Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.01.2011, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 27.01.2011, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Níu íþróttamenn voru tilnefndir í ár. Emil kjörinn annað árið í röð Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson hefur verið útnefndur Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2010. Er þetta annað árið sem Emil hlýtur nafnbótina. Emil er 17 ára, stóð sig frábærlega með meistaraflokki BÍ/Bolungarvíkur í 2. deildinni í sumar og var valinn efnilegasti leikmaðurinn í loka- hófi liðsins. Emil var valinn í lið ársins í 2. deild af knattspyrnu- vefnum fotbolti.net og komst nærri því að vera valinn efnileg- asti leikmaðurinn í þeirri kosn- ingu. Einnig hefur Emil sýnt góða takta með U18 landsliði Íslands og keppti meðal annars á æfinga- móti í Falkenberg í Svíþjóð þar sem hann var byrjunarmaður í öllum leikjunum. Hann hefur verið fastamaður í unglinga- landsliðum KSÍ og stundar nú æfingar með U-19 ára landsliði Íslands. Viðurkenning fyrir útnefning- una og farandbikar var afhentur við hátíðlega athöfn í Stjórn- sýsluhúsinu á Ísafirði á sunnu- dag. Emil var fjarri góðu gamni og tók því faðir hans, Páll Harð- arson, við viðurkenningunni fyrir hönd sonar síns. Níu íþróttamenn fengu þá við- urkenningu fyrir góðan árangur á árinu 2010 við formlega athöfn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Þeir sem voru tilnefndir auk Em- ils voru Anton Helgi Guðjónsson hjá Golfklúbbi Ísafjarðar, Elena Dís Víðisdóttir hjá Sundfélaginu Vestra, Elín Jónsdóttir hjá Skíða- félagi Ísfirðinga, Guðmundur Valdimarsson hjá Skotíþróttafé- lagi Ísafjarðarbæjar, Jóhann Bragason hjá Hestamannafélag- inu Stormi og Margrét Rún Rún- arsdóttir hjá Knattspyrnufélaginu Herði. Að auki hafa Craic Schoen hjá KFÍ og Ragney Líf Stefáns- dóttir hjá íþróttafélaginu Ívari bæst í hópinn. – thelma@bb.is Páll Harðarson, faðir Emils, tók við viðurkenningunni.Boðið var upp á glæsilegar veitingar að athöfn lokinni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.