvöxtur árin 2004-2008 Nær enginn hagvöxtur var á Vestfjörðum á árunum 2004- 2008. Í skýrslu um hagvöxt lands- hluta, sem nú er birt í fjórða sinn segir að árið 2008 hafi verið það fyrsta þar sem hagvöxtur var yfir landsmeðaltali á Vestfjörðum. Árið 2008 er líka fyrsta árið í langan tíma sem fólki fjölgar á Vestfjörðum. Fjölgunin var um 1%, en fyrri árin á tímabilinu fækkaði Vestfirðingum um 1-2% á ári. Framleiðsla dróst saman á Vestfjörðum árin 2006 og 2007 samkvæmt mælingunni. Árin 2003-2008 má þó segja að fram- leiðslan standi nokkurn veginn í stað (samtals mælist 3% hagvöxt- ur þessi fimm ár). Þjónusta og sjávarútvegur vex heldur, en op- inber starfsemi dregst saman. At- hygli vekur að á Vestfjörðum hafði atvinnuleysi ekki aukist að nokkru marki í árslok 2008 öfugt við það sem gerðist á suðvestur- hluta landsins. Eins og víðar á landsbyggðinni styrkir lágt gengi krónunnar at- vinnulíf og stuðlar að háum laun- um hjá sjómönnum. Um tíma streymdi ungt fólk frá þessum landshluta, einkum þá frá öðrum byggðarlögum en Ísafirði. Horfur byggðarlaga má að nokkru leyti lesa úr því verði sem greitt er fyrir húsnæði. Húsnæðisverð hefur óvíða verið lægra á landinu en á Vestfjörðum, en miklu mun- ar þó innan byggðarlagsins. Á fyrri hluta árs 2009 var fermetra- verð í sérbýli á Ísafirði 25-35% af því sem sjá mátti í miðbæ Reykjavíkur, en sunnar á Vest- fjörðum fór verðið í 15-20% af verðinu í miðbæ Reykjavíkur. Skýrsla um Hagvöxt lands- hluta er unnin af Dr. Sigurði Jó- hannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggða- stofnun og í samvinnu við starfsmenn stofnunarinnar. Í skýrslunni eru tölur fyrir árið 2007 reiknaðar eins og áður en tölur fyrir árið 2008 áætlaðar. Meginniðurstöður eru þær að hagvöxtur á landinu öllu var 6- 7% á árunum 2004 til 2007, en stóð nær í stað á árinu 2008. Áhrif bankahrunsins gætir því ekki að fullu það ár og er líklegt að áhrif þess hafi ekki komið fram af fullum þunga fyrr en á árinu 2009, segir í skýrslu Dr. Sigurðar Jóhannessonar. – thelma@bb.is Gerd Marteinsen, 68 ára gamall Þjóðverji, setti í stór- lúðu fáeinar sjómílur út frá Deildinni á föstudag og stóð viðureignin yfir í eina og hálfa klukkustund. Gerd og áhöfn hans voru á bátnum Bobby 12 sem er gerður út frá Flateyri. Lúðan mældist 204 sm að lengd og vó 110 kg. Lúðan er önnur stærsta stórlúða sem veiðst hefur á sjóstöng við Ís- landsmið svo vitað sé. Sú stærsta var veidd á svipuðum slóðum í maí árið 2007 þegar sjóstangaveiðifyrirtækið Hvíld- arklettur á Suðureyri hóf starf- semi sína. Sú lúða mældist 240 sm að lengd og vó 175 kg og er með fimm stærstu lúðum í Evr- ópu sem veiðst hafa á sjóstöng. Nýverið veiddist 203 sm og 108 kg lúða á bát frá Hvíldarkletti frá Flateyri en lúðan hans Gerd Mar- teinsen tók annað sætið enda var lúðan hans 2 kg þyngri en aðeins sentimetra lengri. Mikil sjóstangaveiðistemning ríkir um þessar mundir á Flateyri og Suðureyri en Hvíldarklettur gerir út 22 sjóstangaveiðibáta og eru viðskiptavinirnir aðallega Þjóðverjar. Veiðimennirnir eru að draga rígaþorska á sjóstöng og í vikunni veiddist 23 kg þorskur og 11 kg steinbítur sem þykja býsna vænir fiskar á stöng. Það sem af er maímán- uði hafa þrjár lúður veiðst og tvær þeirra yfir 100 kg. Veiði- mennirnir sækjast aðallega eftir að veiða stórlúður, stein- bít og stór þorska. Hægt er að fylgjast með veiðifréttum á bloggsíðu Róbert Schmidt sem er leiðsögumaður Hvíldarkletts á Suðureyri. – thelma@bb.is 110 kg stórlúða á sjóstöng Það tók rúma 1,5 klukkustund að koma ferlíkinu um borð. Mynd: Róbert Schmidt. Fjölga mætti nemendum Fjölga mætti um 83 nemendur í grunnskólum sveitarfélaganna þriggja við Djúp án þess að fjölga kennurum. Samsvarar það níu stöðugildum í kennslu. Þetta kemur fram í útreikningnum starfshóps 100 daga nefndarinnar í fræðslumálum um mögulega fjölgun nemenda í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavíkurhreppi í samanburði við viðmið um fjölda nemanda á hvern kennara. Grunn- skólar sveitarfélaganna þriggja eru sex, þar af fjórir í Ísafjarðar- bæ, einn í hverjum byggðakjarna. Í sveitarfélögunum eru um 770 nemendur í 1. til 10. bekk grunn- skóla og eru allir bekkir kenndir í hverju sveitarfélaganna þriggja. Samkvæmt útreikningunum mætti fjölga nemendum án þess að þurfa að fjölga kennurum í öllum skólum sveitarfélaganna þriggja nema Grunnskólanum á Ísafirði þar sem 500 nemar voru á síðasta ári samkvæmt Árbók sveitarfélaga árið 2009. Í Grunn- skóla Bolungarvíkur voru 125 nemar og mætti fjölga þeim um 26, í Grunnskóla Önundarfjarðar voru 28 nemar og mætti einnig fjölga þeim um 26. Í Grunnskól- anum á Suðureyri voru nemendur 42 talsins og mætti fjölga þeim um 25, í Grunnskólanum á Þing- eyri voru 48 nemar en þeim mætti fjölga um 23. Í Súðavíkurskóla voru 30 nemendur og mætti fjölga þeim um 19. – thelma@bb.is Rekstur hafnanna í Ísafjarðar- bæ, Bolungarvík og Súðavík hef- ur verið erfiður síðustu ár. Fram kemur í skýrslu 100 daga nefnd- arinnar að tap hefur verið af rekstri hafna Ísafjarðarbæjar síð- ustu árin og hefur eigið fé hafn- anna verið lækkað úr rúmum 186 milljónum króna árið 2006 í um 56 milljónir kr. árið 2009. Árið 2008 var Ísafjarðarhöfnum sér- staklega óhagfellt, en um 37% skulda eru í erlendum myntum. Við gengisfallið árið 2008 og verðlagshækkanir jukust skuld- irnar 80 milljónir kr. Engin ný lán voru tekin það árið. Eigið fé í Bolungarvík hefur verið að lagast síðustu tvö ár. Það var þó enn neikvætt í árslok 2009 um 32 milljónir kr., en var neikvætt um 46 milljónir kr. í árslok 2008. Rekstrarafkoma Ísafjarðarhafna og Bolungarvík- urhafnar fyrir vexti var hins vegar jákvæð öll árin, ef árið 2007 er undanskilið hjá Ísafjarðarhöfn- um. Þessu er hins vegar ekki svo háttað í Súðavíkurhöfn. Rekstr- artekjur hafnarinnar hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaðinum og er eigið fé hafnarsjóðs nú nei- kvætt um 1,1 milljón króna. Skuldir hafnarsjóðs Súðavíkur- hafnar eru nær allar við aðalsjóð sveitarfélagsins. – thelma@bb.is Erfiður rekstur hafnanna Frá Bolungarvíkurhöfn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.