Bæjarins besta - 27.05.2010, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Auglýsing um kjörfund vegna sveitarstjórn-
arkosninga í Ísafjarðarbæ 29. maí 2010
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ísa-
fjarðarbæ hefst kl. 09:00 þann 29. maí n.k. og
stendur til kl. 22:00 í 1.-3. kjördeild en til kl. 20:00
í 4.-6. kjördeild.
Kosið verður á eftirtölum stöðum:
1.-3. kjördeild í íþróttahúsinu á Torfnesi.
4. kjördeild í Félagsheimilinu á Suðureyri.
5. kjördeild í Grunnskólanum á Flateyri.
6. kjördeild í Félagsheimilinu á Þingeyri.
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér per-
sónuskilríki á kjörstað.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í
íþróttahúsinu á Torfnesi. Sími yfirkjörstjórnar er
450 8090.
Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu
Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnar-
stræti 1, Ísafirði.
Talning atkvæða mun fara fram á 4. hæð í
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar,
Hildur Halldórsdóttir,
Kristján G. Jóhannsson,
Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Íslandspóstur gaf út þrjú
frímerki 6. maí síðastliðinn
í útgáfuröðinni 10 mikilvæg-
ustu almenningsgarðar eða
skrúðgarðar á Íslandi í ljósi
garðlistasögunnar. Jóns-
garður á Ísafirði er einn þess-
ara garða. Jónsgarður er elsti
skrúðgarðurinn á Ísafirði,
opnaður árið 1922. Hjónin
Jón klæðskeri Jónsson og
Karlinna Jóhannsdóttir voru
helstu hvatamenn að gerð
hans.
Um 1978 var garðyrkju-
stjóra falin umsjá garðsins
og þann 5. desember 1991
samþykkti bæjarstjórn Ísa-
fjarðar að garðurinn fengi
nafnið Jónsgarður. Sumarið
eftir var vígður minnisvarði
um þau hjónin í garðinum,
en sá minnisvarði var unninn
af Jóni Sigurpálssyni mynd-
listarmanni. Verðgildi frí-
merkisins er 90 krónur.
Jónsgarð-
ur prýðir
frímerki
Jónsgarður prýðir
eitt af þremur nýjum
frímerkjum Íslandspósts.
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar, hefur síð-
ustu þrjú ár verið í 17.-21. sæti
yfir launahæstu bæjar- og sveitar-
stjóra landsins samkvæmt tíma-
ritinu Frjálsri verslun. Ísafjarð-
arbær er 14. stærsta sveitarfélag
landsins. Í svari bæjarstjóra við
fyrirspurn frá Sigurði Péturssyni
oddvita og bæjarstjóraefni Í-list-
ans um laun hans, kom fram að
föst laun með yfirvinnu voru
805.750 krónur í marsmánuði
bæði 2009 og nú í ár. Eins og
greint hefur verið frá voru laun
bæjarstjóra lækkuð um 10% frá
og með 1. janúar 2009, að hans
eigin ósk, en í mars 2008 voru
föst laun með yfirvinnu 895.278
krónur.
„Laun bæjarstjóra Ísafjarðar-
bæjar hafa verið sambærileg við
laun bæjarstjóra í samsvarandi
sveitarfélögum. Dæmi eru þó um
laun í einum 17.-21. sveitarfé-
lögum sem eru hærri eða mun
hærri en hjá bæjarstjóra Ísafjarð-
arbæjar,“ segir í svarinu. Einnig
var spurt um hlunnindi bæjar-
stjóra en í svarinu kemur fram að
bæjarstjóri nýtur engra hlunn-
inda, hvorki vegna bifreiðar, hús-
næðis eða nokkurs annars. „Bif-
reiðapeningar eru greiddir á móti
notkun á eigin bíl og hafa yfirleitt
verið minni en afnot af bílnum
fyrir Ísafjarðarbæ,“ segir í svar-
inu. Þar kemur einnig fram að
þar sem kostnaður við eldsneyti
hefur aukist mikið frá hruni hafa
bifreiðapeningar hækkað. Bif-
reiðapeningarnir eru á móti út-
gjöldum en öll notkun er greidd
af bæjarstjóra, þ.á.m. eldsneyti.
Bæjarstjóraefni Í-listans
spyrst fyrir um launakjör
Óbundnar kosningar í fjórum
sveitarfélögum á Vestfjörðum
Óbundnar kosningar verða í
fjórum sveitarfélögum á Vestfjörð-
um þar sem enginn listi kom
fram. Í óbundnum kosningum eru
allir kjósendur í sveitarfélaginu í
kjöri, nema þeir sem löglega eru
undanþegnir skyldu til að taka
kjöri og hafa fyrir fram skorast
undan því. Kjósendur skrifa þá
nöfn og heimilisföng aðal- og
varamanna á kjörseðilinn.
Óbundnar kosningar fara fram
í Árneshreppi, Bæjarhreppi,
Kaldrananeshreppi og Reykhóla-
hreppi auk 16 annarra sveitarfé-
laga á landinu. Í Tálknafjarðar-
hreppi auk þriggja annarra sveit-
arfélaga á landinu kom aðeins
fram einn listi og er því sjálfkjör-
ið í þær sveitarstjórnir.
Alls eru 185 listar í framboði
til 76 sveitarstjórna í kosningun-
um 29. maí næstkomandi. Á list-
unum eiga sæti 2846 einstakl-
ingar, eða ríflega 1,2% kjörgeng-
ra einstaklinga í landinu. Flestir
framboðslistar eru í Reykjavíkur-
borg, eða átta talsins, sjö í Kópa-
vogsbæ og sex í Akureyrarkaup-
stað. Upplýsingar um framboð í
öllum sveitarfélögum á landinu
eru nú komnar inn á kosningavef-
inn www.kosning.is.
Tálknafjörður.